Já, netkerfið í Háskólanum er alveg með ólíkindum! Svona rétt til að útskýra fyrir ykkur utangarðsmönnum (= ekki Háskólaborgarar) þá erum við ansi mörg með þráðlaust netkort í fartölvunum okkar sem gerir okkur kleyft að vera á netinu á ansi mörgum stöðum innan skólans, svo sem í fyrirlestrarsölum, bókasafninu osfrv, án þess að tengja einhverjar leiðinda snúrur. En já, það er nú heldur betur langdrægt þetta kerfi!
Mér til mikillar furðu þá poppaði allt í einu upp á skjánum hjá mér áðan “Bill the Butcher has signed in” á MSN. Það er einmitt hann Andri Beikon sem kallar sig þessu ágæta nafni og klukkan var hvorki meira né minna en 0:30. Þetta hefði nú ekki verið í frásögur færandi nema útaf því að Andri kallinn er ekki með nettengingu heima hjá sér og er þess vegna bara á MSN þegar hann er í skólanum… Kemur þá ekki í ljós að hann hafði bara skellt sér í stuttan miðnæturbíltúr, lagt fyrir framan aðaldyrnar á einni Háskólabyggingunni (Tæknigarði, fyrir þá sem vilja vita), vippað lappanum upp og bara skellt sér á netið, beint úr bílstjórasætinu! Ágætis valmöguleiki við það að fara að djamma um helgar… “Nhiii, ég ætla bara að renna upp í skóla og kíkja á IRCið…” En allavegana gott fólk, þetta er mögulegt. (Bara svo þið haldið ekki að Andri sé einhver sturlaður sækópati sem leggur bílnum fyrir utan Háskólann seint á kvöldin til að leika sér á netinu, þá var hann víst að ná í einhver bráðnauðsynleg lærdómsgögn… eða svo segir hann mér).