Færslur frá mars 2003

Vígeland #2

Jæja, Vigeland-tímablinu er lokið. Það virtist ekki vera að gera sig að kalla sig Agnar Vígeland. Samt dáldið dýrt.. það kostar peninga að láta breyta þessu í þjóðskránni og ég er núna búinn að þurfa að breyta því aftur úr Agnar Vígeland yfir í gamla nafnið. En jæja, live and learn. Núna er ég kominn með öllu skemmtilegra viðurnefni… nebbla Aggi flinki (ef þú fattar þetta ekki, horfðu þá á Sódómu Reykjavík). Ég kann afar vel við það nafn… og síðan á það auðvitað mjög vel við í mínu tilviki ;) Nei djók…

En jæja, eins og allir vita þá ljúga skoðanakannanir ekki. Samkvæmt minni nýjustu, þá mun Frjálslyndi flokkurinn vinna stórsigur í alþingiskosningunum í vor og allt útlit er fyrir að ég muni fara inná þing. Þetta á auðvitað eftir að riðla verkfræðináminu aðeins hjá mér og síðan fer sumarfríið auðvitað forgörðum, því ég þarf skiljanlega að kynna mér öll málefni til hlýtar og undirbúa mig vel undir næsta þing. Þetta kom nú eiginlega alveg flatt upp á mig, enda hélt ég aldrei að sjötta sætið í Reykjavík Suður myndi koma mér inná þing. Vonandi munið þið, kæru lesendur, sýna mér skilning á komandi mánuðum. Vegna anna verð ég ekki oft viðlátinn og líklega fúll og pirraður vegna svefnleysis þegar fólk ræðir við mig. Ef það eru einhver málefni sem þið viljið koma á framfæri (einkavinir mínir fá auðvitað spes díla við gerð lagafrumvarpa) þá skulið þið bara bjalla í mig… Ég er opinn fyrir öllu ef frí máltíð (helst á KFC, en sætti mig líka við McDonalds) eða bíóferð (mig langar að sjá “nóa albínóa”, “the hours”, “hunted” og “final destination 2″) er í boði.

Þetta verður ekki lengra í bili… gangið hægt um gleðinnar dyr og ekki styggja hunda.

Verkfræðibrandari

Árshátíðin hjá verkfræðinemum var í gær… ég hafði ekki mikið úr býtunum, en græddi þó einn brandara.

-

Það var einu sinni bóndi sem þarfnaðist hjálpar við að búa til girðingu utan um rollurnar sínar. Hann fékk verkfræðing, eðlisfræðing og stærðfræðing til verksins og lét hvern þeirra smíða eitt stykki girðingu fyrir sig.

Verkfræðingurinn reið á vaðið, skellti saman girðingu á rétthyrnt svæði sem hann vissi að væri nógu fjandi stórt fyrir allar rollurnar og smalaði þeim síðan inn. Næst var röðin komin að eðlisfræðingnum. Hann reiknaði það út að með því að hafa girðinguna hringlaga gat hann fengið mesta flatarmál svæðis og jafnframt nota minnst af efni. Hann smíðaði því hringlaga girðingu sem hann gat smalað rollunum naumlega inn í. Síðastur var stærðfræðingurinn. Hann kom sér strax að verki, smíðað pinkulitla ferhyrningslaga girðingu, stökk yfir eina hliðina og inn í girðingu og skilgreindi sjálfan sig utan girðingar.

-

Ég ber enga ábyrgð á því ef ykkur finnst þessi brandari ekki fyndinn…

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Easy Does It (5):

    Ég er með forrit í símanum sem er svona hlaupaforrit og meira að segja telur skrefin og... (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Jamm, og ef þú nálgast Android eða iPhone síma útí USA þá mæli ég klárlega með Runkeeper. Ég ELSKA... (Skoða)
  • Aggi um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á Nike+… þarf klárlega að græja mig upp með því! (Skoða)
  • Andri um Easy Does It (5):

    Sjá tólin fyrir jólin! (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á þetta. Prógrammið, sem að ég lét þig fá er þó ekki jafn erfitt og þú heldur.... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar