Letibloggarinn
Jæja, nú er farið að hóta mér. Ef ég uppfæri ekki þessa blessaða heimasíðu, þá ætlar Steini Wang að henda mér út af linkaskránni sinni. Og eins og svo oft áður þá þarf ég bara smá spark í rassinn, þá geri ég hlutina.
Annars hefur verið klikk klikk að gera hjá mér… ný vinna, klára skólann, kosningar ofl ofl ofl. Svo ég biðst afsökunar á því að hafa ekki uppfært síðuna mína síðastliðna 72 daga! Ég fer fljótlega að fá mér eina svona “Dígital”-myndavél svo þið megið eiga von á alls slags sudda myndum þegar af því verður. Ég huxa samt að ég uppfæri síðuna samt ekkert fyrr en þá… ég hef bara ekkert að segja… nema þá einna helst að tala um hvað ég hafi lítið að segja :þ
Anyways.. ekki henda mér út úr linkaskránni þinni Steini, ég lofa að halda áfram að uppfæra þetta lén… einhverntíman fljótlega :)
