Það er svei mér þá nóg að gera hjá mér þessa dagana. Bloggið er því miður með Classification 4 á forgangslistanum mínum, sem gerir það að verkum að það er hending að ég nái að blogga þessa dagana, enda er gjarnan ofhlaðið á Classification 1-3.

Bókin – the one and only – er loksins að verða tilbúin! Við erum að leggja lokahöndina á hana og hefur þessi helgi verið hálf geðveikisleg í skrifum. Hef setið fyrir framan tölvuna nánast frá sólarupprás til miðnættis að klára minn skerf. Síðan er bara myndavinnan eftir og prófarkalesturinn, svo ég er loksins farinn að sjá fyrir endann á þessu! Eins og staðan er í dag er stærðin orðin geigvænleg: Minnir að orðin séu orðin rúmlega 110 þús! (og síðan er maður að kvarta yfir þúsund orða ritgerð…)

Gerði mér að vísu glaðan dag á föstudaginn og kíkti í vísindaferð í Vífilfell, en eins og allir þekkja er ég “vinaður” inn í hina alræmdu Kókfjölskyldu. Ég náði þó að fara huldu höfði um ganga fyrirtækisins og verð nú bara að segja að rausnarskapur þeirra Vífilfellinga var til fyrirmyndar… minnir að ég hafi fengið heila 6 bjóra (eða voru þeir 7…) í þeirra híbýlum áður en haldið var á vit ævintýranna á Pravda.

new_george.jpg Fyrir langa löngu síðan, þegar áhugi minn á öðrum menningarheimum var í hámarki, skráði ég mig á nokkrar skondnar “pen pals” síður. Þetta væri nú ekki í frásögur færandi nema útaf bréfunum sem ég fæ alltaf send til mín annað slagið. Fékk einmitt alveg ljómandi bréf í gær frá hinum stórfína George frá Rússlandi.
George þessi, sem er 43ja ára gamall félagsfræðingur, lét mynd af sér fylgja með bréfinu sínu… sem mér finnst pinkulítið creepy. Bréfið var hins vegar skemmtilegt aflestrar, þrátt fyrir að viðfangsefnið sé vissulega sorglegt, og tileinkast það einna helst af slæmri ensku hans George og einlægninnar sem skín í gegn. Læt það flakka hér með, ásamt myndinni.

Good day,dear Aggi! My name is George Khobotjev. I am from Russia. I am know about you from Internet page. And I decided to write. A few words about me. I have 43 years old. I am sociologist. We live in Moscow. My Family it is my daughter – KATE. She have 17 years old. She is schoolgirl (in 11-th grade – class). And my mother Zoja, 67 years old. She is pensioner. She lives together with us. Moscow it is my native city, in which I has lived all one’s life. I am Christian (Orthodox Christian). If you want more know about Russia, Russian life I with pleasure will help you in this. If you have questions on Russia I with pleasure will to answer. In general, life in modern Russia very difficult. It is as computer game on survival. Only in computer game all pretending and for pleasures, but in our country all in reality, struggle for a survival it is a reality. And in my family this too occurs. Do you something knowing about this side of peoples life? If you want to learn,please, write me,and we shall be friends.

With regards,

George Khobotjev,

Moscow, Russia