Við köllum það dag
Jæja, próflestri fyrir prófið á morgun er hér með lokið. Ég hef verið einstaklega óduglegur að læra undir þetta próf undanfarna viku, en mun vonandi ekki uppskera eins og ég sáði.. það er að segja, vonandi uppsker ég meira.
Prófið verður á morgun og má ætla að það verði í 8 liðum, sem leysa skal á þrem klukkustundum. Þar sem allir dauðir hlutir eru leyfilegir sem fylgigögn mun ég nýta mér það til hins ýtrasta… 4 bækur, sem telja samtals yfir 2700 blaðsíður, verða hafðar meðferðis, sem og rúmlega 200 blaðsíður af glósum frá dæmatímakennaranum og 80 blaðsíðna reikningsbók, með rifgötum, með hugleiðingum mínum um fagið undanfarna vikuna.
Taktíkin mín er einföld. Ég er yfirleitt búinn með öll próf sem ég tek á helmingi þess tíma sem er ætlaður til úrlausnar… því mun ég einfaldlega finna sambærileg dæmi og verða á prófinu einhversstaðar í glósunum, reikna glósudæmið og átta mig á gangverkinu og reikna síðan prófdæmið. Þetta er gjörsamlega foolproof áætlun… nema ef vera kynni að ég myndi lenda í tímaþröng. Þá er ég fökked. Ég hef hins vegar ákveðið að gefa mér þá forsendu að ég lendi ekki í tímaþröng.
Annars er það bráðnauðsynlegur hluti af próflestrinum að flakka sem mest um öldur Internetsins. Bloggrúnturinn er reyndar alveg hrikalega stuttur hjá mér enda virðist fólk vera afar latt að blogga, sem er miður. Eftirtaldir aðilar (í stafrófsröð) fá kærustu þakkir fyrir að aðstoða mig við að halda geðheilsunni í desember: Atli, Brynjar, Dagný, Didda Mæs, Fanney, Gaui, Hrafninn og Sólrún (og stundum Andri og Eva, þrátt fyrir stopular færslur).
Síðan er vert að geta þess að við vinirnir sátum til klukkan 04 í nótt við að leysa þetta próf… 80s Movie Alphabet Quiz… við náðum 21 af 26, sem ég tel vera ótrúlegan árangur.
Gangið á Guðs vegum… en umfram allt: Megi ég mæta ykkur á veginum á milli 13:30 og 16:30 á morgun.
