Skilorð fyrir að rústa andliti manns
Á lífsleiðinni verður maður oft fyrir áföllum. Lenti einmitt í því áðan þegar ég var að fletta DV í dag. Á forsíðu blaðsins er þessi flennifyrirsögn: “SKILORÐ FYRIR AÐ RÚSTA ANDLITI MANNS”

Gott og vel, svo sem ekkert nýjar fréttir – dómskerfið hefur alltaf verið hálf-bilað. En jæja, fór að lesa lengra og stakk þau augun í aðalmálið… sá sem fékk skilorðið er góðvinur minn, Hrafn Stefánsson! Hann hefur víst verið að ganga berserksgangi um bæinn undanfarin misseri, lemjandi mann og annan, á meðan hann breiðir út pólítískan boðskap sinn. Þetta kemur að sjálfsögðu öllum sem hafa unnið með honum, hvort sem er í Röskvu eða annars staðar í opna skjöldu enda virðist kappinn vera meinlaus með mestu við fyrstu sýn og hið ágætasta ljúfmenni. Ég hef ítrekað reynt að ná á kallinum í dag, en hann er greinilega búinn að slökkva á símanum. Vonandi veistu það, Hrafn minn, að við í Röskvu styðjum þig öll og vonum að þú náir að vinna þig í gegnum þá erfiðu tíma sem framundan eru og náir skjótum bata af þessari ofbeldisfíkn. Hmm… gæti nokkuð verið að það séu fleiri en einn Hrafn Stefánsson á landinu? Neeee, varla.
Í öðrum fréttum er það annars helst að nú stendur yfir undirskriftarsöfnun gegn útlendingafrumvarpinu svokallaða og vil ég hvetja sem flesta til að kynna sér málið vel. Vitaskuld hafa undirskriftarlistar engin áhrif á stjórnmálamenn (eins og Hrafn “krimminal” sagði mér svo oft hérna í den) en almenningsálitið blívar og það er mikilvægt að almenningur geri sér grein fyrir því hvaða afleiðingar þetta frumvarp hefur. Tjékk it out.

Jæja, þá er nýnemablaðsdreifingunni lokið! Ég og Hrafn maestro vorum með allt Breiðholtið á okkar herðum og rumpuðum því af frá 21 til 02 á laugardagskvöldi… asskoti gott bara. Reyndar...