Slappleiki bloggs: Óvinsældir mínar hafa náð nýjum hæðum
Blogg. Hvað er blogg? Ég hef spurt sjálfan mig þessarar spurningar undanfarna daga. “Leitið og þér munið finna” – var einu sinni sagt. Ég er ósammála því.
En nóg um það. Ég ætla ekki að blogga um bloggleysi mitt. Það er allavegana ekki blogg. Svo mikið veit ég.
1. Bíóferðir mánaðarins hafa verið einkar ánægjulegar. Fór í gær á “Tróju” með fríðu föruneyti og skemmti mér konunglega. Hafði reyndar heyrt slæma hluti um hana og blöskraði þegar ég sá lengdina – 170 mínútur! Það reyndist hins vegar vera svo, að þegar ég yfirgaf salinn langaði mig í meira (bíð því spenntur eftir Alexandri). Ætla svosem ekki að tíunda myndina fyrir ykkur – það myndi taka 17 mínútur! Vá….
Ljómandi skemmtileg mynd, sem er dálítið í svona Ben Hur-stíl – gamaldags epísk mynd. Hnyttin á köflum og hrífur mann með sér. Fannst leikstjórinn reyndar á köflum of graður á valkyrjutónlistina. Gef henni solid þrjár stjörnur.
Fyrr í vikunni fór ég svo á The Butterfly Effect. Rígmanaði Sólrúnu til að biðja um miða á “Fiðrildaáhrifin” en hún tók það ekki í mál. Ég gugnaði síðan sjálfur þegar á hólminn var komið svo ég ætti kannski ekki að vera kvarta.
Annars var myndin mjög skemmtileg og áhugavert – kom mér bara nokkuð á óvart. Verkfræðinördinn kom fram í mér og gagnrýndi galla í tímaflakkinu, en ég bældi það fljótt niður. Mæli með þessari fyrir hresst fólk – tvær og hálf stjarna.
2. Mikið svakalega þoli ég ekki fólk sem endurtekur sig. Varð bara að koma þessu að. Er að horfa á Alþingissjónvarpið og er alveg að verða vitlaus – þetta er ósiður og hjálpar málflutningi manns ekkert! Rétt í þessu var Guðlaugur Þór að segja: “Það er bara þvættingur. Það er bara þvættingur.” Fussum svei.
3. Alvöru snillingum fer fækkandi. Sá auglýsingu fyrir Honda Accord, sem er einhver sú svalasta sem ég hef séð. Hún byrjar á einni ró sem rennur af stað og síðan eru keðjuverkanir af því í gangi í tvær mínútur! Þetta er allt raunverulegt, engin tölvugraffík í þessu! Það þurfti 606 tökur til að ná þessu fullkomlega og allir hlutirnir sem eru í auglýsingunni eru úr Honda Accord bíl. Það sem angrar fólk mest, er þegar hjól renna upp á við á einum stað: Þetta er eðlisfræðilega mögulegt – það eru einfaldlega lóð inní dekkjunum sem redda málunum. Tjékk it out.
4. Fjölmiðlafrumvarpið er allsvakalegt. Maður er nú alveg að verða kominn með upp í kok að þessu öllu saman. Bendi á grein eftir mig á heimasíðu Ungra frjálslyndra þar sem ég fer hamförum. Annars hefur líka verið athyglisvert að fylgjast með einstaka þingmönnum í þessum umræðum. Álit mitt á ýmsum hefur vaxið – minnkað á öðrum. Birgir Ármannsson og Bjarni Benediktsson finnst mér hafa tekist ágætlega að verja vonlausan málstað – þeir hafa í það minnsta oftast verið málefnalegir og lausir við þennan hroka sem einkennir oft málflutning stjórnarliða þessa dagana. Að sama skapi hefur verið ömurlegt að hlusta á Guðlaug Þór og Sigurð Kára… þeir eru vindbelgir af verstu sort. Það er ósköp erfitt að leggja dóm á þingmenn Framsóknarflokksins enda hefur varla heyrst múkk frá neinum nema Kidda sleggju. Ungu þingmennirnir, Dagný og Birkir, hljóta hins vegar að valda ungum Framsóknarmönnum miklum vonbrigðum. Samfylkingarmennirnir hafa staðið sig ágætlega – finnst Össur alltaf góður, Helgi Hjörvar pottþéttur og Bryndís Hlö og Lúðvík Bergvins góð. Að sama skapi hafa Mörður og Björgvin farið dálítið í taugarnar á mér – finnst þér einhvernveginn vera svo sjálfumglaðir í málþófinu sínu. Steingrímur og Ögmundur Vinstri grænir eru alltaf pottþéttir, aðrir hafa verið slakari. Eftirlæt öðrum að dæma um mína menn – hef samt verið nokkuð sáttur við þá.5. Niðurlag. En jæja, nú er vinnan að hefjast á mánudaginn. Mun starfa hjá Áltak í sumar við lagerstörf, sölustörf og að magntaka verk. Það er svona semi-áhugavert… þetta er a.m.k. góður peningur og fínn mórall á staðnum. Verð síðan til hliðar við það að vinna í nýrri bók með bróa sem kemur út um næstu jól… það gengur hægt, en gengur þó.
Adios muchachos.
