Sólarhringurinn sem hófst klukkan 15.32 í gær var frekar glataður fyrir mig. Aldrei þessu vant var brjálað að gera á lagernum í vinnunni… minn var að þeytast út um allt á lyftaranum – reddandi plötu hér og leiðara þar. Þurfti að opna búnt af einni vörunni… gerði það í fljótfærni. Fór að sinna öðru. Hljóp út… yfir umbúðirnar…. og þá varð skrattinn laus. Ég steig á fjandans nagla! Og engan smátitt… neinei… fjögurra tommu, frekar sveran, drjóla, sem stakkst hressilega í gegnum skóinn, sokkinn og sökkti sér inn í ilina. Ég hélt nú samt ótrauður áfram að vinna eftir að hafa hrist naglann og spýtuna sem hann var í ÚR mér og sett dass af sótthreinsandi á lostætið.

Í gærkvöldi komst ég varla í skóinn því löppin var svo bólgin. Síðan ríghaltraði ég í þokkabót. Fór og fékk mér ís rétt fyrir miðnætti með minni annars ágætu kærustu, en henni þótti göngulag mitt vera einkar fyndið. Hló dátt og sagði að ég ætti ekki að vera að “feika” þetta svona(!). Ég hugsaði henni þegjandi þörfina. Svo sagði hún að ég þyrfti að hafa húmor fyrir sjálfum mér…. ég brosti því í gegnum sársaukann, enda hlýtur að hafa verið skondið að sjá mig væflast áfram á einum jafnfljótum.

Sárið var frekar ljótt í morgun. Ákvað nú samt að skella bara plástri á þetta og fór svo að vinna. Sárið fékk svo að grassera í 10 klst í vel rökum og heitum skó. Slæm fýla rauk upp þegar ég fór úr sokknum (það gerist reyndar alltaf, þessi var þó óvenju megn) og ég sá að sárið var ekki fallegt. Ákvað því að skella mér á Læknavaktina og var mér tjáð þar að það væri komin sýking í sárið og að það þyrfti að skera fótinn af við ökla.

Nei, segi svona. Það var komin sýking í sárið. Fékk “Staklox” – 30 töflur á 2500 kall(!) – og mun vonandi ekki fá þessar slæmu aukaverkanir sem eiga að fylgja því. Annars finnst mér helvíti mikið að borga 1500 kall í komugjald og síðan 2500 kall í lyfjakostnað fyrir það eitt að stíga á nagla. 1% frjálshyggjuvitið sveif þá upp og spurði hvort að skattborgararnir ættu að borga fyrir þetta. 10% félagshyggjuvitinu blöskraði þá all svakalega og spurði hvort að það væri þá virkilega svo að einhverjir ættu þá að vera svo óheppnir að hafa ekki efni á að stíga á nagla. Geðklofi minn gagnvart þessum tveim öndverðu meiðum var ekki útkljáður þarna, frekar en áður. Ég hallast hins vegar frekar að því ríkið eigi að sjá til þess að allir hafi í sig og á – og þar með talið að allir geti notið læknisþjónustu, menntunar o.þ.h. á “kostnað” samfélagsins. Hins vegar eru það svo sem alveg góð og gild hagfræðirök að kostnaðarþáttaka sé einhver… hún má þó aldrei vera hamlandi. Ég hef veigameiri rök fyrir þessu mínir ágætu frjálshyggjuvinir, en geymi það þar til síðar.

En já, gott og vel. Það var ekki bara naglinn sem gerði sólarhringinn skemmtilegan. Um klukkan 14 í dag var ég að henda umbúðum af vörum sem komið hafa að utan. Mikið var af kössum og spýtum og ég var með mikla listræna tilburði við þetta. Skyndilega fann ég eitthvað á hálsinum á mér… einhverja fálma…eitthvað bit….ég sló létt á svæðið… og fann þá fyrir þessu líka viðbjóðslega flykki! Það rann hressilega frá hálsmálinu á flíspeysunni minni og út að neðan…. og þar króaði ég kvikindið. Öskraði reyndar í móðursýkiskasti á meðan það var var að renna niður peysuna… fór upp á háa-C og niður aftur… og upp og niður, upp og niður. Þakka fyrir að samstarfsmenn mínir hafi ekki verið nálægir. Fór svo með hlussuna heim og myndaði bak og fyrir. Ef þið þekkið kvikindið megiði gjarnan tjá mér nafn þess í commentunum… ykkur til yndisauka fáið þið líka að sjá lostætið á ilinni. Bon apetit.

100_07761.JPG100_0772.JPG