Bíllinn er til sölu! (Og núna er þetta ekki aprílgabb!)

Þessi glæsilega Mazda 626 2000GT er til sölu. Bíllinn er 1988 árgerð og ekinn 180þús. km. 140 hestöfl, topplúga, þjófavörn, fjarstýrðar samlæsingar, rafmagn í rúðum og speglum og bæði sumar- og vetrardekk á felgum. Bíllinn er nýsmurður, en er hins vegar með bilaða kúplingu (það kostar u.þ.b. 50 þús krónur að láta bifvélavirkja gera við kúplinguna). Sökum kúplingarinnar sel ég bílinn auðvitað á stórlækkuðu verði – hann væri á ca. 180 þús í lagi, en fer á 50 þús kall á borðið. Er engu að síður tilbúinn að hlusta á góð tilboð.
Ég hef átt bílinn í rúm fjögur ár, hugsað mjög vel um hann og hefur hann reynst mér frábærlega. Endilega hafið samband ef einhverjar spurningar eru… email er: afh (hja) hi.is en einnig er hægt að ná á mér í síma á kvöldin, s. 690-9082.
