Færslur frá ágúst 2004

Lagið er fundið!

Jæja, eftir víðtæka leit fann ég lagið sem ég var að leita að í gær (án allrar hjálpar frá ykkur ágætu lesendur)… þetta er live útgáfa, samblanda af Somewhere over the rainbow og Wonderful World… með Israel Kamakawiwo’ole …ótrúlega flott lag.

Snjókorn falla… á allt og alla

Af einhverjum stórfurðulegum ástæðum get ég ekki beðið eftir að veturinn komi! Mér varð litið út áðan og kámið á glugganum gerði það að verkum að í sekúndubrot sýndist mér vera blindbylur úti… og það fór sælutilfinning um mig! Veit ekki hvað það er, en ég sakna þess alltaf að koma inn úr kuldanum… og liggja upp í rúmi undir sæng í blindbyl. Við erum nú líklega ekki mörg sem erum að hugsa um þetta þegar flestir reyna hvað hægt er til að ná síðustu sólargeislunum.

En gott og vel. Ég fór í bíó í gær á hina ágætu Bourne Supremacy. Mundi gjörsamlega ekkert eftir fyrstu myndinni svo ég get ómögulega borið þær saman… ein og sér var þessi nú samt alveg prýðileg. Flottir bílaeltingaleikir á þröngum götum Evrópu og síðan ýmsir skemmtilegir fídusar. Held að besti aukakarakterinn hafi verið forstjóri CIA.. guttinn sem lék Quintus í Gladiator. (Ég geri mér grein fyrir því að það hefur enga þýðingu fyrir 99% venjulegs fólks).

Horfði síðan í dag á bootleg útgáfu af gelgjumyndinni Mean Girls með eðalgellunni Lindsay Lohan í aðalhlutverki. Hún kom mér nú barasta afar skemmtilega á óvart og var hin ágætasta skemmtun. Skólastjórinn án efa skemmtilegasti aukakarakterinn.. bendi ykkur annars á bíó-síðuna mína ef þið viljið fá stjörnugjöf!

Uuu… annars er þetta blogg dáldið þvingað þessa dagana. Maður er að reyna að koma sér aftur í gírinn eftir sumarið og það eru margir steinar í götunni. Síðan held ég að aðsóknin sé heldur dræm þessa dagana… Held að bloggið hljóti að verða betra eftir því sem það verður meira að gera í skólanum… það meikar fullkomið sens.

Annars er eitt sem vefst fyrir mér… og mig langar virkilega að fá svar við… hver flytur lagið “Somewhere over the rainbow” (held að það heiti það) í auglýsingunni frá Umferðarstofu? Alveg brilliant lag… svör óskast!

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Easy Does It (5):

    Ég er með forrit í símanum sem er svona hlaupaforrit og meira að segja telur skrefin og... (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Jamm, og ef þú nálgast Android eða iPhone síma útí USA þá mæli ég klárlega með Runkeeper. Ég ELSKA... (Skoða)
  • Aggi um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á Nike+… þarf klárlega að græja mig upp með því! (Skoða)
  • Andri um Easy Does It (5):

    Sjá tólin fyrir jólin! (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á þetta. Prógrammið, sem að ég lét þig fá er þó ekki jafn erfitt og þú heldur.... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar