Færslur frá september 2004

NLRU málþinginu lokið

Jæja, loksins loksins er málþingið búið… og þar með allri vinnunni í kringum það! Við í UF fengum 15 krakka frá hinum frjálslyndu (og reyndar líka róttæku) ungliðahreyfingunum á Norðurlöndunum… meðal annars frá Radikale Venstre og Venstre í Danmörku, Venstre í Noregi og Folkepartiet í Svíþjóð. Dagskráin hófst á föstudaginn með móttöku í höfuðstöðvum okkar í UF… og þar fékk undirritaður sér meðal annars brennivín og hákarl í fyrsta skipti á ævinni! Get ekki sagt annað en að ég hafi höndlað það mjööööög karlmannlega…

Síðan fengum við vel hressan fyrirlesara á laugardagsmorgninum… hann hafði föstudagsferskleikann með í farteskinu að minnsta kosti. Jæja, kíktum svo í bláa lónið, sem skandinövunum fannst alveg sjarmerandi (en ekki hvað?) og kíktum svo í mat til múttu Kristínar Maríu í Grindavík…. og fengum alveg stórkostlegan mat!
En hvað um það… ég hafði í rælni keypt nokkra kassa af bjór fyrir liðið þar sem ég gerði ráð fyrir því að amk Danirnir kynnu að taka á því… en nei… við þurftum að fara með heilan kassa aftur í bæinn! Hafiði vitað annað eins!?
Í þokkabót fór helmingurinn svo að sofa klukkan 01 og skildi okkur Íslendingana eftir á djamminu fram eftir nóttu…. við vorum reyndar líka heldur skrautlegri morgunin eftir.
En gott og vel, frábær helgi, lærði mikið af nýjum hlutum og fékk innsýn inn í norræn stjórnmál….

seminar27.jpg

Bókin gengur hægt en gengur þó. Var til 04 að vinna í henni á aðfararnótt föstudags, til 02 þar síðustu nótt og svo aftur í nótt… og við erum ekki enn búnir að klára myndavinnuna! Hún klárast hins vegar í dag… loksins loksins.
Síðan er ég líka að vinna í æsispennandi verkefni í Viðskiptahugmyndanámskeiði sem ég er í… um ferðamannastað á Suðurlandi.
Svo það er nóg að gera….

Annars valdið þið lesendur góðir mér gífurlegum vonbrigðum! Ég kem hérna með eina netta kvikmyndagetraun og það fara allir í kerfi! Enginn getur neitt og allir biðja um vísbendingar og svör! Fussum svei…. Myndbúturinn var semsagt úr hinni frægu 8 Heads in a Duffel Bag frá 1997, með Joe Pesci í hlutverki leigumorðingja sem þarf að redda sér mannshausum í góðum fíling… núna eru örugglega ýmsir sem eru nett pirraðir út í mig… kannast enginn við þessa svaðalega “góðu” mynd?
Þið fáið eina skítlétta hérna… ekki valda mér vonbrigðum.

new_mynd2.jpg

Gamla bloggkerfið var í gangi þegar ég færði þetta inn… Hérna koma kommentin:

Vá hvað vottarnir eiga bágt. Allir deyja, fáir lifa… hér kemur lítið heilræði. Love like you´ve never been hurt, dance like nobody is watching, but what ever you do, ekki falla í trúarbölið!!Vala og Heiðdís Homepage 16.09.04 – 4:00 pm #

Já, þetta var nú erfitt síðast, mér var nær að kvarta þannig að ég ætla ekkert að fussa neitt yfir þessu Þessi er úr Big Fish, sem var að mínu mati ofmetin mynd.Andri 28.09.04 – 5:05 pm #

Ég er búin að vera að lesa bloggið þitt afturábak í dag. Var ekki búin að kíkja á það í svo langan tíma skiluru og sé að ég hefði getað svarað spurningunni sem þú varpaðir fram 3.sept um lagið með fituflæðingnum Israel “IZ” Kamakawiwo’ole fyrir löngu síðan. Mér fannst þetta lag einmitt mjög fallegt þegar ég heyrði það í Boston Public auglýsingu á Skjá1 fyrir löngu síðan svo ég fór á google og fann út að lagið var einmitt með þessum gaur og var einnig í myndunum Finding Forrester og Meet Joe Black…svona ef þú skyldir vilja vita það Venlig HilsenSara Email Homepage 03.10.04 – 8:07 pm #

Nú er orðið soldið langt síðan NLRU málþinginu lauk Aggi minn! Hvernig er það tekur ekkert annað við? Á ekki að fara að blogga soldið meira?Hrafninn Homepage 12.10.04 – 11:41 pm #

held þú sért ömurlegast bloggari sem uppi hefur verið , fyrr og síðarJane 14.10.04 – 11:20 am #

Ég þakka hrósin.. blóm og kransar eru afþakkaðir. Ég er í blogglægð þessa dagana og einkar ósáttur við lúkkið á heimasíðunni minni… ég fæ eiginlega ógeð í hvert einasta sinn sem ég sé þessa blásvörtu klessu! Þessa dagana vinn ég að nýrri og endurbættri heimasíðu sem mun lýsa upp aldir alnetsins.Þangað til, Góðar stundir.Aggi Homepage 17.10.04 – 1:19 pm #

Það eru 86 icon á Desktoppnum hjá mér

Held að það stýri aldrei góðri lukku að hafa slíkan fjölda af iconum á desktoppnum. Þetta er samt mjög lýsandi fyrir lífið mitt þessa dagana. Ég hef varla opnað bók í lærdómnum og er farinn að hafa verulegar áhyggjur af þessu öllu saman. Ekki það að ég nái prófum… ég næ alltaf prófum. Hvað á ég hins vegar að gera þegar ég er farinn að vinna í greiningardeild Íslandsbanka og þarf að leysa eitt einfalt tímatengt hagvaxtarproblem!? Ha, hvað þá!?

Nóg um það… enda er það seinni tíma vandamál. Var að ljúka við að prófarkalesa bókina góðu.. svo nú er bara eftir sveitt yfirseta með bróður mínum og myndavinna. Við höfum frekar ólíkar hugmyndir um notkun greinarmerkja í texta og höfum til að mynda rifist óheyrilega mikið um kommur! Ímyndið ykkur… að skrifa bók upp á 250 blaðsíður saman og rífast um kommur! Samt dæmigert fyrir okkur bræðurnar.

Annars brá ég mér úr karakter hins tortryggna vísinda-ofurtrúarmanns í dag. Fór í verslunina Yggdrasil og verslaði mér Burdock, sem er lífrænt kemikal fyrir húðina… ég hef semsagt gefist upp á hinum rannsökuðu læknisvísindum og hef snúið mér að vúdú-lækningnum. Konan sem afgreiddi mig spjallaði lengi vel við mig um að ég þyrfti að finna minn innri kjarna og mína innri ró. Lét mig fá nafnspjald hjá hómópata og sagði mér að leita á náðir hans. Ég er skeptískur, en það er aldrei að vita. Ég er orðinn svo gífurlega víðsýnn eftir banvænar uppákomur undanfarinna vikna.

new_mynd12.jpg
Það var mikið kvartað yfir því að ég hefði svo hrikalega auðvelt trivia í kvikmyndakeppninni minni. Hef því ákveðið að koma með eitt viðbjóðslegt skot úr mynd…
Snillingurinn sem áttar sig á þessari fær 2 stig!
Mér þykir leitt að vera ekki með linka á aðra. Það mun koma von bráðar í “Ég mæli með…”, en kemst ekki þangað allavegana alveg strax… skúsmí.

Gamla bloggkerfið var í gangi þegar ég færði þetta inn… Hérna koma kommentin:


Þetta er úr Braveheart!Andri 24.09.04 – 6:41 pm #

Nei… góð ágiskun samt! Þið fáið eina vísbendingu… fyrir vikið fæst bara eitt stig að vísu Myndin gerist að mestu leyti í Mexíkó og fjallar um hressan leigumorðingja.Aggi 26.09.04 – 2:20 pm #

Þetta er úr kvikmyndinni Happy hitman goes to Mexico Ásdís 26.09.04 – 3:58 pm #

Já…. samt ekki alveg. Ég segi nú bara eins og einn af asnalegu köllunum sem voru í Amsterdam-Bond-myndinni (hvernig er það, hétu þeir ekki báðir Mr Smith?): “If at first you don’t succeed, try try again” Aggi 26.09.04 – 8:12 pm #

Ég veit! Þetta er Hitman the Movie 2: Hitman goes to Mexico. Hvernig er það annars Agnar Freyr, eru menn bara að missa sig í töfralæknavísindin? Hvað varð um efasemdasegginn góða sem ég þekki svo vel? Hrafninn Homepage 27.09.04 – 12:03 pm #

Þrautseigjan borgar sig

Aldrei að gefast upp…eins og þessi upptalning um einn af stórlöxum mannkynssögunnar sannar.
1831: Gafst upp á rekstri fyrirtækis
1832: Bauð sig fram í stjórnmálum og tapaði
1834: Gafst aftur upp á rekstri fyrirtækis
1835: Missti unnustu sína
1836: Fékk taugaáfall
1838: Tapaði öðru pólitísku kapphlaupi
1843: Tapaði þingkosningum
1846: Tapaði þingkosningum
1848: Tapaði þingkosningum
1855: Tapaði kosningum til öldungadeildar
1856: Tapaði baráttu um varaforsetaembætti
1858: Tapaði kosningum til öldungadeildar
1860: Abraham Lincoln kosinn 16. forseti Bandaríkjanna
(var reyndar skotinn til bana árið 1865, en hvað um það!)

new_mynd1.jpg

Heyriði.. síðan er bara vonlaust að hafa einhverja kvótakeppni! Fólk getur bara fundið þetta út um allt á netinu! Því er ég kominn með nýjung… er með senu úr mynd og þið eigið að segja mér hver myndin er.
… þetta er að vísu mjög auðvelt núna.

Gamla bloggkerfið var í gangi þegar ég færði þetta inn… Hérna koma kommentin:

Þetta er Billy Bob Thornton að leika í The man who wasn´t there! Finnst að ég ætti að fá stigið núna því ég er ofurklár Stalkerinn ;) 22.09.04 – 6:11 pm #

Jæja… kominn nýr stalker! Hafði því miður enga fyrirvara um að stalkerar hefðu ekki þátttökurétt, svo ég verð að veita þér stigið Staðan er því æsispennandi á toppnum eftir 3 umferðir:Atli, Ragga og “Stalkerinn” komin með 1 stig hvert…Aggi 22.09.04 – 6:45 pm #

Klikkað stuð!

Já, það var heldur betur stuð á föstudaginn! Það ætlaði allt um koll að keyra hjá Ungum frjálslyndum… og ekki var stuðið minna á Nýnemaballi Röskvu á Hressó.. ó nei ó nei! Annars verður þetta blogg einstaklega efnislítið – vildi bara benda ykkur á myndir af kvöldina á nýju myndasíðunni minni. Hin er orðin smekkfull, svo ég er kominn með nýtt collection. Þar sem sumar myndanna eru verulega subbulegar hef ég ákveðið að vernda þær með lykilorði… þeir sem þekkja mig geta fengið aðgang með því að hafa samband!
En já, ég ætla að halda áfram með tilvitnun bloggsins. Kvennagullið hann Atli hefur tekið forystuna eftir 1. umferð, en ég býst við því að Andri og fleiri hljóti að veita honum harða samkeppni. Verður maður ekki að hafa einhver verðlaun? Jú… held að ég láti þetta standa til 20. desember og sigurvegarinn fær stórglæsilega bók um bestu knattspyrnulið Evrópu sem kemur út á næstunni. Ekki amalegt það!

En hér er tilvitnun bloggsins að þessu sinni:
Maður #1: Boy, that escalated quickly… I mean, that really got out of hand fast! Maður #2: It jumped up a notch! Maður #1: It did, didn’t it? Maður #3: Yeah, I stabbed a man in the heart! Maður #1: I saw that! Billy killed a guy! Did you throw a trident? Maður #3: Yeah, there were horses, and a man on fire, and I killed a guy with a trident! Maður #1: Billy, I’ve been meaning to talk to you about that. You should find yourself a safehouse or a relative close by. Lay low for a while, because you’re probably wanted for murder.

Þeir sem leita á náðir svindlsíðna brenna í helvíti!

Gamla bloggkerfið var í gangi þegar ég færði þetta inn… Hérna koma kommentin:

The anchorman!!! jíhaaaaaa þetta var ekkert sérlega tjallensing :pGI Jane 20.09.04 – 12:38 pm #

og bæ ðe vei, ég myndi alltaf hafa læst á myndasíður með fólki úr röskvu… sýnist þetta vera frekar subbulegt lið upp til hópa nema náttlega blómasölustúlkurnar, sést greinilega að þær eru af öðrum klassa múheheheheeheGI Jane 20.09.04 – 12:41 pm #

Hehe, já þú segir nokkuð Mér fannst þetta bara svo sjúklega fyndið kvót svo ég varð að hafa það! En ég lofa… ætla að hafa sick erfitt kvót næst…Aggi 20.09.04 – 1:43 pm #

Já, það er nú auðvelt að fara á imdb og fletta þessu upp. Ég treysti engum hérna.Andri 20.09.04 – 4:49 pm #

Já, ég veit… þess vegna ætla ég að finna eitthvað sjálfur næst… eitthvað sem finnst ekki á imdb… til dæmis:Maður #1: Hi there stranger.Maður #2: Hello.Eitthvað í þessum erfiðleikaklassa amk…Aggi 20.09.04 – 5:24 pm #

Ég vil fá lykilorðið til að geta skoðað myndirnar…. TakkSólrún 21.09.04 – 12:42 pm #

Ertu alveg snar! Gef það ekki upp hérna, það myndi verða banabiti minn!Aggi 21.09.04 – 1:42 pm #

ok man eftir þessu mómenti núna. En man hins vegar ekki eftir að hafa séð Pétur ???eva 23.09.04 – 4:03 pm #

Þú ert ekki ein um það!Aggi 23.09.04 – 10:04 pm

Lífshættulegt líf Agnars

Jæja, þá er nýnemablaðsdreifingunni lokið! Ég og Hrafn maestro vorum með allt Breiðholtið á okkar herðum og rumpuðum því af frá 21 til 02 á laugardagskvöldi… asskoti gott bara. Reyndar voru þetta ekki nema 130 blöð, en lúxus einbýlishúsin eru sum hver vel falin. Síðan þarf auðvitað að passa sig extra vel í “the projects”….

Það voru hins vegar ekki ghettóbörnin sem voru að hrella mig, heldur var Hrafn aðallega í því. Ég, sem sat aftur í til þess að hafa gott skipulag á allri skemmtuninni, sveiflaðist á milli hurðanna tveggja og rann eins og smjör eftir sætisbríkinni í hvert sinn sem kallinn fór heldur gratt í beygjurnar… Og ekki nóg með það! Kallinn keyrði lítið eitt yfir hælinn minn þegar ég stökk út úr bílnum einu sinni og bakkaði á mig í þokkabót! Síðan bakkaði hann nottla á staur, en það ku víst ekki teljast til tíðinda. Guði sé lof að ég sé kominn heim, heill á húfi!

En já… læt síðan fylgja með tilkynningu dagsetta 6. ágúst sl. af heimasíðu Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta. Sem eini fulltrúi Röskvu í lánasjóðsnefnd verð ég bara að viðurkenna að ég hef ekki heyrt neitt af þessum verkefnum hjá nefndinni… síðan kannast ég nú lítið við einhver fundarhöld, hvort sem er í ágúst eða fyrr í sumar…

“Eftir að háannatíma lauk hjá lánasjóðsnefnd eftir samningaviðræður við LÍN í vor hefur verið frekar rólegt í sumar. Nefndin þó hist af og til og rætt málin. Mikið verður að gerast í haust og mun lánasjóðsnefndin sjá um að skipuleggja nýnemavikuna og stúdentadaginn sem er árlegur viðburður í Háskólanum. Fundir munu fara af stað núna í ágúst og verður reynt að fá formenn nemendafélaganna með í þetta til að gera þetta sem skemmtilegast og eftirminnilegast. Svo er lánasjóðsdagurinn líka einn af hápunktunum á árinu hjá nefndinni og er stefnan sett á að halda hann fljótlega eftir áramót.”

Israel “IZ” Kamakawiwo’ole

Jæja, ég fór að kynna mér blessaðan manninn betur, sem syngur lagið svo eftirminnilega í auglýsingunni frá Umferðarstofu.

Hann heitir Israel Kamakawiwo’ole og er frá Hawai… lést að vísu fyrir 7 árum síðan, þá 38 ára gamall. Hann er vinsælasti tónlistarmaður Hawai fyrr og síðar og er diskurinn hans “Facing Future” frá 1993 vinsælasti diskur sem gefinn hefur verið út í Hawai… en jæja, dánarorsökin… erfðasjúkdómur tengdur offitu sem bæði faðir hans og bróðir létust vegna… og þyngdin… hann var 360kg þegar hann lést! Læt eina mynd af honum flakka með…

new_iz.jpg

En jæja… ég fór í leiðangur að leita að tónlist eftir kappann í plötubúðum borgarinnar, en enga diska er að finna. Leitaði því rösklega á netinu en fann ekkert… kíkti þá á hið ágæta DC++ og fór á erlendan server (þið sem ekki skiljið neitt í neinu verðið bara að fyrirgefa tæknihjalið…) og fann loksins einhver 11 lög með IZ á sænskum server… herra [BBB]bgd átti þau.

Nú jæja, ég fékk leyfi hjá honum til að fá “extra slot” og dánlóda lögunum… en þá kom babb í bátinn. Kappinn var stilltur á passive og ég er líka passive.. og eins og öll mannanna börn á Norðurhveli jarðkringlunnar vita þá getur passive-náungi ekki dánlódað frá öðrum passive…

Nú voru góð ráð dýr. Eftir töluverðan umþóttunartíma brá ég á það ráð að auglýsa eftir góðhjörtuðum active (andstæðan við passive) einstakling sem var tilbúinn til þess að vera milliliður.. dánlóda semsagt frá hinum náunganum og svo leyfa mér að dánlóda frá honum…

Í hinum harða internetheimi bjóst ég hins vegar alls ekki við að finna svo góðhjartaða manneskju… en viti menn! Væskilslegur sænskur unglingspiltur sem kallaði sig [gavlenet]AsphaltCowboy var svo góður að sækja öll lögin fyrir mig.. vesenast eitthvað við að stilla þau inn hjá sér og senda mér þau svo!

Þessar huldu hetjur eiga mínar bestu þakkir fyrir góðmennskuna.

Ég er hins vegar öllu vanur í hinum harða heimi markaðarins og stunda ekki slíka góðmennsku. Diskar með IZ verða til sölu hjá mér á 2000 krónur stykkið.

Neee….. segi svona ;)

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Easy Does It (5):

    Ég er með forrit í símanum sem er svona hlaupaforrit og meira að segja telur skrefin og... (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Jamm, og ef þú nálgast Android eða iPhone síma útí USA þá mæli ég klárlega með Runkeeper. Ég ELSKA... (Skoða)
  • Aggi um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á Nike+… þarf klárlega að græja mig upp með því! (Skoða)
  • Andri um Easy Does It (5):

    Sjá tólin fyrir jólin! (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á þetta. Prógrammið, sem að ég lét þig fá er þó ekki jafn erfitt og þú heldur.... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar