Draumur um Nínu
Nú eru liðin rúm tvö ár frá stórbrunanum hér í Strandaselinu. Lífið hefur gengið sinn vanagang síðan þá – erjur um stolinn þvott, bilaða þvottavél, lélega umgengni um þvottaherbergið og nýja útlendinginn sem kann ekki á þvottavélina hafa tröllriðið öllu. Jú, vissulega er það móðir mín sem á upptökin að öllum þessum erjum… enda virðist þetta þvottahús vera orðið að einhverskonar undarlegri þráhyggju hjá henni. Steininn tók þó úr þegar hún kom inn í herbergi til mín áðan, alveg spinnegal yfir nýju útlensku stelpunni í hinum stigaganginum, sem kunni ekki á þvottavélina. Móðir mín, sem talar ekki stakt orð í ensku, þurfti á hjálp tungumálasnillingsins til að eiga samskipti við sökudólginn.
Eftir þó nokkuð gjamm samþykkti ég að fara niður og túlka. Þegar ég mætti niður sat þar fönguleg bresk snót sem skildi ekkert í æðiskenndum hrópum móður minnar. Ég útskýrði klemmuna fyrir henni.. sem ég nenni ekki að útskýra hérna. Stúlkan var hin blíðasta og fékk alla mína samúð enda hafði kellingin sem kynnti hana fyrir þvottavélakerfinu ekki haft fyrir því að kenna henni á þetta… móðir mín var hins vegar öskuvond og krafðist svara. Ég ákvað að besta leiðin til að sætta sjónarmið þeirra væri að mistúlka… það er að segja, stunda skapandi hugsun. Móðir mín gekk sátt í burtu og sú breska líka – problem solved!
Annars hafa aðdróttanir Nínu í minn garð aukist nýlega. Fyrir þá sem ekki þekkja Nínu skulum við grípa niður í pistil frá 7. mars 2003 af strandasel5.tk blogginu mínu sáluga.
“Niðurstöðurnar úr fyrstu skoðanakönnun Strandasels5.tk eru komnar úr kjörkössunum! 89% kjósenda töldu það vænlegast fyrir mig að kveikja aftur í hjá henni Nínu og er aldrei að vita nema maður láti af því verða á næstunni. Það fer nú að styttast í eins árs afmæli brunans stóra hérna í Strandaseli 5, en fyrir þá sem ekki vita, þá sofnaði nágrannakonan upp í rúmi með sígarettu og brenndi næstum því höllina ofan af okkur öllum! Það var að minnsta kosti ástæðan sem lögreglan fékk að heyra… Nína hélt ætíð fram sakleysi sínu og var hún óhrædd við að benda á sökudólginn – mig! Og ég hef nú gert meira á hlut hennar… Lögreglumál hafa orðið úr ýmsu, svo sem stuldi mínum á lyfjum hennar og fjölmörgum símhringingum mínum til útlanda úr símanum hennar. Einnig vakti hún máls á því að einhverntímann hefði ég brotist inn til hennar og ruglað öllum stöðvunum á sjónvarpinu hennar. En allavegana, þetta eru þakkirnar sem ég fékk fyrir að slökkva bálið inni hjá henni af þvílíkum hetjuskap – braust inn í reykmettaða íbúðina (ásamt tveim öðrum að vísu) og réð niðurlögum eldsins á meðan hinir tveir drógu kellinguna út úr íbúðinni, skaðbrennda og hálf rænulausa af reykeitrun.”



En jæja, hún virðist vera gengin á lagið aftur. Í gærkvöldi dustaði hún gólfið fyrir framan íbúðirnar okkar af áfergju og sakaði mig um sóðaskap… skellti síðan hurðinni kröftuglega í andlitið á mér. The drama continues…
Gamla bloggkerfið var í gangi þegar ég færði þetta inn… Hérna koma kommentin:
Það er gaman að þessu, þetta er eins og sápuópera. Líf með Agga.Andri 02.09.04 – 12:54 am #
Já, þvottahúsdramað er að koma sterkt inn. Síðan stendur Nína alltaf fyrir sínu. Segi ykkur kannski einhverntímann frá honum Gunna, sem átti heima á neðstu hæðinni.. það var ekki að ástæðulausu að ég skrifaði sakamálasögu um hann í 12 ára bekk!Aggi 02.09.04 – 3:04 am #
heyrðu nú mig drengstauli!! ég bið guð að vera með þér og hjálpa þér að sjá ljósið og nýjan veg þar sem þú hættir að hrella gamlar konur. svo vil ég ekki hafa það að þú sért að klifra hérna yfir á svalirnar mínar að kíkja á mig skipta um undirbuksur og leista! fusssumsveiattanNína 02.09.04 – 2:05 pm
