Færslur frá nóvember 2004

Verður stýrifræðin mér að falli?

Ég er að fara í próf eftir 40 mínútur.

Ég er ósofinn eftir að hafa vaknað klukkan 07.00 vegna öndunarerfiðleika. Kokið alveg uppblásið vegna 2cm lóðrétts skurðs þarna einhversstaðar… hugsanlegar ástæður óskast.

Síðan er ég auðvitað ekki búinn að borða neitt…. enda er það óbærilega vont.

Og einbeitingin er slík að ég er bara að leika mér í þessu. Ég er by the by búinn að ná 17 af 26…

Gott og vel. Stýrifræði- og breytileikareikningspróf bíður mín.

Af draumförum og NBA-ósigrum

Jæja, ég reyndi að blogga í gærkveldi en fjandans blogger ákvað að éta bloggið mitt tvisvar! Ég nennti ómögulega að pikka þetta upp í þriðja skiptið ? efnið var líka frekar rýrt: Djamm helgarinnar, James Bond og jólabækurnar í ár. Ekkert þema í þeirri færslu.

En já, mig dreymdi alveg kostulegan draum í nótt. Til að koma með smá intro: Ég var gífurlegur stuðningsmaður Charles Barkley og Phoenix Suns í NBA körfuboltanum á mínum yngri árum. Barkley þessi er einn stórkostlegasti körfuknattleiksmaður og karakter sem NBA deildin hefur getið af sér, en náði því miður aldrei að vinna NBA-titilinn. Næst komst hann því árið 1993, þegar Suns mættu Chicago fjandans Bulls í úrslitaleikjarimmu deildarinnar, en Bulls vann þá rimmu 4-2. Síðasta leiknum lauk á heldur bitran hátt fyrir okkur Suns-menn… John nokkur Paxton sökkti þá þriggja stiga skoti fyrir Bulls á síðustu sekúndum leiksins og í kjölfarið klúðraði Kevin Johnson síðustu sókn Suns (hvers vegna fékk Barkley ekki boltann?!) og titillinn fór til Chicago í þriðja skiptið í röð… ég grét mig til svefns þessa nótt.

Nú jæja, svo við höldum aftur til samtímans. Mig dreymdi þennan leik semsagt í nótt… nema hvað tveir fréttamenn voru í stúdíói stöðvar 2 hérna heima og einn hafði verið sendur út til Bandaríkjanna til að lýsa leiknum þaðan. Þetta væri ekki í frásögur færandi nema vegna þess að maðurinn sem var að lýsa leiknum í BNA var enginn annar en Davíð Oddsson, á meðan heimalýsendurnir voru Snorri Sturluson (sem er aktjúalli íþróttafréttamaður) og Jón Baldvin Hannibalsson. Mér fannst svosem ekkert athugavert við þetta í draumnum nema þegar að ég endurupplifði stundina þegar Paxton sökkti þristinum undir lokin… þá fannst mér framganga Davíðs vera gjörsamlega út í hött…. Maðurinn öskraði og öskraði: ?Chicago Bulls er að vinna leikinn!? og í kjölfarið á því: ?Chicago B-U-L-L-S er orðið NBA-meistari!?… hann stafaði semsagt B-U-L-L-S staf fyrir staf.

Af einhverjum ástæðum skipti sjónvarpsstöðin skyndilega í stúdíó stöðvar tvö þar sem Snorri og Jón Baldvin sátu. Tárin streymdu niður kinnar Jóns og hann hristi bara hausinn yfir þessu öllu saman… Ég man að mér fannst þetta virkilega óprofessional af Davíð.

Ég vaknaði svo fljótlega eftir þetta enda hundfúll… ég held að öll þessi stjórnmálaþátttaka mín sé gjörsamlega að steikja hausinn á mér.

Hér er blogg um blogg frá bloggi til bloggs

Hvað er blogg? Til hvers bloggar maður? Af hverju í ósköpunum?

Kenning #1. Blogg er dagbók… vefdagbók. Sem slíkt er það ómögulegt. Maður verður stöðugt að ritskoða sig og neyðist til að sleppa öllum djúsí sögum. Fyrir vikið verður bloggið ekkert nema samsuða óáhugaverðra atburða, á borð við sögur af kvöldverði hjá ömmu gömlu eða þaðan af verra. Þó gæti maður nottla látið allt flakka. Sumir gera það… láta bara allt vaða. Það kann hins vegar ekki góðri lukku að stýra. Þeir einstaklingar sem tileinkað hafa sér þann bloggstíl eru gjarnan stimplaðir sem gelgjur, nú eða þá að þeir eru útskúfaðir sökum pervertísks lífsstíls.

Kenning #2. Blogg er samsuða skemmtilegra greina og pælinga. Ég kann best við þennan bloggstíl. Ég hef því miður ekki getað tileinkað mér hann sjálfur, þar sem ég fell oft í einhverjar vitleysis gryfjur… á borð við það að tala um hversdagsleika lífs míns. Þessi stíll býður hins vegar ekki upp á örar uppfærslur, þar sem það krefst ákveðinnar ritsnilli að afkasta miklu á sviði skrifa… sem skrásetjari knattspyrnuheimilda hef ég ekki heldur fundið mig að því leytinu.

Kenning #3. Blogg er gluggi inn í ævintýralegt líf manns. Þetta á best við um einstaklinga sem eru erlendis í námi eða vinnu og leyfa vinum og vandamönnum heima að fylgjast með hvernig gengur. Í upphafi fannst mér þetta einmitt vera megintilgangur bloggs. Á mínum yngri árum neitaði ég að blogga og fannst það bara plebbalegt… ef maður var ekki í útlöndum þá var blogg bara hégómlegt fyrir mér ? hvers vegna er líf mitt svo sérstakt að ég geti verið að segja frá hversdagslegu lífi mínu og ætlast til að fólk lesi röflið? Stórmerkilegt alveg… En gott og vel, ég hef stundum rangt fyrir mér. Á sínum tíma sór ég til dæmis dýran eið um að ég myndi aldrei nokkurn tímann fá mér gemsa…. hélt að þetta væri bara eins og hvaða tískubylgja sem myndi þjóta yfir. Ég er nefnilega merkilega íhaldssamur miðað við hvað ég er frjálslyndur…

Kenning #4: Blogg er tískufyrirbæri sem mun ganga yfir. Það er alveg staðreynd að bloggið er á undanhaldi… helmingurinn af gamla blogglinkalistanum mínum er gjörsamlega óvirkur… stórtækir ritsnillingar á borð við Andra, Gumma, Magga, Pésa rokk, Völu Bjé, Gréssa, Helgu Try, Dísu Norðfjörð og Ingu slyngu… allt er þetta fólk búið að gefast upp. Hvað segir það manni? Er framtíðin í gær?

Á öðrum nótum… tískulega séð, væri það skynsamlegt að fjárfesta í pottloki… mig hefur ætíð dreymt um að spóka mig um Háskóla Íslands með köflóttan sixpencer.

Og já… er einhver annar í rusli yfir framgöngu hennar Shandi!? Ég trúi þessu bara ekki.

Hasta la vista,
Aggi

E.S. Þessar tvær síðustu spurningar hjá mér… hvers konar blogg er þetta eiginlega?

Höfuðverkur

Rakst á eftirfarandi þraut… eins og ég er, þá þoli ég ekki óleystar gátur og hætti ekki fyrr en ég klára þær! Þessi tók að vísu 20 dýrmætar mínútur frá skólabókunum… Endilega, gerið ykkar besta. Svarið kemur innan tíðar!

This quiz is supposed to have been written by Einstein. He said that 98% of the people in the world cannot solve the quiz. Could you be among the other 2%?

There are 5 houses, each is a different colour

In each house lives a person of a different nationality.

These 5 owners all drink a certain beverage, smoke a certain brand of cigar and keep a certain pet.

No owner has the same pet, smokes the same brand of cigar or drinks the same drink as another owner.

1: The Briton lives in a red house.
2: The Swede keeps dogs as pets
3: The Dane drinks tea
4: The green house is on the left of the white house (they are also next door to each other)
5: The green house owner drinks coffee
6: The person who smokes Pall Mall rears birds
7: The owner of the yellow house smokes Dunhill
8: The man living in the house right in the center drinks milk
9: The Norwegian lives in the first house
10: The man who smokes Blend lives next to the one who keeps cats
11: The man who keeps horses lives next to the man who smokes Dunhill
12: The owner who smokes Blue Master drinks beer
13: The German smokes Prince
14: The Norwegian lives next to the blue house
15: The man who smokes Blend has a neighbor who drinks water.

The question is: WHO KEEPS FISH?

…og reikniði nú!

Skellt í lás og tveir erótískir dansarar

Jæja, ég lýsi gífurlegri svallhelgi minni lokið hér með! Hóf partýið á föstudaginn þegar ég mætti á lokakynningu á verkefnum allra í Viðskiptahugmyndanámskeiðinu mínu. Hún var í gangi frá 13 til 17 og var minn hópur næst seinastur… sem kom sér bara ágætlega. Við Torfi, Dísa og Irene rúlluðum dæminu gjörsamlega upp held ég, enda sló hugmyndin okkar gjörsamlega í gegn! Við tókum þetta nottla alveg gífurlega alvarlega ? létum hanna lógó, heimasíðu, sölumöppu og bæklinga fyrir okkur, sem impressaði dómarana frekar mikið… Heimasíðan er á slóðinni: http://www.riverhillresort.com/ …við fengum mikið lof fyrir alla úrvinnslu og þannig og held ég að við eigum allavegana pinku séns á verðlaunum í keppninni sem Landsbankinn stendur fyrir… Landsbankinn sponsorar semsagt námskeiðið og fær besta áætlunin 300.000 kall í verðlaun! Við sjáum hvað setur með það.

Nú jæja, Lansarinn spreðaði að sjálfsögðu í slatta af bjór og var ég að sjálfsögðu einn sá síðasti út úr hús… fór þegar bjórinn kláraðist. Nú jæja, við tók ógleymni á Pravda sem stóð langt fram eftir nótti og lauk henni með frekar slöppum sófasvefni.
Hvað um það, vaknaði uppúr 10, sótti bílinn minn af réttingaverkstæðinu (húrra fyrir því… mér var farið að finnast Yarisinn vera fínn, en þegar maður komst aftur á glæsikerruna sína þá hurfu allar slíkar pælingar), skellti mér í sturtu og fór með farti á málefnadag Röskvu.

Gekk fínt og hafði mjög gaman að, en skaut mig að vísu nokkrum sinnum í fótinn með vafasömum (en góðlega meintum) athugasemdum. Nú jæja, deginum lauk rétt fyrir sex… þaut í Ríkið í Kringlunni, og var bókstaflega síðasti viðskiptavinurinn sem var hleypt inn… hjúkket!

Sprellið hófst svo rétt fyrir 20… dinner & djamm a la Röskva, eins og best gerist! Maturinn alveg frábær, skemmtiatriðin brilliant og magnað tónlistaratriði… ég segi nú bara kúdós fyrir skipuleggjendunum!

Við stigum annars trylltan dans fram eftir kvöldi… ég sætti stöðugra skota af hendi ýmissa spéfugla, sem vildu meina að ég myndi ekki endast fram yfir miðnætti… ó sei ó sei, þeir höfðu sko rangt fyrir sér!

Ég hvorki meira né minna en skellti í lás á partýstaðnum þegar við yfirgáfum hann og leiddi hersinguna á Celtic Cross þar sem hitnaði heldur betur í kolunum… eftir nokkur vel sveitt lög tyllti ég mér eitt augnablik á stólgarm…það væri nú ekki í frásögur færandi nema vegna.. andskotans! Newcastle að jafna!… en já, það væri nú ekki í frásögur færandi nema útaf því að skömmu eftir að ég settist koma tveir FM-legir gaurar og fóru að dansa við stólinn minn… og þeir létu það ekki nægja. Á meðan annar þeirra tyllti sér á hægra lærið mitt fór hinn að nudda sér utan í vinstri löppina mína og ég fór smám saman að átta mig á því, að þetta væri nú kannski ekki alveg normalt. Ég er nú gífurlega mikill rólyndismaður á djamminu og ætlaði ekkert að fara að efna…. United komið yfir!!!… já, ég ætlaði ekkert að fara efna til einhvers vesens, þrátt fyrir gróflegt framferði þeirra, svo ég forðaði mér undan þeim (sem var reyndar frekar erfitt, þar sem þeir ætluðu ekkert að sleppa mér) og Röskvuhersingin sem var á staðnum sló bara skjaldborg utan um kallinn… en ekki hvað! Afskiptum mínum við þá var þó ekki lokið… hitti þá að máli skömmu síðar og þar tjáðu þeir mér að þetta væri falin myndavél fyrir popptíví! Satt best að segja veit ég ekki alveg hvað ég á að halda… lýsingin þarna var glötuð og ég sá ekki neina myndavél á svæðinu, en þetta var hins vegar svo hrikalega súrrandi athöfn hjá þeim að þetta gæti verið satt hjá þeim… ég ætla allavegana að horfa á lokaþátt 70 mínútna í næstu viku… þeir tjáðu mér að þetta yrði sýnt þá. Svona “just in case…”

En já… gott og vel. Ég held að ég hafi höndlað þetta afar vel, miðað við allar aðstæður! Varð annars hálf stjarfur eftir actionið og sat nokkurn veginn það sem eftir lifði af kvöldinu við miklar óvinsældar ónafngreindra aðila… ég kann þeim bestu þakkir fyrir að reyna að ná mér úr sjokkinu…

Það fór þó vitanlega svo að kvöldinu þurfti að ljúka… hvorki fyrr né síðar en 04:10, takk fyrir kærlega! Take that Kristó! Heyriði jú, ég komst reyndar að því áður en ég fór heim að ég væri kannski bara alveg ágætur náungi… já, alltaf kemst maður að einhverju nýju.

Já, ég þakka bara pent fyrir mig…

P.S. Það er ekki úr vegi að benda fólki á að kíkja í laugardagsdagblaðið… Bróðir minn, hann Brói, á hvorki meira né minna en versta bókatitilinn í ár! Dengsaslagorðið “Alltaf í boltanum” var ekki að heilla fagurkerana… eins og ég hafði réttilega bent honum á. Bróðir minn er hins vegar hinn ánægðasti með þetta… hið fornkveðna: “there’s no press, like bad press”, gildir víst líka í bókabransanum.

Heimskulegasta mynd allra tíma!

Guð minn góður! Ákvað að líta upp úr bókunum eitt stundarkorn í kvöld enda fékk ég frítt í bíó á hina all svakalegu mynd “The Forgotten”. Myndin skartar marg verðlaunuðum leikurum á borð við Julianne Moore og Gary Sinise, svo ég bjóst nú við ágætis skemmtun. En ó boj ó boj…

Þessi mynd er einfaldlega ein sú vitlausasta sem ég hef séð… þar með talin “Dude, where’s my car?”! Plottið er gjörsamlega fráleitt… þrátt fyrir að myndin byrji ágætlega og lofi góðu þá fer gjörsamlega botninn úr myndinni um miðja mynd… Það komu að vísu nokkur ágætis “bregðu-atriði” en eftir því sem líða fór á myndina og atriðin urðu heimskulegri og heimskulegri (og fráleitari) þá var hálfur salur eiginlega bara farinn að hlæja að þeim… vitleysan var svo yfirdrifin.

Álit manns á myndum tengist alltaf því með hvaða hugarfari maður horfir á hana… ég bjóst til dæmis við einhverri kjaftæðis macho mynd þegar ég fór á Gladiator.. og þótti hún svo alveg stórkostleg.. og hún varð í rauninni þeim mun betri fyrir mér, því ég bjóst við svo litlu.. if you catch my drift.

Að sama skapi fór ég ekki með neinar væntingar á “Dude, where’s my car?”. Jú, hún var vissulega viðbjóðslega vitlaus, en maður fékk það sem maður átti von á… pakkningarnar voru ekkert að ljúga að manni.

En umbúðir þessarar myndar gera það svo sannarlega! Þegar maður heldur að maður sé að fara að horfa á alvörumynd, en lendir síðan á hrikalegri bullmynd sem er varla heil brú í, þá verður maður virkilega pirraður… og það bitnar nottla á dómnum á myndinni…

Mér er næst lagi að upplýsa ykkur um endinn til að eyðileggja myndina fyrir ykkur… þá þurfiði ekki að eyða tveim klukkustundum í hana og einhverjum hundraðköllum… ég ætla hins vegar ekki að gera það. En þið hafið verið vöruð við!

Að undanskildu einu mjög töff atriði, þá er þessi mynd gjörsamlega ömurleg… í miðri mynd fór maður að velta því fyrir sér hvort að þetta væri ekki bara einhver tilraun hjá handritshöfundinum.. “Hvað ætli ég komist upp með að skrifa mikla vitleysu á blaðið?”

Nema þá að allir sem komu að myndinni hafi verið útúrdópaðir ALLAN tímann og þótt þetta bara afbragðsmyndefni… jafnvel Oscar material. Það hlýtur að vera einhver ástæða fyrir þessum óskapnaði… hví, ó hví var þessi mynd framleidd?

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Easy Does It (5):

    Ég er með forrit í símanum sem er svona hlaupaforrit og meira að segja telur skrefin og... (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Jamm, og ef þú nálgast Android eða iPhone síma útí USA þá mæli ég klárlega með Runkeeper. Ég ELSKA... (Skoða)
  • Aggi um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á Nike+… þarf klárlega að græja mig upp með því! (Skoða)
  • Andri um Easy Does It (5):

    Sjá tólin fyrir jólin! (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á þetta. Prógrammið, sem að ég lét þig fá er þó ekki jafn erfitt og þú heldur.... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar