Fjandinn hafi drusluna sem ég fékk í staðinn fyrir Polo-inn minn! Polo-inn fór á réttingaverkstæði í dag og í staðinn borguðu tryggingarnar Yaris smábíl fyrir mig á meðan… og jesús pétur! Í fyrsta lagi þá er bílinn gjörsamlega óhljóðeinangraður, í öðru lagi eru aksturseiginleikarnir ómögulegir, í þriðja lagi er kúplingin léttari en fjöður, í fjórða lagi eru græjurnar með verri hljóm en dósahátalararnir á fartölvunni minni og svo mætti endalaust telja.
Annars hefði þetta aldrei gerst á gömlu mözdunni minni. Hún brást aldrei og enginn vogaði sér að dælda hana, ó nei. Hvers vegna, kæru vinir, leyfðuð þið mér að selja hana?
Polo-inn er svo sem ágætur til síns brúks, segi það ekki. Það er hins vegar engin lífsreynsla að keyra hann… aldrei nokkurn tímann myndi ég fara út á honum til að rúnta! Síðan bilar hann örugglega bara meira en Mazdan… og hún var ’88 árgerð! Ég vona innilega að strákurinn sem keypti hana af mér hafi tekið mig alvarlega þegar ég bað hann um að hringja fyrst í mig þegar hann ætlaði að selja hana…
En jæja, nóg um það. Þórólfsmálinu er að lægja. Las stuðningsyfirlýsingar frá Guðmundi Árna og Gunnari Erni til Þórólfs í sunnudagsmogganum og var innilega sammála þeim. Þeir hafa svo sannarlega gert sín mistök og fengið að gjalda fyrir þau… slíkir menn eru kannski einna marktækastir akkúrat í þessu máli… Ég legg að minnsta kosti frekar við hlustir þegar þeir tjá sig um málið heldur en þegar siðapostularnir fordæma manninn úr hásætinu sínu… Þeir eru margir hverjir svo sannarlega að kasta steinum úr glerhúsi. Vonandi sjá Vinstri grænir ljósið og hætta að pressa á uppsögn Tóta.
Annars er ég að drukkna í lærdómi þessa dagana. Er semsagt í fimm áföngum: Stærðfræði 3, Tölfræði 2, Fjármálum 1, Viðskiptahugmyndum og Þjóðhagfræði 2. Er að leggja lokahönd á viðskiptahugmyndaverkefnið í þessari viku og mun kynna það næstkomandi föstudag (kynningin gildir 20%, verkefnið 80%). Þjóðhagfræðin gengur ágætlega – mæti alltaf í tímana og hef gaman að. Hinir þrír áfangarnir eru hins vegar öllu verr staddir.
Ég hef mætt í flesta dæmatímana í Stærðfræði 3, en hef hins vegar ekki séð mér fært að mæta í fyrirlestur klukkan 8 á þriðjudagsmorgni enn sem komið er. Náði sem betur fer að redda mér glósum úr öllum fyrirlestrum vetrarins rétt áðan, en þarf hins vegar fyrir vikið að fara mæta í restina af tímunum! Það er nú líka nauðsynlegt ef ég hyggst ná áfanganum.
Ég hef mætt afar sjaldan í dæmatíma í Tölfræði 2 og aldrei nokkurntímann látið sjá mig í fyrirlestri klukkan 8 á mánudagsmorgni (common I have a life!)! Það mun koma í ljós hvernig mér vegnar í prófinu…´
Og síðan eru það Fjármál 1… fallfagið mikla. Ég hef ekki ennþá heiðrað kennarann og nemendurnar með nærveru minni – hvorki í fyrirlestrum né dæmatímum. Ég hef líka látið það ógert að opna bók. Prófið er eftir sléttan mánuð.
Þessi prófatíð verður því eins og allar aðrar prófatíðir mínar í Háskólanum. Frumlestur, svitaböð , ógleði, efasemdir um ágæti mitt og stefnu í lífinu og svo framvegis og svo framvegis.
Frábært alveg.
Annars ætla ég semsagt að stefna á það að vakna klukkan 07 í fyrramálið og mæta í fyrirlestur í stærðfræði. Í morgun fékk ég yndislegt SMS af netinu.. það hljóðaði svo: “Til hamingju! Þú hefur verið dreginn úr pottinum hjá okkur og hefur unnið þér inn vakningarsms í viku!”
Skilaboðin komu frá ónafngreindum aðila.
Þetta kemur sér svo sannarlega að góðum notum! Ég á einstaklega erfitt með að vakna á morgnana og þarf alla þá hjálp sem þið getið veitt mér! Svo ef þú, lesandi góður, verður vaknaður fyrir klukkan 7.30 á morgun þá máttu gjarnan senda mér sms í s. 690-9082 og hvetja mig til dáða!
Þitt SMS skiptir máli!