Ég hef verið klukkaður
Þrátt fyrir að mig gruni sterklega að þetta æði hafi byrjað á www.folk.is/gelgjan90 þá ætla ég nú samt að láta slag standa og verða við klukkinu…here goes:
1) Þegar ég var yngri langaði mig mest af öllu að verða geimfari. Ég ól þann draum innra með mér… þangað til að ég komst að því að geimfarar mega ekki vera yfir 180 cm. Þá var sá draumur úti.
2) Í gegnum tíðina hef ég æft badminton, körfubolta, handbolta, fótbolta og skák. Sem markmaður náði ég ágætum árangri bæði í fótboltanum og handboltanum, en ég var samt sigursælastur í skákinni… ég er hvorki meira né minna en fjórfaldur skólameistari í skák.
3) Ég hef gefið út fjórar bækur um knattspyrnu með bróður mínum og sú fimmta er á leiðinni. “Chelsea 1905 – 2005: Frá feita Willy til Eiðs Smára Guðjohnsen”… check it out.
4) Uppáhaldspersónan mín í Simpsons hefur alltaf verið Mr. Burns… hann er bara svo æðislegur karakter.
5) Ég á afar nútímalega fjölskyldu: Þrjár hálfsystur, einn hálfbróður og eina fóstursystur. Síðan er pabbi minn kominn á eftirlaun… og pabbi hans var flugmaður í bandaríska hernum… ekki amalegt það!
Jæja, ég vona að þetta hafi verið fullnægjandi. Mér skilst að ég eigi að halda klukkinu gangandi og hyggst ég gera það með nýstárlegum hætti… ég klukka eftirfarandi fólk og hvet það um leið til að byrja að blogga: Anna Pála, Eva, Maggi Már, Láru Jónasar og Tinnu Mjöll.
Megi Guð vera með ykkur.
