Hvers vegna í ósköpunum er það þannig að þegar tvö almenningsklósett eru hlið við hlið, að þá er annað þeirra merkt sem karlaklósett og hitt sem kvennaklósett? Þetta er til dæmis mjög vinsælt hérna á Háskólasvæðinu. Tökum Bókhlöðuna sem dæmi – tvö nákvæmlega eins klósett sitthvorum megin við stigann… tvö nákvæmlega eins klósett inn af lesrýminu. Samt er annað merkt sem karla og hitt sem kvenna. Ég held að þetta sé útaf einhverri sjúklegri merkiþörf arkitekta – skipulagið þarf að vera svo öfgafullt. Þetta hefur hins vegar EKKERT praktískt notagildi – ég hunsa þessar merkingar og pissa jafnmikið útfyrir á báðum klósettum. Ég set samt setuna alltaf niður… annað væri dónaskapur.