Spennandi tími
Ég sit hérna í bullandi súrum tíma með tvífara Sean Penn, Sasa Andonov. Að segja að hann væri líkur leikaranum væri veik fullyrðing… hann er nákvæmlega eins og maðurinn! En já, hann er að rabba við okkur í hressleika um áhættustjórnun í bankakerfinu.
Að því tilefni legg ég fyrir ykkur þraut: Á skákborði eru 8 menn. Hvíti kóngurinn er á H2, svarti kóngurinn er á H8, þrjú hvít peð eru á A5, B5 og C5 og þrjú svört peð eru á A7, B7 og C7. Hvítur á leik – getur hann komið peði upp í borð og unnið skákina án þess að svartur geti komið neinum vörnum við?
