Kóngurinn lengi lifi!

Ég óska lesendum mínum nær og fjær farsældar á nýju ári og þakka þeim fyrir lesturinn. Yfir og út þangað til 2006.

Ég óska lesendum mínum nær og fjær farsældar á nýju ári og þakka þeim fyrir lesturinn. Yfir og út þangað til 2006.
Ég var frekar þreyttur eftir vinnu í dag. Fór heim og lagði mig því…sagði mömmu að hringja klukkan 18, svo ég vaknaði örugglega til að fara með hana í matvörubúð. Jú, síðan var einhver fundir klukkan 20 sem ég átti að mæta á.
En neinei, ég svaf bara eins og steinn og var að vakna rétt áðan… búinn að sofa í tæpar 10 klukkustundir og enginn ENGINN hefur haft samband og tjékkað á mér. Mjög svo undarlegt.
Annars var mig að dreyma að ég væri mættur á handboltaleik ÍBV og ÍR í Eyjum. Af einhverjum ástæðum fjölmenntu borgarstjórnarframbjóðendur á leikinn og Ólafur F. Magnússon, þá nýgenginn til liðs við Samfylkinguna, tók til máls og tilkynnti að það kæmi ekki til greina að færa flugvöllinn úr Vatnsmýrinni. Þá öskraði einhver dyggur stuðningsmaður úr bakröðinni: “Það er aldrei hægt að treysta þessum frjálslyndu – var ekki búið að ræða þetta!?”
Síðan strax eftir það tók við próf, sem ég var ekki búinn að læra fyrir. Man að það var handskrifað og ég skildi hvorki upp né niður í því. Vaknaði einmitt upp við þá ónotatilfinningu.
Huggaði mig þó fljótlega við það að ég er búinn að fá fyrstu einkunnina mína… haldiði ekki að kallinn hafi tekið níuna í vinnumarkaðshagfræði!
Takktakk.
Hver er annars venjan þegar maður vaknar svona um miðja nótt, glaðvakandi? Á ég að reyna að fara sofa aftur? Eða…
Það fer ekki mikið fyrir kommentum við færslur mínar í þessum mánuði. Miðað við vefmælingartólin sem ég greiði fúlgur fjár fyrir koma þó að jafnaði um 40 “unique visitors” á hverjum degi og valda um 50-60 “page hits”. Í ljósi þessa talna get ég ekki annað en dregið þá ályktun að það sé litlu sem engu að bæta við færslurnar mínar – þær eru einfaldlega fullkomnar eins og þær standa og lesendur draga þá ályktun að athugasemd frá þeim myndi virka hjákátleg við hlið slíks meistaraverks.
Eintalið verður þó leiðigjarnt til lengdar og hef ég í þeirri viðleitni ákveðið að skella inn einni gagnvirkri færslu, en neðangreindur leikur ku vera það heitasta á netinu síðan “klukkin” fóru eins og eldur um sinu netheimsins. Ég hef þó reynt að draga eins og frekast er hægt úr gelgjuskap og setja smá edge í þetta.
Framkvæmdin er einföld, þú skráir einfaldlega nafn þitt í komments, og bíður svo í ofvæni eftir svari frá mér við neðangreindum spurningum.
1. Ég segi þér frá fyrstu ljósu minningunni minni af þér.
2. Ég segi þér hvaða kvikmynd minnir mig á þig.
3. Ég segi þér hvaða bíll minnir mig á þig.
4. Ég segi þér hvar þú verður eftir 10 ár.
5. Ég spyr þig að einhverju sem mig dauðlangar að vita.
Sérhagsmunir: Einkahagsmunir hóps, sem gjarnan er í minnihluta í þjóðfélaginu og genga þvert á hagsmuni þjóðfélagsins í heild.
Dæmi: Hagur bænda af því að viðhalda tollum og höftum á viðskipti með landbúnaðarvörur gengur þvert á hagsmuni landsmanna.
Sérhagsmunagæsla: Að gæta hagsmuna sérhagsmunahóps.
Áhrif sérhagsmunahópa á stjórnmálamenn: Ástæður þess að sérhagsmunahópar hafa jafnmikil völd og raun ber vitni er sú að hóparnir eru þröngir, með sérstök áhersluatriði, háværir og hafa fjármagn til að lobbíera fyrir hagsmunum sínum. Stjórnmálamenn vita að heillavænlegra er að höfða til þröngra markhópa frekar en landsmanna í heild og láta því undan kröfum slíkra sérhagsmunahópa.
Dæmi: Framsóknarflokkurinn og bændastéttin.
Slæm hagfræði: Að gera eitthvað sem samræmist ekki þrautreyndum hagfræðilögmálum.
Dæmi: Yfirvöld í litlu opnu hagkerfi verja innlenda framleiðslu með tollum og höftum (raunar er innlenda framleiðslan í þessu tilviki einnig einstaklega óhagkvæm).
Rangfærsla: Að halda einhverju fram sem er rangt.
Dæmi: Fullyrðingar Utanríkisráðherra um að Íslendingar “græði ekkert” á því að fella niður tolla einhliða er röng.
Að tala gegn betri vitund: Að segja eitthvað sem stríðir gegn fyrri reynslu og vitneskju.
Dæmi: Þegar menntaður hagfræðingur heldur því fram að frjáls verslun (jafnvel þó hún sé einhliða) skili sér ekki í aukinni hagræðingu og þar með aukinni velferð til allra landsmanna.
Kjarabót: Bæting á kjörum ákveðins hóps.
Dæmi: Ef tollar og höft væru afnumin af landbúnaðarvörum myndi verð matarkörfu meðalskussans lækka um 20-30% í einum grænum.
Firring: Að trúa einhverju sem á sér ekki stað í raunveruleikanum.
Dæmi: Að trúa því statt og stöðugt að Sjálfstæðisflokkurinn slái ekki skjaldborg um fjármagnsríka sérhagsmunahópa á Íslandi.

Eistneska strákahljómsveitin Bratwurst á góðri stundu.
P.S. Ekki nema þrjú próf eftir.
Ég er mjög óánægður með nýju vinnukonuna mína. Hún vaskar afar stopullega upp, þvær gólfin ekki, neitar að endurvinna pappakassa, er mjög uppstökk í skapi og gisti ekki einu sinni í vinnukonuherberginu sínu í nótt!
Síðan hef ég líka komist að því að meðmælabréfin hennar voru fölsuð.
Hvert er heimurinn að fara?