Færslur frá apríl 2006

Útlendingar og Íslendingar

“Er fjölgun útlendinga á Íslandi ógnun við atvinnuhagsmuni íslenskra launþega?” spyr Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins, á heimasíðu sinni, og fær 62% jákvæða svörun (þegar þetta er ritað). Eitthvað finnst mér þetta undarleg spurning. Með því að spyrja svona gefur hann auðvitað í skyn að útlendingar séu íslensku atvinnulífi ógnun og að það megi draga úr þeirri ógnun á einhvern hátt, væntanlega með frekari höftum á fólksflutninga til landsins. Væri ekki allt eins hægt að breyta hópnum sem spurt er um og spyrja: “Er fjölgun kvenna á atvinnumarkaði ógnun við atvinnuhagsmuni íslenskra karla?” Það fangar kannski betur hvað þetta eru forheimskandi vangaveltur hjá hinum frjálslynda Magnúsi Þór.

Kosningakerfi

Í Alþingiskosningum á Íslandi er stuðst við svokallaða D’hondt-reglu við úthlutun þingsæta, sem hyglir stórum flokkum. Landinu er ennfremur skipt í 6 kjördæmi, þar sem öll kjördæmi fá 10 til 11 þingmenn, jafnvel þó að allt að helmingi færri kjósendur eru á bakvið þingmenn á milli kjördæma. Þannig er fámennum kjördæmum hyglt.

Er ekki dáldið þverstæðukennt að hygla fjölmennum flokkum og fámennum kjördæmum á sama tíma?

Grófar fasteignaauglýsingar

Fasteignasalar eru alltaf að verða kræfari og kræfari. Þannig er auglýst íbúð í Mávahlíð á mbl.is, sem er greinilega ætluð einstæðum konum sem sjá barneignir í hillingum:

“Góð mjög vel skipulögð íbúð á góðum stað neðarlega í Hlíðum, stutt hjá. t.skóla, leikskóla og síðast en ekki sýst Valssæðinu”.

Klúbbar

Við hagfræðibókalestur fór ég að velta því fyrir mér hver væri nú eiginlega munurinn á Rotary, Kiwanis og Lions-klúbbum. Að sjálfsögðu flettir maður slíku upp í Wikipedia.

Komst að því að Rotary eru klárlega flottastir.

Hagfræði og ekki hagfræði

Hann Birkir Jón kallinn, sem núna á eftir rétt rúmt ár á Alþingi, ritar ansi hreint undarlega grein í Morgunblaðið 24. apríl sl. Þar réttlætir hann það að Íbúðalánasjóður hafi 18. apríl sl. hækkað hámarkslán sjóðsins úr 15,9 í 18 milljónir króna. Á tímum ofþenslu, þegar virkilega reynir á styrka og aðhaldssama efnahagsstjórn, er gjörsamlega fráleitt af ríkisstjórn að hella þannig olíu á eldinn. Vissulega er um litla breytingu að ræða, en það þarf að taka tillit til fleiri þátta – það að ríkisstjórnin taki þessa ákvörðun gefur til kynna lítinn áhuga á að aðstoða Seðlabankann við að ná böndum á verðbólgunni, sem veikir að sjálfsögðu tiltrú markaðarins á því að verðbólgan verði á annað borð hamin á næstunni.

Hann segir meira að segja sjálfur í greininni: “Við þær viðkvæmu aðstæður sem nú ríkja í efnahagsmálum er eðlilegt að ríkið grípi ekki til aðgerða sem auka þenslu. Sjálfsagt eru skoðanir skiptar um það hvort framangreindar reglugerðarbreytingar séu þensluhvetjandi”.

Framangreindar reglugerðabreytingar eru klárlega þensluhvetjandi, þótt Birkir og bændur séu því ósammála. Að halda öðru fram gengur gegn öllum hefðbundnum kenningum hagfræðinnar.

Og hann heldur svo áfram og færir meira að segja rök fyrir því að leggja eigi Íbúðalánasjóð niður… eitthvað sem maður bjóst ekki alveg við: “Meðan væntanlegur lántakandi hefur möguleika á ótakmarkaðri lántöku í bankakerfinu, svo sem veðrými leyfir, hefur takmörkun á hámarksláni Íbúðalánasjóðs nánast engin efnahagsleg áhrif. Það stöðvar ekki þann sem er að kaupa sér íbúð eða byggja að fá ekki fullnægjandi lán hjá sjóðnum, hann fer bara annað til að fá sínum þörfum fullnægt”.

Já það er bara þannig, Íbúðalánasjóður er barasta óþarfur! Er ekki orðið tímabært að einkavæða, Birkir?

Krónusprengja

Æðsti strumpur trúarbragða minna kemur með heldur betur óvænta grein í Fréttablaðinu í dag. Þar heldur hann því fram, berum orðum, að sjálfstæð peningamálastefna sé ofmetin í tilviki Íslands og að ekki sé ólíklegt að ávinnungurinn af því að vera með sjálfstæðan gjaldmiðil sé minni en enginn.

Þetta eru stór orð frá aðalhagfræðingi seðlabankans sem stýrir þessari sjálfstæðu peningamálastefnu. Í rauninni er ekki hægt að túlka þessi orð á neinn annan hátt en ósk um upptöku Evru og þar með inngöngu í Evrópusambandið.

Þar með hefur enn eitt vopnið verið gert óvirkt í höndum andstæðinga Evrópusambandsaðildar – og það af manni sem er allt að því óvéfengjanlegur í málefnum Seðlabanka Íslands.

Það skildi þó aldrei verða að aðild að Evrópusambandinu yrði stóra kosningamálið að einu ári liðnu?

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Easy Does It (5):

    Ég er með forrit í símanum sem er svona hlaupaforrit og meira að segja telur skrefin og... (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Jamm, og ef þú nálgast Android eða iPhone síma útí USA þá mæli ég klárlega með Runkeeper. Ég ELSKA... (Skoða)
  • Aggi um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á Nike+… þarf klárlega að græja mig upp með því! (Skoða)
  • Andri um Easy Does It (5):

    Sjá tólin fyrir jólin! (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á þetta. Prógrammið, sem að ég lét þig fá er þó ekki jafn erfitt og þú heldur.... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar