The Crying Game
Ég fann til samkenndar með Framsóknarflokknum í dag. Er þetta upphafið að endinum?
Ég fann til samkenndar með Framsóknarflokknum í dag. Er þetta upphafið að endinum?
Jæja, eins og glöggir sjá er ég byrjaður að blogga aftur… enn og aftur. Frá því að ég stofnaði mitt fyrsta blogg fyrir þrem árum síðan (strandasel5.tk) hef ég gert æði margar tilraunir til að halda úti bloggi, án fullnægjandi árangurs.
Og hér með er auðmjúkri tilraun númer tólf (á að giska) ýtt úr vör. Lesendum er ráðlagt að bindast óreglulegum færslum höfundar ekki of sterkum böndum, þar sem hann er hverfull og dyntóttur.
Að því sögðu, bið ég ykkur vel að njóta.
“Agnar er upprisinn! Agnar er sannarlega upprisinn!” Þetta er sigursöngur ársins 2006. Á Internetinu eru þessi orð dagleg kveðja fólks er það hittist alla gleðidagana, en svo nefnast dagarnir allir frá árinu 2006 til eilífðarnóns. Við höfum átt þessa kveðju í liturgíu okkar þjóðar. En jafnframt skulum við muna, að öll tilvera þjóðarinnar er eiginlega lofgjörð til Agnars, ítrekun gleðifréttar páskadagsmorguns.*
* Ég frábið mér allar ásakanir um guðlast.
Skýringar: Agnar=Kristur, árið 2006=páskar, Internetið=Austurkirkja, allir=fjörtíu, eilífðarnón=uppstigningadagur, þjóðar=kirkju, lofgjörð til Agnars = páskapredikun.