Færslur frá maí 2006

Taeland er heitt og sveitt

En heeeelviti nice.

Tok Creed-slagarann With Arms Wide Open a Karoki-bar i gaer og slo i gegn hja localnum…

Stefnan er sett a filsbaksferd a morgun… og svo Doi Boy nk. Fostudag. Eg tilkynni sidar hvad Doi Boy er….

Sawaranda!

Topp 25

Ég hef átt ípód-skemmtara til nokkuð margra mánaða núna. Í honum er ansi skemmtilegur fídus, sem býr til playlista með þeim 25 lögum sem maður hefur spilað oftast. Það gefur svona ágætis þverskurð af tónlistarfílingnum í manni. Here goes:

  • Roses – Andre 3000
  • King of Wishful Thinking – Go West
  • Michael – Franz Ferdinand
  • Take Me Out – Franz Ferdinand
  • Hotel California – Me First & the Gimme Gimmes
  • The Power of Love – Huey Lewis & the News
  • Mr Brightside – The Killers
  • Good Thing – Fine Young Cannibals
  • She Drives Me Crazy – Fine Young Cannibals
  • Suspicious Minds – Fine Young Cannibals
  • Lilac Wine – Jeff Buckley
  • More Than a Feeling – Boston
  • Om du var här – Kent
  • Shook Me All Night Long – AC/DC
  • Living on My Own – Freddie Mercury
  • Generator – Foo Fighters
  • Turning Japanese – Incubus
  • Hooray! Hooray! It’s a Holiday – Boney M(!!!)
  • Bohemian Like You – Dandy Warhols
  • Always on My Mind – Pet Shop Boys
  • Slow Hands – Interpol
  • Obstacle 1 – Interpol
  • Wicked Game – HIM
  • It’s My Life – Bon Jovi
  • og síðast en ekki síst: Crockett’s Theme – Jan Hammer

Hvað segiði… er tónlistarsmekkurinn minn nokkuð OF einsleitur?

Mamma og internetið

Mín yndislega móðir, sem er gjörsamlega tæknifötluð, spurði mig í gær hvenær ég fengi einkunnirnar mínar í hús. Ég tjáði henni að það yrði líklega í síðasta lagi 2. júni. “Þú færð þær þá ekkert fyrr en þú kemur heim frá Tælandi?” spurði hún að bragði. “Jújú, ég kíki bara á eitthvað internet-café og tjékka á þeim þegar ég er úti” svaraði ég.

Gall þá upp úr mömmu gömlu: “Drífur internetið svo langt?”

Stefnumál broskallanna í Heimdalli

Sú kosningabarátta sem nú er farin að styttast allverulegu í annan endann hefur boðið upp á einhverja þá mestu froðafrasadrullu sem ég hef séð í kosningum sem skipta einhverju máli. Gott ef mín fyrsta kosningabarátta, til íþróttaráðs MH 2001, hafi ekki verið kreddulausari.Hér á eftir fer stefnumálapakki Heimdallar eins og hann birtist í heild sinni á heimasíðu þeirra, d.is. Hvergi er vísað í ítarlegri stefnu svo ég geri ráð fyrir að í þessum stykkorðavafningi sé að finna megináherslur félagsins.

·  Við ætlum að leita allra leiða til að ungu fólki líði vel í Reykjavík.

 Þessi punktur er klárlega mótsvar við stefnu Vinstri grænna: “Ísland fyrir aldraða – sendum ungmennin til Vestmannaeyja”

·  Við ætlum að taka vel á móti ungu fólki af erlendum uppruna sem flytur til Reykjavíkur.

Þar sem enginn er þjóðernisflokkurinn, þá finnst mér nú ólíklegt að þessi punktur sé mikill ásteitingssteinn… að vísu veit maður aldrei með frjálslynda.

·  Við ætlum að efla frumkvæði borgarinnar í málefnum framhaldsskólanna í Reykjavík. Einnig stuðla að skólarnir geti stækkað og eflst þar sem þeir eru.

Að “efla frumkvæði” – hvað í ósköpunum er það?

·  Við ætlum að treysta Reykjavík í sessi sem háskólaborg, hlúa að þekkingariðnaði og skapa grundvöll fyrir fleiri störfum í rannsóknum og rannsóknatengdum atvinnugreinum.

Fyrir utan málfarsvilluna, þá er þetta nú nokkuð örugg lending: Semsagt enga stóriðju í Vatnsmýrina?

·  Við ætlum að fjölga göngu- og hjólreiðastígum í Reykjavík og halda árlega hjólreiðakeppni í Reykjavík.

 Flott mál. Minnir mig á íþróttaráðsframboðið mitt í MH – við lofuðum reyndar árlegu skákmóti.

·  Við ætlum að auðvelda ungu fólki að koma undir sig fótunum, hvort sem það vill kaupa eða leigja húsnæði.

Einhverskonar félagsleg aðstoð semsagt? Stóri bróðir í SÚS er nú varla hress með það. Í nýjustu stjórnmálaályktun sambandsins (en báðir varaformenn SÚS eru einmitt í framboði í borginni fyrir :D) segir einmitt: “SUS telur að félagsleg aðstoð fyrir fullfrískt fólk sé ekki eitt af þeim málum sem hið opinbera eigi að standa fyrir.”

·  Við ætlum að tryggja lóðir undir stúdentagarða í Reykjavík.

Loksins eitthvað sem aðgreinir þá frá helsta keppinautnum í Samfylkingunni!

·  Við ætlum að gera útivistarsvæðin í Reykjavík skemmtileg, halda þar útihátíðir, íþróttamót og aðra viðburði.

 Það væri nú ekki amalegt ef það mættu eins og 1-2 broskallar á útivistarsvæðin um helgar og sprelluðu. Skuldahalinn gæti líka mætt og hrætt krakkana með hryllingssögum af óðaverðbólgu G. Thoroddsens og vinstri stjórnarinnar hans.

·  Við ætlum að fjölga bílastæðum í miðborginni og bjóða hluta þeirra án endurgjalds í tiltekinn tíma í senn.

Sem íbúi á miðbæjarsvæðinu get ég svo sannarlega vottað það að þetta er hið brýnasta mál – mér dettur til dæmis í hug að mögulegt væri að fylla upp í Tjörnina og byggja bílastæðahús þar. Hagfræðingurinn í mér gúdderar reyndar ekki alveg hvernig það samrýmist að ætla að fjölga bílastæðum og hætta gjaldtöku á hluta þeirra í leiðinni. Frekar sósíalísk pæling það.

·  Við ætlum að bæta keppnis- og æfingaaðstöðu ungs fólks og fjölga spark- og battavöllum þannig að þeir verði í göngufæri í öllum hverfum borgarinnar.

Það mætti nú alveg bæta við þennan punkt að stuðningur við íþróttirnar er þegar hafinn, þrátt fyrir að broskallarnir séu ekki komnir í stjórn.

·  Við ætlum að veita ungu fólki kost á því að búa í Vatnsmýrinni og finna flugvellinum nýjan stað í eða nálægt Reykjavík.

 Hvenær? Verður unga fólkið ekki orðið gamalt þegar það verður loksins búið að finna nýjan stað fyrir flugvöllinn?

·  Við ætlum að auka möguleika þeirra sem horfið hafa úr námi til þess að halda áfram náminu þar sem frá var horfið.

?

·  Við ætlum að koma Reykjavík í fremstu röð hvað varðar tölvutækni og nettengingu, ma. kanna í samstarfi við einkaaðila hvort koma megi á þráðlausu tölvusambandi um alla borg.

Loksins Hallelujah! Þegar hingað er komið er loksins eitthvað sem aðgreinir :D frá UVG… einkaaðilarnir koma að góðum notum í tölvumálunum.

·  Við ætlum að auka atvinnutækifæri fyrir ungt fólk og efla starfsmenntun í samstarfi við skóla og atvinnufyrirtæki í borginni.

Þessi punktur minnir mig óneitanlega á Spánarferðina mína sl. sumar.

·  Við ætlum að leggja aukna áherslu á forvarnarstarf íþróttafélaganna og skólanna í borginni.

Já, auðvitað. Fyrst þarf samt að einkavæða ÁTVR, leyfa áfengis- og tóbaksauglýsingar, afnema vörugjöld á áfengi og tóbaki og auðvitað skella víninu í matvörubúðirnar. Þá verður sko gósentíð í forvarnarmálunum.

·  Við ætlum að bæta leiðarkerfi Strætisvagnanna og koma fyrir upplýsingum á öllum helstu biðstöðvum Strætó þar sem sjá má hversu langt er í næsta vagn.

Klukkur eru klárlega sósíalískt verkfæri sem eru eingöngu til þess fallnar að auka félagslegar þarfir borgaranna.  Minnka þarf notkun þeirra til muna og auðvelda fólki að lifa án þeirra. Þannig mun maður geta glaðst þegar maður mætir á biðstöð framtíðarinnar og sér að það er bara 1 Vilhjálmur í næsta vagn. Það verður hins vegar vel súrt þegar það er 1 Dagur í næsta vagn.

·  Við ætlum að leysa umferðarhnúta borgarinnar með mislægum gatnamótum og öðrum lausnum sem stuðla að greiðari umferð og auknu öryggi.

Það er ekkert til sem heitir umferðarhnútur í Reykjavík. Þær nokkru mínútur sem maður situr á ljósum í umferðinni má nýta til margs þarflegs, svo sem naglasnyrtingar eða til að kíkja á tölvupóstinn sinn (enda verður netsamband komið um allar tryssur með hjálp einkaaðila). Síðan er auðvitað gott að grípa í Frelsið hans Mills til að halda hugmyndafræðinni hreinni.

·  Við ætlum að fjölga uppákomum í miðborginni og ýta undir starfsemi sjálfstætt starfandi listhópa í borginni.

 Gleði, gleði drottinn sé dýrkaður! Airwaves, Menningarnótt, Loftbrú, Vetrarhátíð, Hátíð hafsins, Listahátíð og það allt er bara prump miðað við alla menninguna sem maður mun fá beint í æð frá brosköllunum á næstu fjórum árum!

Og þar með er öll vísan kveðin. REYNDAR virðist eitthvað hafa misfarist að endurprenta samþykktir stóra bróður frá landsþinginu í haust. Það að brýnt sé að losa heilbrigðiskerfið úr klóm ríkisvaldsins, að opinber rekstur leikskóla sé tímaskekkja og að afnema beri alla opinbera styrki til menntamála, virðist hafa verið lokað inní skáp svona rétt korter í kosningar.

Og hvað varð eiginlega um klassíkina: Að lækka útsvar???

Tög:

Biðin styttist

Ég er búinn að skila BS-ritgerðinni minni!

Og sjaldan er ein báran stök: Eftir 4 daga og 18 klst fer ég til Tælands (d.is fær sérstakar þakkir fyrir að skella niðurteljara fyrir mig á síðuna sína). Hef ég sett mér markmið í fimm liðum fyrir ferðina:

i. Njóta lífsins lystisemda á hinu glæsilega fimm stjörnu Marriott Hua Hin.

ii. Skella mér í Mandara Spa og láta dekra við mig.

ii. Koma heim með klæðskerasaumuð jakkaföt í kassavís.

iv. Læra golf á hinum glæsilega Imperial Lakeview.

v. Tjillllla vel og lengi á ströndinni, með Pina Colada í annarri og saltvatn í hinni.

That’s it folks!

Stærri en Unnur Birna!

Makalaust hvað vefrit á borð við b2.is gerir fyrir svona auma heimasíðu eins og mína – ég er nú þegar kominn með tvöfalt fleiri heimsóknir á síðuna mína en síða fegurstu konu heims. Gaman að þessu!

Annars hef ég lítið að segja og leyfi manneskju dagsins í dag að eiga orðið: “Ég gæti skitið á sviðið og samt myndi ég vinna þessa keppni.”

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Easy Does It (5):

    Ég er með forrit í símanum sem er svona hlaupaforrit og meira að segja telur skrefin og... (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Jamm, og ef þú nálgast Android eða iPhone síma útí USA þá mæli ég klárlega með Runkeeper. Ég ELSKA... (Skoða)
  • Aggi um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á Nike+… þarf klárlega að græja mig upp með því! (Skoða)
  • Andri um Easy Does It (5):

    Sjá tólin fyrir jólin! (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á þetta. Prógrammið, sem að ég lét þig fá er þó ekki jafn erfitt og þú heldur.... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar