Beiðni til Gallup
Jæja, hef hér með lokað fyrir spekúlasjónir vafrara um hvar ég eigi best heima í flokki. 91 atkvæði voru greidd og var Samfylkingin með hart nær helming atkvæða. Ég get mér nú til um að það sé talsverð fylgni á milli þess hvaða stjórnmálaflokk fólk kýs sjálft og í hvaða flokk það setti mig… einskonar óskhyggja það. Það má því draga þá ályktun að flestir sem lesa þetta blogg séu Samfylkingarpésar. #QED
Annars var ég að pæla. Væri ekki áhugavert ef Gallup bryddaði upp því að spyrja hvaða stjórnmálaflokk fólk myndi SÍST kjósa? Það væri nú sennilega ekki mikið praktískt notagildi í þeirri könnun, en engu að síður afar áhugavert að vita hvort að Framsóknarhatrið sé jafn megnt í landanum og maður skynjar á flestum. Ég biðla allavegana til Gallup að fara að fordæmi mínu og skemmta landanum.
