Færslur frá maí 2006

Prófin

Ég get ekki beðið eftir að prófin klárist svo ég geti loksins farið að einbeita mér almennilega að komast hærra á high score listann í D-man

Vin í eyðimörkinni

Ég verð staddur á þessari strönd eftir tæpa 20 sólarhringa. Á þessum síðustu og verstu lærdómsdögum heldur ekkert annað mér gangandi.

Viva Hua Hin 2006!

Gullkorn John Galbraith, hagfræðings

“Under capitalism, man exploits man. Under communism, it’s just the opposite.”

“Faced with the choice between changing one’s mind and proving that there is no need to do so, almost everybody gets busy on the proof.”

Og sú sem ég treysti helst á:

“Economics is extremely useful as a form of employment for economists.”

X-D

Mér finnst svarið hennar Steinunnar Valdísar við grein Davíðs Ólafs um fjármál borgarinnar vera alveg meinfyndið. Afar kaldhæðið… og líka skondið hvernig hún notar titilinn “hagfræðingur” eins og það sé verra en að vera með svarta dauða.  Held að Superman, eins og félagi Davíð er gjarnan kallaður innan hagfræðinnar, hafi eitthvað fatast flugið í þessari grein sinni…

Annars var ég að virða skónna mína fyrir mér, sem ég keypti út á Spáni síðastliðið haust. Við nánari athugun kemur í ljós að þeir eru merktir X-D í bak og fyrir – meira að segja reimarnar eru merktar! Frekar vafasamt það.

Pragmatismi

“Ójöfnuður að einhverju marki er bæði nauðsynlegur og beinlínis æskilegur að því leyti, að fullkominn jöfnuður getur ekki samrýmzt hagkvæmu og réttlátu þjóðlífi.”

Þorvaldur Gylfason

Kommon

Ætli maður geti dáið úr aulahrolli?

    Nýjustu ummælin

  • Agnar Freyr Helgason um Ameríski háskólaboltinn (4):

    Þeir eru reyndar bara á haustin… en hey, við finnum örugglega eitthvað... (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (4):

    Eru ekki alltaf leikir allt árið? Kannski dreg ég þig á leik þegar ég kem í heimsókn :) (Skoða)
  • Aggi um Ameríski háskólaboltinn (4):

    Jújú, klappstýrur og allur pakkinn. Mæli tvímælalaust með því að skella sér á leik! (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (4):

    vá en spennandi! Voru ekki svona klappstýrur líka? Hvernig voru dansarnir? Oh mig... (Skoða)
  • Halldór Elías Guðmundsson um Mættur til C-bus! (6):

    Velkomin í bæinn, hafandi búid hér í næstum 5 ár er tér velkomid ad hafa... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar