Færslur frá maí 2006

Tíminn líður hratt…

“Hér mun ég reyna að skrifa til ykkar reglulega, eða blogga, einsog menn kalla þessi skrif.”

Þarna fer gamall, gamall maður. Samt alveg með skásta móti af íhaldsmanni að vera.

Yfirdrifin spenna

Ég held ekki vatni yfir sjónvarpsþáttaröðinni Prison Break. Nú, þegar 20 þættir eru búnir í BNA er spennan orðin svo yfirdrifin að ég hef varla einbeitingu til að læra. Sem er auðvitað ekki alveg nógu gott.

Mæli klárlega með áhorfi fyrir alla sem hafa yndi af klókum fléttum og hrikalegri spennu.

Upplífgandi hagfræði

“Existing economics is a theoretical [meaning mathematical] system which floats in the air and which bears little relation to what happens in the real world”

Ronald Coase, Nóbelsverðlaunahafi

Þreyttur yfir hagfræðibókunum sit og vafra um netið mér til dægradvalar. Það er sennilega fátt jafn letjandi og að skoða heimasíður samtaka hagfræðinga sem leggjast gegn því hvað fræðin eru orðin stærðfræðileg og úr öllu samhengi við raunveruleikann. Sérstaklega þegar maður er eiginlega sammála þeim.

Beiðni til Gallup

Jæja, hef hér með lokað fyrir spekúlasjónir vafrara um hvar ég eigi best heima í flokki. 91 atkvæði voru greidd og var Samfylkingin með hart nær helming atkvæða. Ég get mér nú til um að það sé talsverð fylgni á milli þess hvaða stjórnmálaflokk fólk kýs sjálft og í hvaða flokk það setti mig… einskonar óskhyggja það. Það má því draga þá ályktun að flestir sem lesa þetta blogg séu Samfylkingarpésar. #QED

Annars var ég að pæla. Væri ekki áhugavert ef Gallup bryddaði upp því að spyrja hvaða stjórnmálaflokk fólk myndi SÍST kjósa? Það væri nú sennilega ekki mikið praktískt notagildi í þeirri könnun, en engu að síður afar áhugavert að vita hvort að Framsóknarhatrið sé jafn megnt í landanum og maður skynjar á flestum. Ég biðla allavegana til Gallup að fara að fordæmi mínu og skemmta landanum.

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (3):

    Eru ekki alltaf leikir allt árið? Kannski dreg ég þig á leik þegar ég kem í heimsókn :) (Skoða)
  • Aggi um Ameríski háskólaboltinn (3):

    Jújú, klappstýrur og allur pakkinn. Mæli tvímælalaust með því að skella sér á leik! (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (3):

    vá en spennandi! Voru ekki svona klappstýrur líka? Hvernig voru dansarnir? Oh mig... (Skoða)
  • Halldór Elías Guðmundsson um Mættur til C-bus! (6):

    Velkomin í bæinn, hafandi búid hér í næstum 5 ár er tér velkomid ad hafa... (Skoða)
  • Elín Sigrún um Mættur til C-bus! (6):

    Ok it’s noted air í stað express! En átti ekki Mel Gibson líka að hafa lamið konuna... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar