Jæja, vinnudagurinn búinn og ég á leiðinni til Grundarfjarðar! Ég skrifaði pistil fyrir viku síðan um grein sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson skrifaði í Fréttablaðið. Þar var hann að fjalla um nauðsynlegar breytingar á tolla- og innflutningsumhverfi matvæla á Íslandi, en bætti svo eftirfarandi við í lokin: “En er ekki skynsamlegast að bæta kjör láglaunafólks með því að fella niður vörugjöld og tolla af öllum innfluttum vörum og lækka tekjuskatt á einstaklinga niður í hið sama og fyrirtæki greiða, 18%?”.
Ekki að ég ætli sífellt að vera agnúast út í hinn ágæta Hólmsteinn, en ég get nú ekki annað gert en að grípa niður í grein hans sem birtist einmitt í Fréttablaðinu í dag. Þar er hann að fjalla um skattaumhverfi fyrirtækja á Íslandi í ágætisgrein, en bætir svo allt í einu inn boðskapnum um tekjuskatt einstaklinga í síðustu efnisgreininni, rétt eins og fyrri daginn. Þar segir hann: “Tekjuskattur einstaklinga og fyrirtækja þarf að lækka í 10% og fella niður öll vörugjöld og tolla, svo að innfluttar nauðsynjavörur, þar á meðal matvæli, lækki í verði.”
Maðurinn er ekki lengi að bæta við 8% skattalækkun á línuna! Ég bíð allavegana spenntur eftir næstu grein hans… ætli tekjuskatturinn verði þá kominn í 2%?
Það býður upp á endalausa möguleika af fimmaurabröndurum að Steinunn Valdís, fyrrverandi borgarstjóri, sé að hefja nám í opinberri stjórnsýslu í haust… Ég kýs hins vegar að notfæra mér þá ekki, þar sem Steinunn er hin hressasta dama.
Er þetta liður í bætingu á mér sem mannveru, eða “part af prógrammet” eins og Þórir myndi segja.
Það er skondið að sjá hvernig nafnavenjur breytast á Íslandi. Þannig eru bein línuleg tengsl á milli aldurs og líkum á því að einstaklingur beri einnefni (í stað tvínefnis). Þannig báru 18% allra 0-4 ára barna í desember 2004 einnefni og 82% þeirra tvínefni. Hlutföllin voru þveröfug fyrir 85 ára og eldri – 81% þeirra báru einnefni en 19% tvínefni. Hlutföllin er svo gott sem nákvæmlega eins hvort sem litið er til karlmanns- eða kvenmannsnafna. Það er því alveg ljóst að einnefnið er á miklu undanhaldi, sem er alveg hreint magnað.
Á heimasíðu Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, er flettiskilti efst með ýmsum slagorðum kappans. Á einu þeirra spyr Björgvin “hvort að það sé óbreytanleg staðreynd að það sé mikið dýrara að búa og reka fjölskyldu á Íslandi en annars staðar”. Í ljósi þess að kaupmáttur launa er óvíða meiri en á Íslandi (aðeins meiri í Lúxemborg, BNA, Sviss, Noregi og Írlandi skv. könnun OECD frá febrúar sl.) er mér spurn hvað maðurinn meinar eiginlega með þessu? Ætli þingmaðurinn þekki ekki örugglega til kaupmáttarjafnvægis?
Það er mér hulin ráðgáta hvernig 10/11 verslanirnar eru reknar með gróða. Byggi ég það á ferð í verslunina á Austurstræti í kaffinu mínu áðan. Snillingarnir láta viðskiptavinina láta það bakkelsi sem þeir vilja fá sér í brúna pappírspoka og síðan þegar komið er á kassann, þarf afgreiðslufólkið að opna hvern einasta poka til að sjá hvað er í honum! Hefur þetta lið aldrei heyrt talað um glæra poka?
Á léttu nótunum má tilkynna að ósvikin gleði skein úr augum mínum áðan þegar ég sá álagningarseðilinn minn frá ríkisskattstjóra. Það er á svona augnablikum sem maður er ánægður með að hafa borgað of mikið í skatt á síðasta ári…
Á heimasíðu fyrrverandi Vökuliða, deiglan.com, rakst ég á eftirfarandi fyrirsögn á pistli: Um mikilvægi þess að farið sé að kosningareglum. Mér fannst það bara svolítið fyndið, meira var það nú ekki.