Færslur frá ágúst 2006

HA!?

Hvers konar fjandans brandari er þetta????

mbl.is Tevez og Mascherano til West Ham

Du du dirru

Það eru eins símar hérna í vinnunni og í 24. Það er meira að segja hægt að stilla þá þannig að þeir hringi eins og í CTU.

Stundum, bara stundum, er gott að lygna augunum aftur og ímynda sér að maður sé að greina glæpóna, en ekki fjármálalífið…

P.S. Ég er m.a.s. búinn að sjá út hver er svikarinn í deildinni.

Superstar

9.720 og hananú!

Stolt Breiðholtsins!

Á leið minni í efra-Breiðholtið í dag rak ég augun í flennistórt skilti. Á það er ritað: “Áfram Leiknir – stolt Breiðholtsins!” (!) Sem ÍR-ingur get ég nú ekki sagt annað en að þetta hafi rist nokkuð djúpt í sálarlífið… Ég get þó huggað mig við það að eftir nokkrar vikur verð ég orðinn hluti af einu glæstasta knattspyrnuveldi Íslandssögunnar.

Talandi um fótbolta. Ef einhver hefur efast um getu Manchester United til að hefja nýtt gullaldarskeið ætti sá hinn sami að gleyma þeim efasemdum – United rústar þessu í ár!

Að henda hlutum

Foreldrar mínir eru ólíkir að mörgu leyti. Það sem mér finnst einna skondnast er mismunandi viðhorf til varðveislu ýmissra hluta sem þeim hefur áskotnast á lífsleiðinni.

Þannig býr faðir minn í 4ra íbúða húsi á Barónstíg. Hann lætur sér ekki nægja sína eigin geymslu, heldur leigir hann geymslur allra hinna 3ja íbúðanna í húsinu undir mörg hundruð kíló af alls konur hlutum sem honum hefur áskotnast á 68 aldursárunum. Hann tjáði mér til dæmis um daginn að hann hefði fundið kassa fullan af tékkaheftum frá 9. áratugnum í einum haugnum.

Hjá móður minni er þessu þveröfugt farið. Ef hluturinn hefur ekki verið notaður í yfir 6 mánuði þá er notagildi hans ekkert og honum hent. Hef ég ítrekað orðið fyrir barðinu á þessu, nú síðast fleygði hún ýmsum varahlutum úr bílnum mínum, sem ég hafði haldið uppá af góðri ástæðu. Þegar miðjustokkurinn brotnaði í bílnum hugsaði ég mér einmitt gott til glóðarinnar og var ánægður með sjálfan mig: “Þvílík snilli að geyma gamla miðjustokkinn!” En nei, hann var á bak og burt.

Þegar ég ákveð hvaða hluti ég vil eiga og hvaða hlutum ég vil fleygja reyni ég að hafa þessa tvö öfgafullu einstaklinga til hliðsjónar og breyta í samræmi við þá vitneskju. Það mun án efa koma að góðum notum þegar ég fer að pakka ofan í kassa fyrir flutninginn á Víðimelinn.

Hrútaþukl

Gætu þeir ekki fundið eitthvað heppilegra nafn á þetta?

mbl.is Keppt í hrútaþukli á Ströndum

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Easy Does It (5):

    Ég er með forrit í símanum sem er svona hlaupaforrit og meira að segja telur skrefin og... (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Jamm, og ef þú nálgast Android eða iPhone síma útí USA þá mæli ég klárlega með Runkeeper. Ég ELSKA... (Skoða)
  • Aggi um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á Nike+… þarf klárlega að græja mig upp með því! (Skoða)
  • Andri um Easy Does It (5):

    Sjá tólin fyrir jólin! (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á þetta. Prógrammið, sem að ég lét þig fá er þó ekki jafn erfitt og þú heldur.... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar