Færslur frá ágúst 2006

Póker

Ég skellti mér í póker í gærkvöldi með félögunum mínum. Það væri nú ekki í frásögur færandi nema fyrir það að ég var kominn 3 þúsund kall í mínus fljótlega eftir miðnætti og hafði ekki unnið eina einustu hönd. Sá ég fram á að það væri nú sennilega gáfulegast af mér að láta gott heita, en vitleysan bar mig ofurliði og ég ákvað að kaupa mig inn í síðasta sinn fyrir þúsundkall… Vann mitt fyrsta spil fljótlega eftir það, góðu spilin fóru að koma á færibandi til mín og ég endaði kvöldið með ALLA spilapeningana á borðinu, sem ígilti nettógróða upp á 6 þúsund kjall! Í þetta sinn borgaði þrjóskan mín sig klárlega… varð bara að deila því með umheiminum. Annars fær Magnús Már klárlega hetjustig fyrir magnað endaeinvígi.

24

Ég horfi á minn fyrsta þátt af 24 áðan, nánar til tekið fyrsta þáttinn í fyrstu þáttaröðinni. Fastlega má gera ráð fyrir því að ég verði óhæfur til þátttöku í félagslegum athöfnum næsta mánuðinn eða svo, enda hafa verið framleiddir hvorki fleiri né færri en 120 þættir í fimm þáttaröðum af þessu gæðaefni og ég ekki séð einn einasta fyrr en rétt í þessu! Kannski fullmikið af því góða, en hresst engu að síður.

Kjaftæði

Alveg er makalaust hvernig varaformaður Framsóknarflokksins leyfir sér að geysast fram í sviðsljósið og hneykslast á launaþróun undanfarinna ára. “Ríkið á að taka meira til sín af háum launum” segir varaformaður flokks, sem staðir hefur á bakvið stórlækkun hátekjuskattsins OG lækkun tekjuskattsprósentunnar, á meðan persónuafslátturinn hefur allt að því staðnæmst í stjórnartíð exbjé og rýrnað umtalsvert miðað við verðlagsþróun. Allt þrennt er þetta eitthvað sem hyglir hátekjufólki á kostnað lágtekjufólks! Á hliðarlínunni situr svo Guðni og lætur eins og hann sé einungis áhorfandi að þessari þróun, þegar hann er í raun og veru einn af þeim sem hefur stuðlað að henni.  Svei’attan!

mbl.is Leiðtogar stjórnmálaflokkanna eru gagnrýnir á launaþróun

Röskva

c_documents_and_settings_lfyafh_my_documents_my_pictures_95886243_4a980428f4.jpg

Var send þessi mynd áðan af myndasíðu Röskvu, samtaka félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, og fékk einhverja mestu gusu af nostalgíu framan í mig sem ég hef fengið í áraraðir. Þvílíkur félagsskapur, þvílíkt fólk. Mæli klárlega með því fyrir verðandi háskólabusa að kynna sér hvað Röskva er að gera & stendur fyrir og mæta síðan rakleiðis í félagsskapinn!

Annars óska ég öllum gleðilegrar helgar – gangið hægt inn um gleðinnar dyr og njótið rigningarinnar! Lag dagsins: The Look með Roxette.

Aulahrollur

Sjaldan eða aldrei hef ég upplifað mig sem meiri uppa, en þegar ég gekk heim úr vinnunni í dag, í teinóttum jakkafötum, með kaupsamninginn að nýju piparsveinaíbúðinni minni í annarri hendinni og regnhlíf merktri Landsbankanum í hinni!

Í öðrum fréttum er það helst, að ég verslaði mína fyrstu íbúð í dag. Það er hvort tveggja í senn, ánægjulegt og ógnvænlegt. Mun ég flytja inn 15. september nk. og gerast sannur Vesturbæingur frá þeirri stund: Áfram KR!

Aftur um fasteignamarkaðinn… og tennis

Á visir.is birtist í morgun aftur frétt um ástand fasteignamarkaðarins á höfuðborgarsvæðinu. Strax í fjórða orði er villa – “þinglýstum kaupsamningum vegna íbúðakaupa fækkaði um 22,5% í júlí miðað við júnímánuð…” Eins og ég kom inná í gær, þá fækkaði þinglýstum kaupsamningum vissulega um 22,5%. Inn í þinglýstum kaupsamningum eru hins vegar ekki eingöngu íbúðir, heldur einnig t.d. hesthús. Þinglýstum kaupsamningum vegna íbúðakaupa fækkaði raunar um rétt rúm 5%, eða fjórum sinnum minna en fullyrt er í fréttinni. Ennfremur er fullyrt í fréttinni að “Þrjár til sex vikur líða frá því að kaupsamningar eru gerðir og þartil þeim er þinglýst”. Ekki veit ég hvaðan fréttastofan fær sínar upplýsingar, en skv. Sýslumanninum í Reykjavík, sem sér jú um þinglýsingarnar, tekur það varla meira en 2 virka daga frá undirritun kaupsamnings, þangað til honum hefur verið þinglýst. Helvíti flott vinnubrögð, annan daginn í röð, hjá skósveinum 365!

Annars mætti ég á mína fyrstu tennisæfingu í gær. Skilst að Íslandsmótið sé að byrja núna eftir fimm daga – ætli það sé nokkuð orðið of seint að skrá sig?

    Nýjustu ummælin

  • Margrét Rós um Ameríski háskólaboltinn (5):

    ég er ekki að ná utan um þessar tölur! Þetta er svaðalegt… Mikið er ég annars... (Skoða)
  • Agnar Freyr Helgason um Ameríski háskólaboltinn (5):

    Þeir eru reyndar bara á haustin… en hey, við finnum örugglega eitthvað... (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (5):

    Eru ekki alltaf leikir allt árið? Kannski dreg ég þig á leik þegar ég kem í heimsókn :) (Skoða)
  • Aggi um Ameríski háskólaboltinn (5):

    Jújú, klappstýrur og allur pakkinn. Mæli tvímælalaust með því að skella sér á leik! (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (5):

    vá en spennandi! Voru ekki svona klappstýrur líka? Hvernig voru dansarnir? Oh mig... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar