Alhæfingar og yfirdrifinn hroki einkennir málflutning úttalaðs ungs Sjálfstæðismanns í garð “vinstrimanna” (eins og það sé yfirhöfuð einsleitur hópur) í grein dagsins á frelsi.is. Eftirfarandi dellu má meðal annars finna í greininni: ,,Annað sem vinstrimenn skilja ekki er að þegar fólki gengur vel þarf það ekki að þýða að aðrir líði að sama skapi fyrir það. Vinstrimenn miða alla sína hagfræðilegu hugsun út frá því að til þess að hagnast þurfi aðrir að tapa. Þeir skilja ekki hagvöxt eða ,,stækkun kökunnar”.”

Undarlegt að hann skuli ekki kalla vinstrimenn sósialista… hélt að það væri orðið normið.