Færslur frá desember 2006

The Oscar for best soundtrack goes to…

Ég verð víst að vera eins og hinir og gleyma mér örlítið í að setja saman tónlistina í ímyndaða bíómynd um sjálfan mig – lögin eru valin af handahófi með iPod-Shuffle. Myndin er beisk og súr – sennilega gott fæði í Sundance-hátíðina, frekar en í mainstream-dreifingu. Já, það er vandlifað í þessum heimi.

RABITTOpening Credits: Kanínan með Sálinni hans Jóns míns startar myndinni minni, jahso! Aldrei hef ég hlustað sérstaklega á þetta lag, en það er líka svona helvíti hresst. Myndin er nottla hin skemmtilegasta – aðalsöguhetjan óhefluð og léttleikandi og aldrei með meira en dass af alvarleika í pokahorninu. Ætli fyrsta atriðið sé ekki partý-atriði, miðað við lagið að minnsta kosti.

belize-city-slum-2_jpgWaking up: In the Ghetto með Nick Cave… Við förum 15 ár aftur í tímann. Fimm ára drengur nuddar stírurnar úr augunum. Hann er að vakna í félagsíbúð hjá einstæðri móður sinni í Breiðholtinu. Framundan er langur dagur, Ghettóið er erfiður staður. Atriðið endar á mælska sérvitringnum sem er við dauðans dyr. Er hann horfir á hetjuna okkar sparka knetti (sem hann fékk í gegnum hjálparstarf kirkjunnar) sér hann að drengurinn ætlar sér langt. Sá gamli gleymir þó aldrei að uppruninn skapar manninn… ,,Þú getur tekið stráklinginn úr ghettóinu, en ghettóið fer aldrei úr stráknum.”

DirtySocksFirst day at school: Dirty Trip með Air. Erindisleysa, rugl. Dagurinn er hálf súr. Stráksi er á útivelli í skólastofunni – seinna meir á hún þó auðvitað eftir að verða hans sterkasta vígi. Og enginn skilur lagið, hvaða erindi á það í þessa minningu? Jú, ,,drullusokkur” var viðurnefnið. Hann mætti aldrei aftur í skítugum sokkum í skólann.

Falling in love: I Want to Break Free með Queen, Live at Wembley ‘86. Hann verður ekki haminn auðveldlega. Fjötrar ástarinnar reyndust íþyngjandi – Hetjunni okkar líkaði varla þrúgandi andrúmsloft Amors. NBA-myndirnar áttu hug hans allan.

thinkingcapwhoaFight song: Borgin með Hjálmum. Þetta eru víst afar tjilluð slagsmál (já slagsmál, ekkert rifrildi í myndinni minni). Sýnd í sló-mó. Í rauninni meira svona innri togstreita. Á maður að hrökkva eða stökkva? Erfið ákvörðun fyrir tíu ára dreng.

Breaking up: Peaches með The Presidents of the United States of America, úje! ,,Millions of peaches, peaches for me. Millions of peaches, peaches for free” Táknræn og sterk mynd. Það eru jú fleiri ferskjur á akrinum en þessi eina (svona eins og með fiskana í sjónum sko).

islanderProm: Island in the Sun með Weezer. Stráksi mætti einn á lokaballið. Maðurinn er eyland.

Life: What Would I Say in Your Funeral með Mugison. Einstaklega súrt. Efnilegur breyttist aldrei í góðan. Efasemdir um eigið ágæti fara að sækja á hetjuna okkar… ,,hvað ef” verður viðkvæðið og ekkert gerist. Áhorfendurnir fá það á tilfinninguna um það bil hérna að það sé eitthvað vont á leiðinni… svona svipað eins og þegar Káta útgáfan af OTH!One Tree Hill byrjar á svarta-intróinu í staðinn fyrir hið hressilega “I don’t wanna be anything other than what I’ve been tryin’ to be lately…” (9. þáttur 4. seríu byrjar einmitt þannig.. og sá þáttur er sko SLÆMUR). En já, hvað ætli sé í vændum? Taugaáfall?

Mental Breakdown: Jesu bleibet meine Freude from Herz und Mund eftir J.S. Bach, og hananú! Últrasúrt taugaáfall. Örugglega eitthvað sem BARA hagfræðingar lenda í.

politicianDriving: Í nafni frjálshyggju og frelsis með Bubba, já drengstaulinn finnur sinn drifkraft. Hann verður predikari og predikar félagshyggjuna – óheft frjálshyggjan hefur skilið eftir sig sviðna jörð um allt Vestrið og það þarf að spyrna við fótum. Rússíbanareið myndarinnar er rétt að byrja. Þetta er orðinn pólitískur þriller.

Flashback: Wake Me Up Before You Go Go með Wham. Já, Jesús Pétur það var gaman í gamla daga. Ekkert sýruflashbakk (eins og ég hafði áhyggjur af) heldur ekta SingStar-flashback. Já, maðurinn kann sko að syngja!49d012ce.jpg

Getting back together: Rocket með Smashing Pumpkins. Hmm, ekki er þetta nú eitthvað æði. Það er hins vegar mikilvægt að hafa í huga að þó að það sé endalaust af ferskjum (sjá hér að ofan), þá eru þær auðvitað ekkert allar eins. Drengsi sem er gjarn á eldflaugasendingar verður að hafa ferskju sér við hlið sem kann að meta þær… og þær eru sko vandfundnar!

8792~Whipped-Cream-PostersWedding: All She Wants Is með Duran Duran. Svipubrestirnir skera í eyrun. Þrátt fyrir falleg orð og fögur fyrirheit hættir gamli að mæta í póker og á kvikmyndakvöldin. ,,Electric Barbarella”, eins og konan vill kalla sig, kallar sko ekki allt ömmu sína.

Birth of a child: Fire með Jimi Hendrix. Klárlega ofvirkt barn.

Final Battle: Popeye Theme – Me First & the Gimme Gimmes. Rokk og ról, hamar og hól. Svo virðist sem lokabaráttan verði við lúxuslifnaðarhætti nútímans. McDonalds og KFC víkja fyrir spínati og öðru grænu í öll mál. Sá gamli verður helsti talsmaður grænmetisæta á Íslandi og fær landann til að finna til samkenndar með öllum fisknum sem er slátrað á hverju ári. Í kjölfar algilds veiðibanns á allar lifandi verur, sem sá gamli knýr í gegn, er íslenska þjóðarbúið lýst gjaldþrota. zyuganov(13701)Rússar kaupa síðar þrotabúið og nota landspilduna sem fangelsi, eins og Gennady Zyuganov lagði til forðum daga.

Deathscene: Saturday Night’s Alright með Anastacia og Elton John (ef einhver heldur að ég hafi handvalið lögin, þá ætti þetta lag að sýna, svo ekki verði um villst, að ég gerði ekkert slíkt). En já, kallinn kveður allavegana með stæl. Og það á laugardegi… örugglega yfir enska boltanum.

barks5Funeral Song: Du Hast með Rammstein. Botnlausar óvinsældir birtast greinilega í afar óhúmanískri jarðarför minni. Kórinn syngur af krafti, en verst er þegar presturinn og söfnuðurinn taka undir í viðlaginu. Ekkjan og börnin klappa í takt og hlæja dátt (sá hlær best sem síðast hlær: ég var auðvitað vitavonlaus í peningamálum og löngu orðin gjaldþrota, svo arfurinn er enginn).

End Credit: Sweet Home Alabama með Creedence Clearwater Revival. Já, heldur hressileg rússíbanareið. Allir fara hressir og hlæjandi heim og hugsa um hinn mikla og mæta mann sem myndin fjallar um. Þvílík gleði, þvílík ánægja.

The End.

Miðað við ótrúlega mikið magn af lögum með Pink Floyd og Led Zeppelin á iPodnum undra ég mig á því að ekkert slíkt skyldi poppa upp. En svona er það nú bara. Var annars að hlusta á FM957 áðan í góðu flippi. Chris Cornell var að ljúka lagi þegar einhver snillingurinn tekur til máls. Lofar Casino Royal í bak og fyrir og mælir með henni. Bætir svo við, án gríns(!), ,,já, Casino Royal er miklu betri en hinar tvær Bond-myndirnar!

Sem er fyndið.

Ágúst Ágúst Ágústsson

Það verður nú að viðurkennast að Vefþjóðviljinn getur verið soldið skondinn..

Á dögunum var haldinn aðalfundur Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Aðeins um fimmtánhundruð manns tóku þátt í fundinum enda var hann aðeins opinn fyrir reykvíska félagsmenn á tilteknum aldri og auk þess haldinn á einum stað í bænum og það um miðjan virkan dag. Ekki var því við öðru að búast en fundurinn yrði fámennur og hvor formannsframbjóðandi hlyti aðeins um sjöhundruð atkvæði eða svo. Öðru máli gegnir hins vegar um glæsilegt prófkjör vinstrigrænna nú um helgina þar sem flokksmenn á öllum aldri og ekki aðeins úr Reykjavík heldur einnig Hafnarfirði, Kópavogi, Garðabæ og öðrum sveitarfélögum suðvesturkjördæmis komu á einhvern þriggja kjörstaða og kusu. Þar mættu samtals um þúsund manns til að velja á milli þrjátíu frambjóðenda svo að hver frambjóðandi hefur að meðaltali dregið langt yfir 30 kjósendur á kjörstað. Til að gera prófkjörið enn glæsilegra mátti svo kjósa þrjá frambjóðendur í hvert sæti. Þeir þrír frambjóðendur sem lentu í fyrsta sæti fengu samtals yfir tvöþúsund atkvæði í það sæti frá þessum þúsund kjósendum. Jafnvel Ágúst Ágúst Ágústsson ætti bágt með að ná svo góðum árangri á landsfundi Samfylkingarinnar. Þannig fengu frambjóðendur sem samkvæmt skoðanakönnunum eru komnir langleiðina inn á þing um 400 atkvæði í prófkjörinu. Prófkjör vinstrigrænna er því ótvírætt merki um stórsókn flokksins.

Heimska og grein eftir mig á politik.is

Það er ekki annað hægt en að gapa af undrun yfir þessari ákvörðun þingflokksins – orð fá því ekki lýst hvað þetta er slæm ákvörðun. Nú ert tvennt a.m.k. orðið kristaltært:

  1. Frjálslyndir munu ekki eiga möguleika, ekki einu sinni fjarlægan, á að auka við fylgi sitt í næstu Alþingiskosningum, ef mjúk ásýnd Margrétar hverfur úr forystu flokksins. Það verður ekkert eftir nema slorkallar og Jón Magnússon. Vonum að Margrét hætti alveg.
  2. Flokknum er ekki treystandi og með öllu óstjórntækur. Ég biðla hér með til skynsamra afla í öllum flokkum, þó sérstaklega Samfylkingunni, að gera sér grein fyrir því.

Hvað um það, ég skrifa ótrúlega hressa grein á www.politik.is. Hún er að vísu í lengra lagi, en safaríkari fyrir vikið. Beini því til stuðningsmanna flokkanna að greiningin á íslensku flokkunum er skrifuð með örlitlum ýkjum, en það er nú einu sinni föstudagur.

Lifið heil.

mbl.is Margréti Sverrisdóttur sagt upp hjá Frjálslyndum

Frjálslyndir á villigötum og Samfylkingin í hnotskurn

Mínir gömlu flokksfélagar hafa ratað inn á nýjar brautir í örvæntingarfullum tilraunum sínum til að ná í atkvæði fyrir flokkinn. Þessa þróun mátti svo sem alveg sjá fyrir þegar í vor, en mér þykir annars mjög sorglegt að það skuli hafa orðið ofan á að keyra á þessu máli. Vona ég svo innilega að allt það góða fólk sem starfar innan flokksins stígi á bremsuna strax í upphafi og leyfi þessu ekki að verða að “aðalmálinu” í vor. Veldur það mér sérstökum vonbrigðum ef Margrét Sverrisdóttir er sammála þeim kumpánum Jóni M. og Magnúsi Þ., enda var hún ein af höfuðástæðunum fyrir því að ég gekk í flokkinn á sínum tíma. Ég bind þó ennþá vonir við að hún sjái ljósið og komi yfir í Samfylkinguna fyrr en seinna…

Við Helga kvittuðum annars undir ályktun fyrir hönd Vefritsins ásamt forsvarsmönnum annarra ungliðahópa vegna þessa málflutnings Magnúsar. Er það reyndar svoldið brútal að ég skuli vera efst á þessum lista í ljósi setningarinnar: “Forsvarsmenn ungliðahreyfinganna taka fram að engin ungliðahreyfing starfi hjá Frjálslyndum og því ekki hægt að leita álits þar.” Veit nú ekki alveg hversu nákvæm þessi fullyrðing er – held að það séu nú nokkrir ennþá virkir í ungliðastarfinu.. en ég var svosem ekki spurður álits um það, sjálfur gjaldkerinn emiritus. Fannast annars líka mjög skondið að 6 af 14 einstaklingum sem kvitta undir þetta eru starfsmenn Bankans!

Yfir í aðra sálma. Rakst á grein á vefriti Ungra Jafnaðarmanna í Hafnarfirði eftir Þórð Sveinsson, formann þess ágæta félags.  Finnst greinin fanga fullkomlega hlutverk Samfylkingarinnar og hugmyndir mínar um þá hugmyndafræðilegu gerjun sem er svo nauðsynleg innan stórs félagahyggjuflokks. Held að þau mismunandi viðhorf og ólíku áherslur sem þrífast innan flokksins séu forsenda fyrir því að flokkurinn geti nokkurn tímann skákað Sjálfstæðisflokknum sem stærsti flokkur landsins. Eins og kom bersýnilega í ljós á Landsþingi Ungra jafnaðarmanna fyrr í haust þá verðum við Þórður seint sagðir hafa sömu sýn á hlutina, en við virðumst þó deila þeirri framsýni og þeim vilja sem þarf til að stuðla að því að hér komist að ríkisstjórn jafnaðarmanna á næstu árum. Gaman að því.

Hagkvæmni og réttlæti

Í daglegu tali manna á milli er hinn pólitíski kvarði einvíður. Eftir einni stiku eru menn og konur flokkaðar eftir skoðunum sínum á stjórnmálum – frá vinstri til hægri, með stuttu stoppi á miðjunni. Þessi kvarði er vitanlega ,,barn síns tíma” – arfur þess þegar umbótamenn settust upphaflega vinstra megin á franska þinginu og íhaldsmennirnir hægra megin. Með fullri virðingu fyrir málefnum 18. aldarinnar, eru stjórnmál dagsins í dag hvort tveggja í senn, margslungnari og flóknari en svo, að vinstri-hægri kvarðinn dugi vel. Ætli það sé jafnvel ekki viðeigandi að kalla notkun kvarðans á 21. öldinni ,, tæknileg mistök”? (meira …)

    Nýjustu ummælin

  • Agnar Freyr Helgason um Ameríski háskólaboltinn (4):

    Þeir eru reyndar bara á haustin… en hey, við finnum örugglega eitthvað... (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (4):

    Eru ekki alltaf leikir allt árið? Kannski dreg ég þig á leik þegar ég kem í heimsókn :) (Skoða)
  • Aggi um Ameríski háskólaboltinn (4):

    Jújú, klappstýrur og allur pakkinn. Mæli tvímælalaust með því að skella sér á leik! (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (4):

    vá en spennandi! Voru ekki svona klappstýrur líka? Hvernig voru dansarnir? Oh mig... (Skoða)
  • Halldór Elías Guðmundsson um Mættur til C-bus! (6):

    Velkomin í bæinn, hafandi búid hér í næstum 5 ár er tér velkomid ad hafa... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar