Það var komið að Andra kallinum að bjóða uppá kræsingar á kvikmyndakvöldi gærdagsins. Fyrir valinu varð The Warriors frá 1979, sem er með vinsælli költmyndum þess áratugar. Ég kannaðist lauslega við myndina eftir að hafa ítrekað reynt að finna tónlistina úr henni fyrir Binni mág, sem hefur dálæti á henni. Myndin var annars ágæt – frekar actionlítil, en maður skilur vel hvaðan költ-elementið kemur. Myndi gefa henni 51% ef ég væri þvingaður til gæðamats.
Fyrir rúmri viku síðan hélt Ragnar Árnason, hagfræðiprófessor, fyrirlestur um þróun tekjudreifingar á Íslandi frá 1993 til 2005 á vegum Rannsóknarmiðstöðvar um samfélags- og efnahagsmál. Fjallaði hann þar ítarlega um þá mælikvarða sem gjarnan er beitt til að mæla tekjudreifingu og gerði grein fyrir áfanganiðurstöðum rannsóknar sinnar á viðfangsefninu.
Hafa fjölmargir stuðningsmenn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks tekið niðurstöðum Ragnars fagnandi enda telja þeir rannsóknina hrekja fyrri niðurstöður Stefáns Ólafssonar, félagsfræðiprófessors, en hann hefur gagnrýnt stjörnvöld harkalega fyrir stigvaxandi ójöfnuð á Íslandi í tíð núverandi ríkisstjórnar. Þegar rýnt er í niðurstöður Ragnars má hins vegar sjá að þær hafa engin áhrif á megingagnrýni Stefáns og því lítil ástæða til upphrópana af hálfu hægrimanna. (meira …)
Ég geri mér í hugarlund að þeir ágæta einstaklingar sem leggja þessa tillögu fram séu einlægir stuðningsmenn þess að áfengiskaupaaldurinn verði áfram við 20 ár (eða hærri), fjórum árum eftir að viðkomandi fá kosningarétt nái tillaga þeirra fram að ganga. Er það bara ég, eða er ekkert bogið við það viðhorf?
Hugsa að ég geri rökstuðning þeirra í þingsályktunartillögunni að mínum, þegar ég rökræði við aðra um hvers vegna færa ætti áfengiskaupaaldurinn í 18 ár. Komi einhver með mótrök, hrópar maður vitanlega hátt og snjallt: ,,Öll þessi rök lýsa vantrausti á ungt fólk”
Og hananú!
Röskvulistinn í ár er nú bara með þeim betri sem maður hefur séð! Eftir að hafa verið virkur á þessum vettvangi í sl. þrem kosningum var hins vegar einstaklega undarlegt að mæta á listakynninguna á föstudaginn. Ekki laust við að maður saknaði þess að vera í miðju baráttunnar með öllu þessu góða fólki. Hef hins vegar fulla trú á því fólki sem er allt í öllu núna og vona innilega að hreinn meirihluti Röskvu verði að raunveruleika í febrúar.
Hjálögð er annars mynd úr helvíti hressri vinnuferð Röskvu sumarið 2005. Með mér á myndinni eru snillingarnir Fanney, Eva, Sólrún, Anna Pála og Hrafn…
Hálfsmánaðarlegt kvikmyndakvöld okkar strákanna var síðastliðið þriðjudagskvöld og var röðin komin að mér að velja skemmtiefni kvöldsins. Eftir að hafa kynnt strákana fyrir meistaraverkunum Cidade de Deus, Bridge Over River Kwai og Dr. Strangelove, svo eitthvað sé nefnt, hef ég tekið þann pól í hæðina undanfarið að kynna strákunum fyrir hinni hliðinni á peningnum – vondu myndunum (vondar myndir eru ekki það sama og lélegar myndir, NB). Síðast var það They live frá 1988- nú skellti ég mér á Howard the Duck frá 1986 (félagi Magnús úthúðar valinu á síðunni sinni).
Í stuttu máli fjallar myndin um önd sem á heima í heimi sem er nákvæmlega eins og heimur okkar mannanna… nema í staðinn fyrir menn eru endur. Öndin, Howard, verður fyrir því óláni að verða fyrir lasergeisla frá jörðinni og flyst hann í gegnum geiminn á jörð okkar mannanna. Það sem verra er, illur andi frá annarri plánetu hefur líka komið í gegnum lasergeisla til jarðarinnar og aðeins Howard getur bjargað heiminum! úúú…
Og það eru svo sannarlega engir aukvisar sem standa að þessari mynd!
- Willard Hyuck, sem leikstýrir og skrifar handritið, var tilnefndur til Óskars fyrir handritið að American Graffiti árið 1973,
- snillingurinn Jeffrey Jones sem leikur illa vísindamanninn hafði nýlega verið tilnefndur til Golden Globe-verðlauna fyrir besta leik í aukahlutverki í Amadeus,
- Ian Bryce sem framleiddi myndina var síðar tilnefndur til Óskars fyrir að framleiða Saving Private Ryan,
- John Barry, sem sá um tónlistana er margverðlaunaður af Óskarsakademíunni og öðrum samtökum, m.a. fyrir Dances with Wolves (auk þess á hann heiðurinn að nánast allri tónlistinni í gömlu James Bond myndunum),
- Richard Kline, sem sá um kvikmyndatökuna, hefur tvívegis verið tilnefndur til Óskars fyrir þá iðju,
- Michael Chandler, sem klippti myndina hefur einu sinni verið tilnefndur til Óskars,
- Phil Abramson, sem sá um sviðsmyndina, hafði einu sinni verið tilnefndur fyrir slík þegar framleiðsla á þessari mynd hófst,
- Joe Tompkins, sem sá um búningahönnun, hefur tvívegis verið tilnefndur til Óskars fyrir það,
- Óskarsverðlaunaleikarinn Tim Robbins leikur eitt af aðalhlutverkunum
- og síðast en ekki síst, þá var aðalframleiðandi myndarinnar George Lucas, en hann ber meðal annars ábyrgð á Starwars og Indiana Jones seríunum!
Í þokkabót kostuðu herlegheitin við gerð Howard the Duck 37 milljónir dollara – á verðlagi 1986
Þær miklu vonir sem bundnar voru við að Hetjan Hávarður myndi verða gullnáma fyrir framleiðendur myndarinnar og njóta gífurlegra vinsælda, urðu hins vegar að engu… myndin er almennt talin eitt mesta flopp kvikmyndasögunnar.
Leyfi að fljóta með nokkrum brotum úr myndinni hér að neðan… njótið vel og lengi!
(takið sérstaklega eftir gullkorninu "If you can’t stand the heat, get out of the kitchen" í bandinu hér fyrir neðan…)
Trading Standard Officers have ordered the urgent recall of a defective product found to be faulty and dangerous.
Over the Christmas and New Year period, tests proved the components in the product called “Chelsea FC” would fall apart when placed under the smallest amount of pressure. Consumers first experienced problems last year, when it was noted the product failed to work properly in Europe.
Complaints were made about it malfunctioning and then emitting a continuous whining noise – usually in Portuguese. At the time the complaints were ignored. But when the product started falling apart in Britain over Christmas, the Trading Standards Authority took action.
A spokesman warned: “We particularly want to stress to parents that, with Chelsea FC, there is a genuine risk of choking that may end in tears come May.
Despite assurances from the company behind the product that action was taken to correct the faulty parts, including abandoning the use of the highly unpredictable and sub-standard component “Robert Huth” malfunctions have continued.
Consumers have been urged to check the small print carefully for the words “this product may contain traces of Shevchenko”. If that is the case buyers of the product are urged to put it back in its box and return immediately.
“Shevchenko” has been known to cause a severe allergic reaction in many consumers, causing them to shout involuntarily “You useless “blip” “blip” and “For “blip“ sake bring back Carlton Cole.“