Ójöfnuðurinn stendur í stað… eða hvað?
Fyrir rúmri viku síðan hélt Ragnar Árnason, hagfræðiprófessor, fyrirlestur um þróun tekjudreifingar á Íslandi frá 1993 til 2005 á vegum Rannsóknarmiðstöðvar um samfélags- og efnahagsmál. Fjallaði hann þar ítarlega um þá mælikvarða sem gjarnan er beitt til að mæla tekjudreifingu og gerði grein fyrir áfanganiðurstöðum rannsóknar sinnar á viðfangsefninu.
Hafa fjölmargir stuðningsmenn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks tekið niðurstöðum Ragnars fagnandi enda telja þeir rannsóknina hrekja fyrri niðurstöður Stefáns Ólafssonar, félagsfræðiprófessors, en hann hefur gagnrýnt stjörnvöld harkalega fyrir stigvaxandi ójöfnuð á Íslandi í tíð núverandi ríkisstjórnar. Þegar rýnt er í niðurstöður Ragnars má hins vegar sjá að þær hafa engin áhrif á megingagnrýni Stefáns og því lítil ástæða til upphrópana af hálfu hægrimanna.
Gallaður mælikvarði?
Ragnar eyddi dágóðum tíma af fyrirlestrinum í að fjalla um þann mælikvarða sem oftast er notaður til að mæla tekjudreifingu, svokallaðan Gini-stuðul. (1) Setti hann, réttilega, fyrirvara við það að treysta um of á einnar tölu mælikvarða við það að fanga jafn flókið fyrirbæri eins og tekjudreifingin er. Eins og virðist vera lenska hérlendis hefur þessu í kjölfarið verið flaggað sérstaklega og látið að því liggja að mælikvarðinn sé gallaður – ónothæfur til að mæla ójöfnuð. Vitanlega er Gini-stuðullinn ekki óskeikull, en hann veitir hins vegar í flestum tilvikum mikilvægar vísbendingar sem síðan er hægt að styðja (eða hrekja) með því að skoða aðra mælikvarða. Til að mynda má kanna þróun hlutfalls þeirra sem falla undir fátæktarmörk til að varpa skýrari mynd á viðfangsefnið (þess má geta að þeir hinir sömu og gagnrýna Gini-stuðulinn fóru einnig mikinn í gagnrýni á þá mælikvarða sem beitt var við rannsókn á fátækt barna og var kynnt seint á síðasta ári).
Að mælikvarðinn hafi annmarka gerir hann vitanlega ekki ónothæfan – slíkt á jafnt við um Gini-stuðulinn sem og til dæmis verga landsframleiðslu (VLF), sem er einn útbreiddasti mælikvarðinn sem notaður er til að skoða efnahagslega velgengni þjóða. Aukinn hagvöxtur (mældur sem aukning á VLF milli tímabila) er almennt talinn af hinu góða. Samt auka til dæmis stríð, náttúruhamfarir og sjúkdómsfaraldar hagvöxt. (2) Slíkt gerir mælikvarðann hins vegar vitanlega ekki ónothæfan, fremur en annmarkar Gini-stuðulsins gera hann ónothæfan.
Dreifing atvinnutekna nánast óbreytt
Helstu niðurstöður rannsóknar Ragnars voru þær að dreifing atvinnutekna hefur nánast ekkert breyst frá árinu 1993. Dreifing heildartekna, þ.e. atvinnutekna að viðbættum fjármagnstekjum, hefur hins vegar orðið talsvert ójafnari á tímabilinu, en árið 2005 voru til að mynda 1% framteljenda með um helming allra fjármagnstekna sem taldar voru fram í landinu. Er hér um talsvert stóran hlut að ræða, en fjármagnstekjur hafa aukist úr því að vera um 2-3% af heildartekjum árið 1993 í um 16-17% í lok tímabilsins. Dregur Ragnar þá ályktun að aukningu ójafnaðar heildartekna megi að mestu rekja til þessa 1% framteljenda, en sé þetta 1% tekið út úr reikningsdæminu er hækkun Gini-stuðulsins þannig mun minni.
Í stuttu máli er það því niðurstaða Ragnars að vaxandi ójafnaðar hafi ekki gætt í tíð núverandi ríkisstjórnar, sé miðað við atvinnutekjur annars vegar og heildartekjur, án þeirra allra allra tekjuhæstu, hins vegar.
Gagnrýni hægrimanna
Í kjölfar fyrirlesturs Ragnars hafa hægrimenn farið mikinn í umræðum um þróun tekjudreifingar í tíð núverandi ríkisstjórnar. Þannig býsnast Vefþjóðviljinn til dæmis yfir því að niðurstöðurnar hafi ekki ratað í auknum mæli í fjölmiðla landsins og gefur pistlahöfundur í skyn að það megi útskýra með því að hinir vinstrisinnuðu fjölmiðlar hafi lítinn áhuga á niðurstöðum Ragnars þar sem þær séu ,,…allnokkuð frábrugðnar niðurstöðum Stefáns [Ólafssonar].” Halda þeir félagar áfram og segja meðal annars að ,,öll sú ,,aukna misskiptin” sem mörgum [sé] tamt að ræða hér á landi [sé] samkvæmt niðurstöðum Ragnars lítið annað en hugarburðinn einn.”
Fleiri íhaldsmenn taka í sömu strengi. Árni Helgason, varaformaður Heimdalls, gerir áfanganiðurstöður Ragnars að umfjöllunarefni í pistli á Deiglunni. Segir meðal annars í pistlinum: ,,Það er án efa freistandi og spennandi fyrir stjórnarandstöðuna að mála þá mynd af stjórnarflokkunum tveimur að þeir hafi með aðgerðum sínum hyglað hinum ríku en látið hina tekjulægri reka á reiðanum. Rannsókn Ragnars sýnir hins vegar að ekki er hljómgrunnur fyrir þessum fullyrðingum.” Enn einn Sjálfstæðismaðurinn sem hefur klappað sjálfum sér á bakið í kjölfar fyrirlestursins er svo Birgir Ármannsson, þingmaður. Fjallaði hann um málið á leiðarasíðu Blaðsins 18. janúar síðastliðinn undir fyrirsögninni: ,,Athyglisverður upplýsingar um meintan ójöfnuð”. Merkilega orðað hjá manninum, en greinin er svo sem í sama stíl.
Að misskilja viljandi… eða óviljandi?
Í þeim greinum sem taldar eru upp hér að ofan, sem og í öðrum málflutningi hægrimanna í kjölfar fyrirlestursins, virðist gæta makalauss misskilnings á niðurstöðum Ragnars og hvernig þær snerta rannsóknir Stefáns Ólafssonar á sama viðfangsefni. Hvort um sé að ræða vísvitandi misskilning, ætlaðan til að slá ryki í augu kjósenda, eða ekki, skal ósagt látið, en ljóst er að grundvallaratriði virðast þvælast fyrir þessu annars ágæta fólki. Má í því samhengi helst nefna fjóra veigamikla þætti:
1. Áfanganiðurstöður Ragnars fjalla um dreifingu atvinnu- og heildartekna einstaklinga og fjölskyldna, sem ætti svo sem að vera öllum augljóst sem lesið hafa þessa grein. Megingagnrýni Stefáns og hryggjarstykkið í málflutningi hans er hins vegar þróun ráðstöfunartekna einstaklinga og fjölskyldna, það sem hver og einn hefur til ráðstöfunar þegar skattar hafa verið teknir af heildartekjum og bótum bætt við, þar sem það á við. Það er því grundvallarmisskilningur að halda því fram að niðurstöður Ragnars ómerki á einhvern hátt málflutningi Stefáns.
2. Áfanganiðurstöður Ragnars eru ekki að miklu leyti frábrugðnar niðurstöðum Stefáns um þróun atvinnu- og heildartekna á síðastliðnum áratug. Í grein hans ,,Breytt tekjuskipting Íslendinga” segir meira að segja: ,,Á heildina litið má því segja að aukinn ójöfnuð í tekjuskiptingu Íslendinga virðist ekki nema að litlu leyti mega rekja til aukins ójafnaðar í atvinnutekjum á vinnumarkaði.” Ef að Vefþjóðviljinn og aðrir sem hampað hafa ,,byltingarkenndum” niðurstöðum Ragnars hefðu haft fyrir því að kynna sér málflutning Stefáns ögn ítarlegar, hefðu þeir hinir sömu fljótt séð að niðurstöður Ragnars renna í rauninni að miklu leyti stoðum undir fyrri niðurstöður Stefáns.
3. Megingagnrýni Stefáns og annarra (t.d. stjórnarandstöðunnar) hefur verið á þá skattastefnu sem núverandi ríkisstjórn hefur rekið í sinni tíð og hvernig sú stefna hefur haft óeðlileg áhrif á tekjudreifingu undanfarin ár. Skattleysismörk hafa viljandi verið látin rýrna að raunvirði og fyrir vikið hefur skattbyrði lægstu tekjuhópanna margfaldast á tímabilinu. Þannig greiddi fólk sem var í lægsta tekjuhópnum (skipt í tíu hópa) árið 1996 um 0,9% af heildartekjum sínum í skatta, en árið 2004 var skattbyrði þess komin í um 8,3% heildartekna, sem jafngildir tekjum eins mánaðar af hverju ári. Taflan hér að neðan varpar frekara ljósi á umræddar breytingar.

4. Af ofangreindu má sjá að stjórnvöld hafa með markvissum hætti aukið ójöfnuð í íslensku samfélagi með skattastefnu sinni. Sú niðurstaða hægrimanna í kjölfar fyrirlesturs Ragnars, að stjórnarandstaðan fari með óábyrgan og rangan málflutning er því hreint og beint röng. Stjórnarflokkarnir tveir hafa með aðgerðum sínum hyglað hinum ríku en látið hina tekjulægri reka á reiðanum. Rannsókn Ragnars breytir þar engu um – í henni er tekið á allt öðrum þáttum. Hvort íhaldsmenn hafi einfaldlega misskilið erindi Ragnars að þessu leyti eða séu viljandi að slá ryki í augu kjósenda skal hins vegar ósagt látið.
Lokaniðurstöðu Ragnars beðið
Eins og fram kom á fyrirlestri Ragnars var um áfanganiðurstöður að ræða. Með vorinu eru væntanlegar ítarlegri niðurstöður, þar sem þróun ráðstöfunartekna einstaklinga og fjölskyldna verður sérstaklega tekin fyrir. Vafalaust verður forvitnilegt að sjá hvort niðurstöður Ragnars í þeim hluta verði sambærilegar við niðurstöður Stefáns, enda snýst málið að langstærstum hluta um það. Þær niðurstöður sem Ragnar kynnti í fyrirlestrinum hafa á engin hátt staðið undir þeim leikrænu túlkunum sem hægrimenn hafa lagst í, eins og kemur fram hér að ofan. Vel má vera að slíkt tilefni gefist þegar að lokaniðurstöður hagfræðiprófessorsins liggja fyrir. Þangað til stendur gagnrýni Stefáns og stjórnarandstöðunnar hins vegar óhögguð.
(1) Nánar má lesa um Gini-stuðulinn hér: http://www.hi.is/~gylfason/gini.htm og http://en.wikipedia.org/wiki/Gini_coefficient
(2) Robert Kennedy, fyrrv. öldungadeildarþingmaður, orðaði annmarka vergrar þjóðarframleiðslu, systurkvarða vergrar landsframleiðslu, sem mælikvarða á velgengni, hvað best með eftirfarandi orðum: ,,Verg þjóðarframleiðsla mælir loftmengun, sígarettuauglýsingar og sjúkrabílana sem þarf til að fjarlægja fórnarlömb slysa af þjóðvegum okkar. Hún mælir sérstaka lása fyrir hurðirnar okkar og fangelsin fyrir fólkið sem eyðileggur þá. Hún mælir eyðileggingu skóga og náttúruperlna okkar. Hún mælir framleiðslu á napalmi, kjarnorkusprengjum og brynjuðum bílum fyrir lögregluna til að berjast gegn uppþotum á götum úti. Hún mælir framleiðslu á riflum og bardagahnífum og sjónvarpsefnið sem upphefur ofbeldi til að selja börnum okkar leikföng. Hún mælir hins vegar ekki heilsu barnanna okkar, gæði menntunnar þeirra né ánægjuna í leik þeirra; hún mælir hvorki fegurðina í ljóðskap okkar né styrk hjónabanda okkar, gagnsemi opinberrar rökræðu eða heilindi embættismanna okkar. Hún mælir hvorki vitsmuni okkar né hugrekki, hvorki visku né lærdóm, hvorki samúð né hollustu við landið okkar. Í stuttu máli mæli hún allt, nema það sem gerir lífið þess virði að lifa því.”
Birtist áður á Vefritinu.

Lög um verðtryggingu frá 1979 ásamt vaxtafrelsi um miðjan níunda áratug síðustu aldar björguðu innlendum fjármagnsmarkaði frá algjöru hruni. Verðbólgan var hamin og lánastofninn fóru að vaxa og dafna í...
Síðar í dag munu þingmennirnir 63 við Austurvöll taka afstöðu til þess hvort Ísland eigi að sækja um aðild að Evrópusambandinu (ESB). Í grein dagsins fjallar Agnar Freyr Helgason um...
Lög um verðtryggingu frá 1979 ásamt vaxtafrelsi um miðjan níunda áratug síðustu aldar björguðu innlendum fjármagnsmarkaði frá algjöru hruni. Verðbólgan var hamin og lífeyrissjóðir landsmanna fóru að vaxa og dafna...
Í grein dagsins, sem er sú fyrsta af þremur um viðfangsefnið, fjallar Agnar Freyr Helgason um aðdraganda og forsendur þess að lög um verðtryggingu voru sett árið 1979 og afleiðingar...
Skattleysismörk hafa ekki fylgt launaþróun og fyrir vikið greiðir láglaunafólk sífellt hærra hlutfall tekna sinna í formi skatta . Bendillinn blikkaði með taktföstum hraða og beið óþreyjufullur eftir næstu skipun....