Færslur frá febrúar 2007

Af netlögreglu og neyslustýringu

illegalMaður veltir því stundum fyrir sér hvers virði frelsið er í hugum þeirra sem beita sér hvað harðast fyrir boðum og bönnum – það liggur allavegana ekki alltaf fyrir. Þá á ég ekki endilega við þau grunnvallarmannréttindi sem við Íslendingar blessunarlega njótum heldur jaðarmálin, sem vígalínan markar. Sumum kann að finnast þessi mál smáborgaraleg og lítilfjörleg, að þetta séu einhverskonar poppmál sem taki ekki að ræða í hörgul. Ég skal ekki segja.

Okkur blöskrar flestum við stóru málunum – hlerunum yfirvalda, fyrirætlunum um íslenska leynilögreglu, takmarkanir á innflytjendum og netlögreglu. En hvað með hin (og hugsanlega smáborgaralegu) málin?

Svo fáein séu nefnd: Bjórinn var bannaður til 1989, hann fæst enn sem komið er ekki í matvöruverslunum – hvað þá að frjálsir og fullráða 18 ára einstaklingar geti verslað sér hann.  Tóbaksreykingar verða bannaðar á öllum skemmtistöðum í sumar – stöðum sem hverjum sem er, er fullfrjálst að stunda eða stunda ekki (hefði ekki verið nær að stuðla frekar að fjölgun reyklausra staða?). Neyslustýring er orð dagsins og sykurskattinn má ekki afnema – guð hjálpi æskunni frá því. Og svo eru auðvitað hugmyndirnar um að banna eigi Íslendingum aðgang að erlendum fjárhættuspilasíðum. Raunar hafði talsmaður þess á orði í DV í dag að það væri gríðarlegt áhyggjuefni að framhaldsskólanemendum væri kenndur póker á einhverjum skemmtidögum í Flensborgarskóla. Hrikalegt, alveg hreint.

Það versta við þetta er svo að í flestum tilvikum eru þeir einu sem tjá sig á móti furðufuglar úr Frjálshyggjufélaginu og álíka öfgakenndum samkundum. Ein ánægjuleg undartekning varð þó þar á í Kastljósþætti í fyrrakvöld þegar Ágúst Ólafur, varaformaður Samfylkingarinnar, varði valfrelsið fimlega í rökræðum um neyslustýringu og sykurskattinn við Ögmund Jónasson, Vinstri grænan.

Einkar gleðilegt var að sjá eitt af veigameiri atriðunum sem aðgreinir flokkana tvo undirstrikað með svo augljósum hætti nú í aðdraganda kosninga. Annar flokkanna trúir á hófsamar aðgerðir sem traðka ekki á frelsinu og treystir einstaklingnum best fyrir eigin velferð. Hinn flokkurinn predikar róttækar aðgerðir í öllu milli himins og jarðar -  brýst um eins og  fíll í postulínverslun og er tilbúinn til að gera flest til að uppfylla háleitar hugsjónir flokksmanna sinna.  Tilgangurinn helgar svo sannarlega meðalið á þeim bænum.

Annars óska ég lesendum bara til hamingju með daginn – Skál!

Fyrirheitna landið framundan

Old-TraffordJæja, þá hefur eitt stykki pílagrímsferð til Old Trafford verið sett á Visa/rað! Er stefnan sett á leik Manchester United og Middlesbrough 21. apríl nk., sem ku vera í fjórðu síðustu umferð ensku deildarkeppninnar. Eins og staðan er núna gæti maður bundið vonir við að mínir menn hampi titlinum akkúrat þarna, en í samræmi við hóflega bölsýni mína býst ég við að þetta verði frekar leikur upp á líf og dauða í baráttunni við Chelsea!

Og jú, hin knattspyrnusjúka og hálf-sjötuga móðir mín mun njóta leiksins með mér. Nú er bara að fara að æfa söngvana…

Hvað er að?

Ég keyrði framhjá slysstað skömmu eftir að þetta óhapp varð. Umrædd Civic-bifreið hafði greinilega farið yfir blessaða umferðareyjuna og yfir á rangan vegarhelming, enda sá ég ekki betur en að hún hafi skollið framan á bifreið sem kom úr andstæðri átt. Greinilegt var að mikið hafði gengið á – framstuðarinn á bílnum var tugum metra frá bílnum og glerbrot út um allt.

Það er ekki laust við að ég verði frekar reiðir þegar ég verð vitni að svona ótrúlegu gáleysi. Vitleysingar sem líta á götur borgarinnar sem sinn eigin leikvöll eru stórhættulegir og ógna lífi allra sem voga sér að vera á ferðinni innan um þá. Hafandi sjálfur verið sautján ára skil ég þennan hugarheim svo sem ágætlega – þar blandast saman lygileg trú á eigin ódauðleika og hæfileikum til aksturs.

Ég veit ekki hvað er hægt að gera til að minnka þennan ofsaakstur. Tugir banaslysa, áhrifaríkar auglýsingar og sú fræðsla sem nú er í gangi virðast hafa takmarkað að segja (kannski væri staðan reyndar miklu verri ef fræðslan væri ekki til staðar). Hvernig maður kemur því inn í hausinn á ungum ökuníðingum að þeir hafa undir höndum eitt mesta drápstól 20. aldarinnar og það beri að umgangast af virðingu veit ég ekki. Það þarf þó klárlega að finna við því nýjar lausnir – sjá hvað nágrannalöndin eru að gera og jafnvel brydda upp á róttækum nýjungum.

Þrem mínútum eftir að ég keyrði fram hjá slysstað var ég annars kominn upp á Miklubraut.  Og það var svo  sem ekki að spyrja að því – þrír sportlegir bílar brunuðu fram úr mér á ógnarhraða í kappakstri upp á líf og dauða.

mbl.is Lýst eftir vitnum

Auglýsingamennska

Mikið afskaplega eru nýju Dominos auglýsingarnar leiðinlegar! Talandi brúða, sem er verulega slöpp í tilsvörum, á þar í samskiptum við frekar afkúlaðan náunga – Jesús Pétur, ég fæ grænar bólur og kjánahroll til skiptis þegar ég horfi á þær. Einhvernveginn held ég samt að þrátt fyrir að þetta sé afskaplega slappt sjónvarpsefni, þá séu þetta afbragðs auglýsingar. Það eru til dæmis fjölmargir búnir að ræða við mig um slappleika auglýsinganna og hér sit ég og blogga um þær. Jújú, auglýsingarnar eru leiðinlegar, en enginn gleymir Dominos og allir vita að það er Megavika. Ætli tilgangurinn helgi ekki meðalið í þessu tilviki…

Afnemum launaleyndina

hrannar.jpgÞriðjudaginn 6. febrúar sl. stóðu nemendur í MBA-námi við Háskóla Íslands og Feminstafélagið fyrir opnum fundi um leiðir til að minnka launamun kynjanna. Var málfundurinn haldinn í kjölfar námskeiðsins ,,Greining viðfangsefna og ákvarðanir”, þar sem nemendum var falið að vinna eina tillögu að því hvernig megi minnka launamun kynjanna á Íslandi. Samtals skiluðu átta hópar verkefnum og vakti eitt þeirra sérstaka athygli. Agnar Freyr Helgason heyrði í Hrannari Birni Arnarssyni, forstöðumanni og MBA-nema, sem lagði hönd á plóg við gerð tillögu um afnám launaleyndar á íslenskum atvinnumarkaði.

(meira …)

Gunnar á leið í framboð?

Það læðist sá grunur að mér að Gunnar sé að gera hosur sínar grænar (haha) fyrir Margréti Sverrisdóttur og hennar nýja framboði… Hann er í það minnsta duglegur við að skrifa hressilegar greinar um Magnús Þór, sameiginlegan fjandmann þeirra, og hleypir núna einum helsta bandamanni Margrétar á þing, í fyrsta sinn síðan hann skipti um flokk. Maður veltir því óneitanlega fyrir sér hvort Gunnar hafi áhuga á að ganga til liðs við Margréti og freista þess þannig að framlengja veru sinni á þingi um fjögur ár… Það er hins vegar allt annar handleggur hvort Margrét hafi einhvern áhuga á að fá hann til liðs við sig.

Gaman að þessu.

mbl.is Óháður inn fyrir sjálfstæðismann

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Easy Does It (5):

    Ég er með forrit í símanum sem er svona hlaupaforrit og meira að segja telur skrefin og... (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Jamm, og ef þú nálgast Android eða iPhone síma útí USA þá mæli ég klárlega með Runkeeper. Ég ELSKA... (Skoða)
  • Aggi um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á Nike+… þarf klárlega að græja mig upp með því! (Skoða)
  • Andri um Easy Does It (5):

    Sjá tólin fyrir jólin! (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á þetta. Prógrammið, sem að ég lét þig fá er þó ekki jafn erfitt og þú heldur.... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar