Um afnám verðtryggingarinnar
Ein lauflétt pæling varðandi afnám verðtryggingarinnar. Þeir sem eru á annað borð þess þenkjandi að það þurfi að afnema hana, hvers vegna beita þeir sér ekki frekar fyrir því að Íbúðalánasjóður bjóði óverðtryggð húsnæðislán til jafns við verðtryggð húsnæðislán? Sama markmiðinu væri náð, en án þess að allt færi til fjandans á íslenskum fjármagnsmarkaði.
Það er síðan vitanlega önnur Ella að breytilegu vextirnir á óverðtryggðu lánunum myndu seint hugnast lántakendum. En fólkið hefði allavegana valið.

Í Kastljósinu í kvöld áttu Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, og Össur Skarphéðinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, fjörugar umræður um matvælaverð og mögulegar aðgerðir í landbúnaðarmálum. Undir lok þáttarins rifust þeir um grundvallaratriði í...
Fyrir tæpum þrem árum skrifaði ég þriggja greina bálk um verðtrygginguna (I, II & III), sem birtist á Vefritinu. Í greinunum komst ég að þeirri niðurstöðu að verðtryggingin sem slík...
Á bls. 12 í Fréttablaðinu í dag segir í undirfyrirsögn “Heildsölubanki verður ekki settur á fót” í umfjöllun um niðurstöður stýrihóps yfirvalda um framtíð Íbúðarlánasjóðs. Á bls. 69 í sama...
Stundum finnst mér eins og fólk fatti ekki verðtrygginguna… eða öllu heldur hvað myndi gerast ef hún væri afnumin. Tökum dæmi: Í dag eru vextir á húsnæðislánum 4,6% og við...