Færslur frá febrúar 2007

Fregnir af andláti mínu eru stórlega ýktar

Á síðastliðnum þrem vikum hef ég þrívegis farið til Akureyrar. Ekki misskilja mig, Akureyri er fínt pleis og allt það, en þetta er orðið gott (og rúmlega það).

Af öðrum slóðum

Það er vel hægt að hafa gaman af bloggi Borgars Þórs, formanns SUS. Nýjasta færslan hans finnst mér engu að síður örlítið einkennileg – sérstaklega komandi frá einörðum baráttumanni einstaklingsfrelsisins. Segir meðal annars í færslunni:

Það var ágætur fréttapunktur á baksíðu Markaðarins liðinni viku, þar sem sagði að stór hluti ungmenna, miðað við rannsókn sem gerð hafði verið, teldi að milljarður væri 100 milljónir. Þetta styrkir í það minnsta ekki málstað þeirra sem vilja hverfa frá fulltrúalýðræðinu.

Mér finnst ofangreind niðurstaða reyndar varla heldur styrkja málstað þeirra sem vilja að einstaklingar ráði sem mest um sín eigin mál sjálfir, frjálsir frá forsjárhyggju ríkisvaldsins. Það er í það minnsta sérkennilegt að heyra þessa röksemdafærslu fyrir fulltrúalýðræði frá formanni Sambands ungra Sjálfstæðismanna.

Annars mæli ég hiklaust með pistli Sóleyjar Tómasdóttur um frjálslyndan feminisma – fræðandi og skemmtileg lesning þar á ferðinni.

Glæsilegt

logo2 Ég get rétt ímyndað mér hvernig stemmningin var þegar úrslitin komu í hús í nótt… óskiljanlegur hálfvitaskapur af manni að fara snemma heim!

Fékk annars símtöl frá hálfum tug manneskja og annað eins af sms-um og get ekki sagt annað en að maður hafi hoppað af gleði yfir þessum frábæra árangri.

Til hamingju Röskva – við rústuðum þessu í ár!

mbl.is Röskva hlaut flest atkvæði í kosningum til Stúdentaráðs

Bölvaður bjórinn II

Áfengis- og tóbaksverslun ríksinsFrumvarp fjórtán þingmanna, úr stjórn og stjórnarandstöðu, um afnám einkasölu ríkisins á bjór og léttvíni var tekið til fyrstu umræðu á Alþingi fyrir viku síðan. Hefur málið margoft komið til kasta þingsins áður, en aldrei fengið afgreiðslu úr nefnd hingað til.

Vandséð er hvað veldur því að málið fái ekki brautargengi enda nýtur það þverpólitískrar samstöðu og hafa skoðanakannanir sýnt að meirihluti þjóðarinnar er fylgjandi því að bjór og léttvín megi selja í matvöruverslunum. Í ljósi þessa hljóta því að liggja fyrir veigamikil rök gegn breytingunni enda virðist almennur vilji vera fyrir því að frumvarpið nái fram að ganga. (meira …)

Kvikmyndaveisla

babelHef séð fimm misgóðar bíómyndir í vikunni. Er ansi duglegar að horfa þessa dagana, enda er óskarskeppni okkar strákanna eftir rétt rúmlega tvær vikur. Verður þar barist um eftirsóttan farandbikar í sjöunda skiptið, en ég hef hingað til ALLTAF lent í öðru sæti! Nett frústrerandi.

Annars tökum við strákarnir okkur vel hátíðlega í aðdraganda Óskarsins og tjáum okkur lítið sem ekkert um myndirnar sem tilnefndar eru. Gummi er klárlega verstur hvað það varðar.  Horfði þannig með Andra í gær á Babel og eftir myndina áttum við vandræðalegt spjall um hversu mörg tungumál hefðu nú verið töluð í myndinni. Síðan fór hann.

Myndin var… ágæt.

Tög:

Hver höndin uppá á móti annarri

Sá mikli málefnaágreiningur sem einkennir flokksbrot Sjálfstæðisflokksins hlýtur að vera mikið áhyggjuefni fyrir stuðningsmenn flokksins. Í hverju málinu á fætur öðru finnur maður hvernig fjarar undan flokknum – samlíf frjálshyggjumanna og íhaldsmanna hefur sjaldan verið eins miklum erfiðleikum háð. Nú er svo komið að hver höndin er upp á móti annarri og kristallast það vel í ályktun Úngra. Hvaða skoðun ætli Siggi Kári, Birgir Ármanns, Sigríður Andersen og Pétur Blöndal hafi annars á þessum sauðfjárræktarsamningi?

##########

Á sama tíma er flokkurinn í allt að því sögulegu lágmarki í skoðanakönnunum – í frjálsu falli myndu sumir segja. Fyrir einungis fjórum mánuðum mældist flokkurinn með 43% fylgi í könnun Capacent, en í nýjustu könnuninni horfa flokksmenn uppá 37% fylgi – 6% tap og heilir 3 mánuðir til kosninga. Sætir þetta tíðindum enda hefur Flokkurinn ætíð mælst mjög sterkur á milli kosninga og jafnvel á stundum slagað upp í helmingsfylgi þeirra sem taka afstöðu. Nú eru hins vegar blikur á lofti. Rasískar áherslur Frjálslynda flokksins höfða til afmarkaðs kjósendahóps Sjálfstæðismanna, Sjálfstæðismönnum í hópi eldri borgara svíður undan “þakklæti” flokksins fyrir vel unnin ævistörf, umhverfisstefnan er tvö orð (“HÆGRI-GRÆN”), hagfræðingum hrýs hugur við áframhaldandi efnahags-ó-stjórn flokksins og fylgjendur velferðarsamfélagsins sjá fram á endanlega útför þess haldi núverandi ríkisstjórn völdum eftir kosningarnar í vor. Þær skoðanakannanir sem komið hafa fram að undanförnu hljóta því að vera mikið áhyggjuefni fyrir Valhallarmenn.

##########Annars er gaman að því að allar greinarnar sem birst hafa á sús.is í febrúarmánuði fjalla með einum eða öðrum hætti um Samfylkinguna og Ingibjörgu Sólrúnu. Hvernig er það – stríða litlir strákar ekki mest stelpunum sem þeir eru skotnastir í?

mbl.is Ungir sjálfstæðismenn gagnrýna sauðfjársamning

    Nýjustu ummælin

  • Agnar Freyr Helgason um Ameríski háskólaboltinn (4):

    Þeir eru reyndar bara á haustin… en hey, við finnum örugglega eitthvað... (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (4):

    Eru ekki alltaf leikir allt árið? Kannski dreg ég þig á leik þegar ég kem í heimsókn :) (Skoða)
  • Aggi um Ameríski háskólaboltinn (4):

    Jújú, klappstýrur og allur pakkinn. Mæli tvímælalaust með því að skella sér á leik! (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (4):

    vá en spennandi! Voru ekki svona klappstýrur líka? Hvernig voru dansarnir? Oh mig... (Skoða)
  • Halldór Elías Guðmundsson um Mættur til C-bus! (6):

    Velkomin í bæinn, hafandi búid hér í næstum 5 ár er tér velkomid ad hafa... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar