Færslur frá mars 2007

Baugsmálssía á mbl.is?

Mikið afskaplega er maður orðinn leiður á þessari síbylju af fréttum um Baugsmálið. Þetta er í hverjum einasta fréttatíma á hverjum einasta degi í hverri einustu viku, sem er einfaldlega ekki í neinu samræmi við mikilvægi þessa máls. Til gamans gúgglaði ég orðið ,,Baugsmálið“… rúmlega tuttugu þúsund niðurstöður takk fyrir kærlega!

Held að það væri þjóðráð fyrir Moggamenn að bjóða upp á Baugsmálssíu fyrir þá notendur mbl.is, sem eru gjörsamlega búnir að fá sig fullsadda af þessu máli – maður gæti þá virkjað síuna og hún myndi einfaldlega sía í burtu allar fréttir um þetta blessaða mál.

Það væri sko þjónusta í lagi.

mbl.is Gestur: Því fer víðsfjarri að saksóknari hafi gætt hlutleysisskyldu

Duglegir bloggarar og ekki svo duglegir bloggarar

Ég hef verið í meira lagi húðlatur við að festa hugsanir mínar á blað undanfarna daga, ef frá er talin Indlandsúttektin mín á Vefritinu um helgina. Helgast það af ýmsu – ekki síst tímaleysi. Er ég ekki frá því að ég muni fara að agítera fyrir 28 klst deginum aftur.Helgin var annars viðburðarrík að vanda. Á föstudaginn var ljómandi skemmtilegt gigg í vinnunni fram eftir kvöldi, hvaðan ég fór síðan á árshátíð Röskvu. Á laugardaginn stillti svo stjórn Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík strengi sína saman í híbýlum mínum. Snyrtilegri samkundu hef ég aldrei haldið.

Hvað um það – framundan eru spennandi vikur og heiti ég því að vera duglegri við þessa iðju! Þangað til mæli ég eindregið með fréttaskýringu Gumma Steingríms, pistli Evu Kamillu, vangaveltum Jónasar, úttekt Dofra, eldmóði Jóhönnu, ræðu Kötu,  hugsjónum Gústa, greinum Árna Páls og bíræfni Borats.

Indland á krossgötum

Forsíða Business Week, 19. mars 2007Indverska hagkerfið hefur tekið stakkaskiptum á undanförnum tveim áratugum. Dregið hefur verið úr ríkisafskiptum af efnahagslífinu og hagkerfið hefur verið opnað fyrir erlendum viðskiptum og fjárfestingu. Árangurinn hefur ekki látið standa á sér, enda hefur hagvöxtur verið með því mesta meðal stærri hagkerfa í heiminum og mikil sókn er í indverska tölvu- og tækniiðnaðinum. Það er hins vegar ýmislegt sem bendir til þess að innviði Indlands þola ekki frekari vöxt – vegakerfi landsins er kaótískt, skólpkerfið ræður illa við rigningatímabil sumarsins, rafmagnstruflanir eru tíðar og hið lýðræðislega ferli er að mörgu leyti viðkvæmt fyrir bíræfnum popúlískum áróðri. Í helgarumfjöllun vikunnar fjallar Agnar Freyr Helgason um krosgöturnar sem Indland er á og hvaða lausnir eru í sjónmáli fyrir innviði indverska hagkerfisins. (meira …)

Rivaldooo

Ég var að reka augun í það á Vísi að það er búið að velja fallegasta markið í sögu Barcelona. Þriðja mark Rivaldo gegn Valencia í síðustu umferð spænsku deildarkeppninnar 2000-01 varð fyrir valinu og get ég ekki sagt annað en að það standi vel undir nafnbótinni. Barcelona og Valencia höfðu háð hatramma baráttu um 4. sætið enda veitti það þátttökurétt í Meistaradeildinni árið eftir. Fyrir leikinn var Barcelona þrem stigum fyrir neðan Valencia og því dugði ekkert nema sigurinn.

Þegar rúmlega 88 mínútur voru liðnar af leiknum var staðan 2-2 og hafði Rivaldo skorað bæði mörk Barca með bylmingsskotum utan af velli. Hann bætti um betur á 89. mínútu með geggjuðu marki – hjólhestaspyrnu fyrir utan teiginn. Skelli því inn hérna fyrir neðan.

Rivaldo var annars yfirleitt algjör skíthæll á vellinum – sífellt að láta sig detta og kvartandi yfir mótherjanum. Maður hefur því óneitanlega blendnar tilfinningar til kappans… en góður var hann! Skemmtilegt dæmi um listræna tilburði Rivaldos fremst í myndbandinu hérna fyrir neðan… Mæli reyndar með áhorfi á allt myndbandið – það er alveg hreint bráðskemmtilegt!

##############

Annars er Ágúst Ólafur með mjög athyglisverða upptalningu á heimasíðunni sinni.

Blessuð dýrin

SnakesÉg get ekki ímyndað mér að það sé skemmtilegt að horfa einn á Snákaflug – myndin er einfaldlega þess eðlis að maður verður að geta hæðst að henni á meðan áhorfinu stendur! Sem B-mynd stendur hún ágætlega undir nafni – nakta fólkið deyr snemma, hetjan segir hæfilega marga epíska frasa og almenn eðlisfræðilögmál gilda eftir hentugleika. Semsagt, prýðileg skemmtun.

###

Baggalútur er góður: ,,Myndin er vissulega erótísk – en deila má um hvort hún sé beinlínis klámfengin.”

Glory Glory Man Utd!

Xavier,,Hann hefði átt að lyfta boltanum, það hefði ég gert” sagði hálf-sjötug móðir mín þegar Wayne Rooney klúðraði enn einu færinu í leik kvöldsins. Ég er óneitanlega farinn að hlakka til að fara á völlinn með henni enda er ekki nema mánuður í þetta… og leikurinn sá sami og var í kvöld: Man Utd vs Middlesbro. Samkvæmt lauslegum útreikningum mínum er stjarnfræðilegur möguleiki á því að við horfum uppá United verða Englandsmeistara þann daginn… það þarf þó ansi mikið að ganga upp til að svo verði.

Annars hefur hárið á Abel Xavier (sjá hjálagða mynd) sjaldan verið jafn skelfilegt!

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Easy Does It (5):

    Ég er með forrit í símanum sem er svona hlaupaforrit og meira að segja telur skrefin og... (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Jamm, og ef þú nálgast Android eða iPhone síma útí USA þá mæli ég klárlega með Runkeeper. Ég ELSKA... (Skoða)
  • Aggi um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á Nike+… þarf klárlega að græja mig upp með því! (Skoða)
  • Andri um Easy Does It (5):

    Sjá tólin fyrir jólin! (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á þetta. Prógrammið, sem að ég lét þig fá er þó ekki jafn erfitt og þú heldur.... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar