Ég var að reka augun í það á Vísi að það er búið að velja fallegasta markið í sögu Barcelona. Þriðja mark Rivaldo gegn Valencia í síðustu umferð spænsku deildarkeppninnar 2000-01 varð fyrir valinu og get ég ekki sagt annað en að það standi vel undir nafnbótinni. Barcelona og Valencia höfðu háð hatramma baráttu um 4. sætið enda veitti það þátttökurétt í Meistaradeildinni árið eftir. Fyrir leikinn var Barcelona þrem stigum fyrir neðan Valencia og því dugði ekkert nema sigurinn.

Þegar rúmlega 88 mínútur voru liðnar af leiknum var staðan 2-2 og hafði Rivaldo skorað bæði mörk Barca með bylmingsskotum utan af velli. Hann bætti um betur á 89. mínútu með geggjuðu marki – hjólhestaspyrnu fyrir utan teiginn. Skelli því inn hérna fyrir neðan.

Rivaldo var annars yfirleitt algjör skíthæll á vellinum – sífellt að láta sig detta og kvartandi yfir mótherjanum. Maður hefur því óneitanlega blendnar tilfinningar til kappans… en góður var hann! Skemmtilegt dæmi um listræna tilburði Rivaldos fremst í myndbandinu hérna fyrir neðan… Mæli reyndar með áhorfi á allt myndbandið – það er alveg hreint bráðskemmtilegt!

##############

Annars er Ágúst Ólafur með mjög athyglisverða upptalningu á heimasíðunni sinni.