Fundur Samfylkingarinnar um þær áskoranir sem framundan eru í efnahagslífinu var afar athyglisverður. Jón Sigurðsson kynnti þar rit sem starfshópur undir hans stjórn vann að og tekur meðal annars á gífurlegu ójafnvægi í þjóðarbúskapnum, miklum viðskiptahalla, hárri verðbólgu og þeim ólgusjó sem krónan hefur siglt undanfarin sex ár. Ritið tekur með yfirveguðum og framsýnum hætti á þessum hættumerkjum og gerir ennfremur ágætlega grein fyrir öðrum álitaefnum í efnahags- og viðskiptalífi landsins.

Ég get ekki sagt annað en að ritið sé einstaklega vel heppnað og þarft innlegg í umræðuna fyrir kosningarnar enda keppast nú stjórnmálaflokkarnir við að byggja skýjaborgir næsta kjörtímabils. Það er vissulega gott að vita til þess að á meðan heldur Samfylkingin jarðtengingunni og undirstrikar raunar mikilvægi efnahagslegs stöðugleika fyrir framfarir í íslensku þjóðfélagi – hvort sem er í atvinnulífinu eða velferðarkerfinu.

mbl.is Hagstjórnarvandi næstu ríkisstjórnar verður ærinn