Að koma illa undan vetri
Nú þegar fyrstu sólargeislar sumarsins eru farnir að leika um loftið er ekki úr vegi að velta sér upp úr því í hversu arfaslöku ástandi maður er eftir veturinn. Þannig skellti ég mér á fótboltaæfingu á fimmtudaginn síðasta: Eftir tvo frekar hressilega spretti á fyrstu 4 mínútunum var ég sprunginn á limminu og eyddi næstu 56 mínútum í markinu… og var frekar móður við það. Eins pólitískur og maður er nú var maður fljótur að afsaka þetta – ég hafði jú nýlokið við að gúffa í mig hálfri Megaviku-pepperoni pizzu!
Landvinningar mínir í hreyfingu héldu síðan áfram fyrr í dag þegar ég hjólaði héðan úr Vesturbænum í heimsókn til múttu upp í Breiðholtið. Þrátt fyrir að hér sé verið að velta sér upp úr vafasömu líkamlegu ástandi mínu eftir veturinn er ekki úr vegi að velta vitsmunalega ástandinu líka fyrir sér, enda hafði ég einungis eitt stykki Snickers súkkulaði og hálfan lítra af Coke Zero með mér í þessa svaðilför…
Snickersið fór frekar illa í magann og ég þurfti að stoppa svona fjórum sinnum á leiðinni sökum þess hvað ég varð uppþembdur af hinum ljúfa sykurlausa mjöð!
Ferðin uppeftir tók mig annars 69 mínútur með öllum stoppum meðtöldum, sem mér fannst alveg ágætt miðað við allt og allt. Það var þó gjörsamlega allur vindur úr mér eftir ferðalagið, enda gjörsamlega orkulaus og búinn á því. Þegar ég lyppaðist síðan ofan í stofusófann í Strandaseli 5 horfði móðir mín alvörugefin á mig og spurði með áhyggjufullum tón: ,,Þú ert ekkert búinn að missa prófið, er það nokkuð?”
Móðir mín hefur semsagt alveg óbilandi trú á mér.
Eftir endurnærandi stopp hélt ég síðan heim á leið og get vottað að sú leið er mun fljótfarnari. Var bara 44 mínútur þá leiðina…. og inn í því er m.a.s. stopp í búð til að kaupa mjólk út á hafragraut morgundagsins!

15. september 2007 @ 14:51
fat burning technique
I just wanted to say hello to you people.