Frá og með miðnætti verða reykingar bannaðar á kaffihúsum og skemmtistöðum. Ég get ekki annað en verið sammála Ölstofueigendum um að þessar aðgerðir séu alltof róttækar og beri ekki með sér einn einasta vott af meðalhófi. Fyrir tæpum þrem árum – þegar ég var ungur og frjálslyndur maður (eins og ég er reyndar ennþá, þrátt fyrir að tilheyra ekki lengur klúbbi með því nafni) – reit ég grein um málið og held ég svei mér þá að hún hafi þolað tímans tönn ágætlega. Þrátt fyrir þetta mun maður þó auðvitað ekki gráta það að koma heim af djamminu reyklyktarlaus… já, svona er maður mikill hræsnari.