Færslur frá júní 2007

Fyrir vandláta

Það er óhætt að mæla með þýsku myndinni Das Leben der Anderen, sem er sýnd í Háskólabíói um þessar mundir. Leikstjórinn skapar kyngimagnað andrúmsloft og leikararnir eru frábærir, sérstaklega sá sem leikur Stasi-manninn Wiesler. Það er ekki að furða að myndin hafi sópað að sér verðlaunum (m.a. besta erlenda mynd á Óskarnum) og sé með 8,5 af 10 á imdb.com.

Hætturnar leynast víða

Á síðustu árum hef ég meðal annars ferðast til Bangkok, Sarajevo og Vilnius og aldrei lent í neinu… Bróðir minn, sem aldrei ferðast neitt, fer til Kaupmannahafnar og lendir í vopnuðu ráni.  Magnað.

Póker, bílar og konur

Það er hálf kjánalegt að nokkur hundruð manns megi ekki hittast og spila póker fyrir fjögur þúsund kallinn.

Annars var ég að horfa á Jeremy Clarkson í The Good, the Bad & the Ugly þar sem hann fer á bandaríska grund og kíkir á nokkra ameríska kagga… í stuttu máli þá rakkar hann nánast alla bílana niður úr öllu valdi. Eitt besta kvótið er vafalaust þegar hann lýsti einum á eftirfarandi hátt:

In many ways this car is like herpes – great fun catching it, not so much fun to live with everyday.

Og jú… síðan mætir maður auðvitað með bleikt bindi í vinnuna á morgun.

Argentínumennirnir kunna þetta

Iðnaðarráðherrann flottur

Össur Skarphéðinsson við fyrrverandi landbúnaðarráðherra í umræðum á þinginu, fyrr í dag:

Þeir menn sem taka að sér þá ábyrgð að vera formenn stjórnmálaflokka eiga ekki að koma vælandi hvað eftir annað og kvarta undan því að það sé einhverju blaði að kenna sem kannanir sýna að 5% þjóðarinnar lesa.

Þetta kallar maður sko innpökkun.

Afsökunarbeiðni

Næsti landsliðsþjálfari Íslands? Ég vil biðja félaga Magnús Má opinberlega afsökunar á því að hafa gert honum þann grikk að bjóða honum á landsleik Íslands og Liechtenstein. Þvílíkan hörmungarleik hef ég ekki farið á síðan ég sá ÍR spila við Hött árið 1992… í 6. flokki. Ég skemmti mér öllu meira yfir áhorfendunum sem sátu í kringum mig og þá sér í lagi piltunum sem fóru að syngja ,,We are the Champions” þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður. Ekkert lag hefði getað verið meira viðeigandi á leik þessara tveggja stórkostlegu liða. Nú er bara að vona að þjálfarinn sjái að sér og hætti þessu eftir Svíaleikinn. Biðla jafnframt til KSÍ að fá Mr. G aftur í starfið… nú eða þá að tjékka á því hvort Guus Hiddink eða Bora Milutinovic séu ekki til í að bjarga málunum.

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Easy Does It (5):

    Ég er með forrit í símanum sem er svona hlaupaforrit og meira að segja telur skrefin og... (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Jamm, og ef þú nálgast Android eða iPhone síma útí USA þá mæli ég klárlega með Runkeeper. Ég ELSKA... (Skoða)
  • Aggi um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á Nike+… þarf klárlega að græja mig upp með því! (Skoða)
  • Andri um Easy Does It (5):

    Sjá tólin fyrir jólin! (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á þetta. Prógrammið, sem að ég lét þig fá er þó ekki jafn erfitt og þú heldur.... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar