Stórveldi 20. aldarinnar eru á hælunum að berjast fyrir lífi sínu í efstu deild
skrifar Pétur Gunnarsson, ritstjóri. Hér er að sjálfsögðu átt við Framsóknarflokkinn, en ekki gengi KR og Fram í karlafótboltanum, eins og hinn almenni lesandi kynni að halda.
Þegar maður hefur gjörsamlega EKKERT að gera þá er ágætis skemmtun í því að kíkja á hvaða kvikmyndir eru væntanlegar í bíó frá Hollywood á næstu mánuðum. Að vel ígrunduðu máli er ég spenntastur fyrir þessum af þeim sem eiga eftir að koma fram að jólum, í handahófskenndri röð:|
- Bourne Ultimatum: Fyrstu tvær Bourne-myndirnar eru með betri spennu-/hasarmyndum síðari ára. Bíð í ofvæni eftir þessari.
- Michael Clayton: Með George Clooney í aðalhlutverki og leikstýrt/skrifuð af sama náunga og skrifaði handritin að Bourne-myndunum. Ætli þeð sé ekki nettur The Firm undirtónn í henni?
- The Heartbreak Kid: Stiller-feðgarnir eru örugglega þeir fyndnustu í heiminum – Ben Stiller náttúrulega alltaf klassískur og Jerry Stiller ódauðlegur eftir að hafa brillerað sem pabbi George Costanza í Seinfeld. Ef hún nær sömu hæðum og síðasta Farelly-myndin sem Ben Stiller var í, þá verður maður ekki svikinn (þeir bræður hafa að vísu gert ansi mikið af rusli síðan þá).
- No Country For Old Men: Coen-bræðurnir eru ekki óskeikulir, en það eru fáir betri en þeir þegar þeir eru í sínu besta formi. The Big Lebowski, Fargo og Blood Simple votta það.
- American Gangsters: Russell Crowe og Denzel Washington með Ridley Scott (Gladiator) á bakvið myndavélina. Einhvern veginn veit ég að þessi verður mjöööög góð.
- 3:10 to Yuma: Ef einhverjir verða flottari en Russell og Denzel á hvíta tjaldinu í haust, þá eru það klárlega Russell og Christian Bale. Gladiator og Batman í einni og sömu myndinni – það eru sko flugeldasýning!
Það voru nú nokkrar flugar slegnar í einu höggi í ferðinni austur á land, já heldur betur. Heimsótti fyrsta heimili beggja foreldra minna og myndaði í bak og fyrir.
Foreldrar pabba fluttu á Viðborð í Austur-Skaftafellssýslu í kringum 1930, að því er ég best veit. Húsið byggðu þau og bjuggu í því til ca. 1940, en pabbi gamli fæddist 1938. Húsið hefur nokkurn veginn staðið autt síðan þá og ætti ekki að fara framhjá neinum sem keyrir hringveginn. Útsýnið frá bæjardyrunum út Hornafjörðinn er alveg magnað.
|
Foreldrar múttu áttu heima á Strandgötu 23 á Eskifirði, sem hét Brautarholt áður en farið var að gefa götum sérstök nöfn. Mamma átti heima þarna fyrstu 23 árin. Merkilegt nokk þá þekkti húsfreyjan mömmu þegar ég var að mynda húsið og bauð okkur inn… get ekki sagt annað en að það hafi verið gaman að sjá gamla herbergið þeirrar gömlu!
|
Myndin hérna til hliðar er svo af Bakka á Eskifirði, en báðar ömmur mömmu og annar afinn áttu saman heima í þessu litla húsi. Guðjón og Halldóra, foreldrar mömmu, áttu semsagt bæði heima þarna þegar þau voru yngri og er það varla djarft að álykta sem svo að það hafi haft mikið um það að segja að þau giftust síðar meir… gaman að þessu.
Jæja, þá er fínni ferð um gjörvallt Austurlandið lokið. Fórum víða – heimsóttum Viðborð, Djúpavog, Breiðdal, Reyðarfjörð, Eskifjörð, Borgarfjörð eystri, Hollormsstaði, Atlavík, Lagarfljótið, Skriðuklaustur, Kárahnjúka, Egilsstaði og Tókastaði. Skemmtilegast var auðvitað að rölta um Eskifjörð með múttu en hún átti einmitt heima þar í ein fjörutíu ár eða svo.
Ég er á leiðinni austur á land snemma í fyrramálið með múttu, bróa, mágkonunni, Halldóru frænku og Bjarna frænda. Við verðum í nokkra daga – gistum í Breiðdal, á Egilsstöðum og svo smellum við okkur í sumarbústað. Þau ætla síðan að klára hringinn, en ég flýg heim frá Egilsstöðum á sunnudaginn (flugmiðinn var á 3.500 kall, sem er verð sem er mér afar þóknanlegt!).
Þetta er annars í fyrsta sinn síðan ’95 sem ég fer eitthvað austar en Höfn. Við ætlum einmitt að stoppa þar og virða aðeins betur fyrir okkur húsið sem afi gamli (pabbi pabba) byggði í kringum 1930 og hefur staðið autt frá því að pabbafjölskylda flutti þaðan áratug síðar. Ég hef nokkrum sinnum komið þar fyrir utan (enda stendur það alveg við þjóðveginn), en ætla að hætta mér inn í þetta skiptið og skoða mig betur um.
Skemmtilegast verður annars að fara með mömmu og bróa til Eskifjarðar, en familían átti einmitt heima þar fram til 1980. Hlakka mikið til að fá guided tour um þorpið – hvar hvað gerðist og sa videre.
Bjarni frændi, sem verður 5 ára í sumar, verður örugglega líka hress félagsskapur. Hann er keppnismaður mikill eins og frændi sinn og finnst ekkert verra en að tapa (ditto)… Borðaði einmitt kvöldmat með honum í gær og hann tilkynnti mér, þegar ég var nýbúinn að fá mér ábót og hann alveg að klára af disknum sínum að við værum í keppni um hver væri fljótari að klára af disknum. 10 sekúndum síðar hrósaði hann sigri og var óspar á að núa salti í sárin. Gleðin er hins vegar ekki alveg eins mikil þegar hann tapar – þá blótar hann í sand og ösku og endurtekur ,,Damn it” í sífellu!

DJ Mjódd kominn í gírinn og að undirbúa þriðja vers af rímunni sinni á Húsafellarkonsertnum.