Þegar maður hefur gjörsamlega EKKERT að gera þá er ágætis skemmtun í því að kíkja á hvaða kvikmyndir eru væntanlegar í bíó frá Hollywood á næstu mánuðum. Að vel ígrunduðu máli er ég spenntastur fyrir þessum af þeim sem eiga eftir að koma fram að jólum, í handahófskenndri röð:|

  • Bourne Ultimatum: Fyrstu tvær Bourne-myndirnar eru með betri spennu-/hasarmyndum síðari ára. Bíð í ofvæni eftir þessari.
  • Michael Clayton: Með George Clooney í aðalhlutverki og leikstýrt/skrifuð af sama náunga og skrifaði handritin að Bourne-myndunum. Ætli þeð sé ekki nettur The Firm undirtónn í henni?
  • The Heartbreak Kid: Stiller-feðgarnir eru örugglega þeir fyndnustu í heiminum – Ben Stiller náttúrulega alltaf klassískur og Jerry Stiller ódauðlegur eftir að hafa brillerað sem pabbi George Costanza í Seinfeld. Ef hún nær sömu hæðum og síðasta Farelly-myndin sem Ben Stiller var í, þá verður maður ekki svikinn (þeir bræður hafa að vísu gert ansi mikið af rusli síðan þá).
  • No Country For Old Men: Coen-bræðurnir eru ekki óskeikulir, en það eru fáir betri en þeir þegar þeir eru í sínu besta formi. The Big Lebowski, Fargo og Blood Simple votta það.
  • American Gangsters: Russell Crowe og Denzel Washington með Ridley Scott (Gladiator) á bakvið myndavélina. Einhvern veginn veit ég að þessi verður mjöööög góð.
  • 3:10 to Yuma: Ef einhverjir verða flottari en Russell og Denzel á hvíta tjaldinu í haust, þá eru það klárlega Russell og Christian Bale. Gladiator og Batman í einni og sömu myndinni – það eru sko flugeldasýning!