Færslur frá júlí 2007

UJ í Húsafelli

Sirkusþrautir í morgunsáriðUngir jafnaðarmenn fjölmenntu í Húsafell á laugardaginn í árlega útilegu samtakanna. Það var mikið stuð – sungið, spilað, leikið, keppt, spurt og leitað, svo fátt eitt sé nefnt. Dömurnar að Norðan fá klárlega prik í kladdann fyrir frábæran ratleik (sem mitt lið vann) og ekki síðri spurningakeppni (sem mitt lið vann líka), en Kubbur (no comment) var svo sem ágætur líka.

Annars var hópurinn nokkuð lengi í gang eftir votviðri framan af kvöldi – þegar líða fór á nóttina var hins vegar allt slíkt gleymt. Fótboltinn fékk að rúlla (þar sem ég átti eina mögnuðustu innkomu seinni ára), undarlegar sirkusþrautir voru reyndar (sbr. mynd til hliðar) og Magnús Már Guðmundsson og fleiri gerðu hetjulegar tilraunir til að slæda með stæl.

Ég geri fastlega ráð fyrir að MMG birti myndir af hópleiknum á síðunni sinni von bráðar.

Dexter

DexterÉg er ekki frá því að Dexter sé vel þess virði að mæla með. Sótti mér fyrstu þáttaröðina einhverntímann í vetur og prófaði að skella fyrsta þættinum í fyrir stuttu og fannst þetta líka svona prýðilega gott sjónvarpsefni.

Dexter sjálfur, sem þáttaröðin fjallar um, minnir talsvert mikið á Patrick Bateman úr American Psycho… höfundarnir gera sér vafalaust grein fyrir þessu enda notar hann dulnefnið “Dr. Patrick Bateman” í einum þáttanna.

Hvað um það, svarti húmorinn hittir beint í mark hjá mér.

Lögleiðum pókermót

poker-chips.jpgFyrir mánuði síðan var fyrsta opinbera pókermótið á Íslandi stöðvað af lögreglu. Var mótinu þannig háttað að hver þátttakandi borgaði 4.000 króna þátttökugjald gegn afhendingu spilapeninga og átti gjaldið að renna óskipt til þeirra sem efstir yrðu á mótinu. Rúmlega 150 spilarar mættu til leiks, en innan við þrjátíu spilarar voru eftir þegar mótið var leyst upp, fimm tímum eftir að það hófst. Aðgerðir lögreglunnar ollu mikilli reiði meðal þeirra sem komu að mótinu enda vandséð hvernig mótið var frábrugðið öðrum keppnum sem innheimta þátttökugjald og greiða út vinninga í reiðufé, en fara fram án afskipta lögreglunnar. Í kjölfarið hefur spunnist talsverð umræða um aðgerðirnar og ekki síður hvort virkilega sé rétt að banna pókermót með öllu á Íslandi. (meira …)

Tög:

Die Hard lagið

    Nýjustu ummælin

  • Margrét Rós um Ameríski háskólaboltinn (5):

    ég er ekki að ná utan um þessar tölur! Þetta er svaðalegt… Mikið er ég annars... (Skoða)
  • Agnar Freyr Helgason um Ameríski háskólaboltinn (5):

    Þeir eru reyndar bara á haustin… en hey, við finnum örugglega eitthvað... (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (5):

    Eru ekki alltaf leikir allt árið? Kannski dreg ég þig á leik þegar ég kem í heimsókn :) (Skoða)
  • Aggi um Ameríski háskólaboltinn (5):

    Jújú, klappstýrur og allur pakkinn. Mæli tvímælalaust með því að skella sér á leik! (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (5):

    vá en spennandi! Voru ekki svona klappstýrur líka? Hvernig voru dansarnir? Oh mig... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar