Færslur frá ágúst 2007

Þráhyggja

Á sínum tíma var ég spurður að því hvernig í ósköpunum væri hægt að skrifa heilar þrjár greinar um verðtrygginguna. Ég fussaði nú yfirleitt yfir slíkum vangaveltum enda verðtryggingin margslungin og athyglisvert viðfangsefni. Það er hins vegar ekki laust við að ég finni mig í sömu sporum og viðmælendur mínir yfir greinum rokkarans Bjarna Más á Deiglunni um landgrunnið… Hann er kominn í sex og virðist ótrauður halda áfram! Ætli hann nái 10?

Ron Paul

Ég var að skella inn nýju myndbandi í stikuna hér til hliðar. Alveg kostugleg of-dramatiseríng á Ron Paul, sem sækist eftir forsetaútnefningu Repúblikanaflokksins, og hugsjónum hans. Tónlistin, sem er úr Batman Begins að mig minnir, og uppbyggingin myndbandsins lætur mann fá það á tilfinninguna að eitthvað sögulegt sé í vændum… en maður veit víst betur en svo.

Paul for prez!

Kostnaðarvitund ársins

Það er gott og þarft að lesa Vefþjóðviljann annað slagið. Pistill dagsins er þannig sérlega fróðlegur, en þar hampa andríkismenn rúmlega 150 ára gamalli hugmynd eins af höfuðhugmyndafræðingum þeirra, Lysander Spooner. Segir meðal annars um hugmyndina:

Spooner virðist hins vegar hafa gert sér grein fyrir að erfitt yrði að takmarka vald ríkisins við það að vernda einstaklingana gegn ofbeldi hvers annars. Í ritinu An Essay on The Trial by Jury sem kom út árið 1852 lagði Spooner til byltingarkenndar úrbætur á réttarkerfinu. Hann vildi ekki aðeins að kviðdómur dæmdi í öllum málum um efnisatriði máls, sekt og sýknu heldur tæki kviðdómur einnig afstöðu til réttmætis laganna sem vörðuðu efni málsins. Í kviðdómi ættu að sitja 12 menn valdir af handahófi og hver um sig hefði afl til að forða hinum ákærða frá sakfellingu.

Ég held að ég það hafi sjaldan verið farið jafn jákvæðum orðum um jafn dýra og óskilvirka hugmynd á gamla góða Vefþjóðviljanum…

Bootcamp

Í kjölfar ungæðislegrar hrifningar minnar af þáttunum um Bootcamp-helginni, sem sýndir voru á Skjá einum í síðustu viku, dobblaði ég Andra félaga minn til að skrá sig með mér á Bootcamp-námskeið nú í haust. Nú átti sko að taka þetta með trompi og kveðja bumbuna með glæsibrag. En…

Rétt fyrir helgi fékk ég sendan póst þess efnis að námskeiðið sem ég skráði mig á væri orðið fullt, en námskeið á öðrum tímum stæðu mér vitanlega til boða. Guði sé lof – nú þegar áhrif þáttanna eru farin að dvína er ég eiginlega bara hálffeginn…

Skattlausa árið

Íslenski vinnualkinnÍ ár eru tuttugu ár frá skattlausa árinu svokallaða, en þá greiddu Íslendingar engan skatt af tekjum sínum. Í helgarumfjöllun dagsins fjallar Agnar Freyr Helgason um viðbrögð Íslendinga við skattleysinu og áhrif þess. Segir meðal annars í umfjölluninni: ,,Yfirskoðunarmenn á ríkisreikningum voru á meðal þeirra sem fóru ekki varhluta af þessum tímabundna hvata hjá starfsmönnum ríkisins. Þannig rákust þeir á nokkur dæmi þess að einstakir menn hafi fengið greiddar um eða yfir 1.600 yfirvinnustundir á árinu, sem jafngildir tæpum 4,4 yfirvinnustundum á dag allan ársins hring – helgar jafnt sem helgidaga!” (meira …)

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Easy Does It (5):

    Ég er með forrit í símanum sem er svona hlaupaforrit og meira að segja telur skrefin og... (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Jamm, og ef þú nálgast Android eða iPhone síma útí USA þá mæli ég klárlega með Runkeeper. Ég ELSKA... (Skoða)
  • Aggi um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á Nike+… þarf klárlega að græja mig upp með því! (Skoða)
  • Andri um Easy Does It (5):

    Sjá tólin fyrir jólin! (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á þetta. Prógrammið, sem að ég lét þig fá er þó ekki jafn erfitt og þú heldur.... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar