Magnaður fagnaður
Jáhá – sendi til gamans mynd sem ég tók af Bjarna frænda mínum í ferðinni austur í ljósmyndakeppni með þemað ,,krakkar” á ljosmyndakeppni.is. Viti menn, ég krækti í 9. sæti af 54 þátttakendum!
Tengdar færslur
4 athugasemdir
-
Maggi ritar:
7. ágúst 2007 @ 01:47Plús þá virðist hann vera talsvert betri en þú í boltanum. Hann liggur allavega ekki í grasinu sbr. ,,glæsilega” og söguleg innkoma þín í kynjaleiknum mikla í Húsafelli nýverið.
-
Aggi ritar:
7. ágúst 2007 @ 02:57Takk fyrir upprifjunina Magnús – ég var búinn að steingleyma þessu.
Annars er klárt mál að þarna er á ferðinni upprennandi stórstjarna… sumir hafa jafnvel gengið svo langt að lýsa töktunum hans á við það besta sem Attilo Lombardo sýndi! -
Fanney Dóra ritar:
7. ágúst 2007 @ 10:48Vó… 9. sæti… Til lukku!
Þegar ég gef út matreiðslubók ætla ég sko pottþétt að fá þig í að ljósmynda og aðstoða við framsetningu efnis! Maðurinn er hokinn af reynslu og hæfileikum! -
Kamilla ritar:
7. ágúst 2007 @ 19:22hey til hamingju!

Ég tók þátt í minni fyrstu ljósmyndakeppni á ljosmyndakeppni.is fyrr í mánuðinum. Viðfangsefnið var einfaldleiki. Framlagið mitt má sjá hér að neðan – var því ætlað að endurspegla afturhvarf til...