Færslur frá ágúst 2007

Magnaður fagnaður

BjarniJáhá – sendi til gamans mynd sem ég tók af Bjarna frænda mínum í ferðinni austur í ljósmyndakeppni með þemað ,,krakkar” á ljosmyndakeppni.is. Viti menn, ég krækti í 9. sæti af 54 þátttakendum!

Geggjuð markvarsla!

Laura

LáraLaura Ingraham, bandarískur spjallþáttastjórnandi og hægrimaður með meiru, er gífurlega hress gella. Röksemdafærslurnar hennar eru auk þess á mannamáli og vel vatnsþéttar. Mér þykir þessi vera með þeim betri:

,,The average American out there loves the show 24. Okay? They love Jack Bauer, and they love 24. In my mind, that’s as close to a national referendum that it’s okay to use tough tactics against high-level al-Qaeda operatives as we’re going to get.”

Sem mikill áhugamaður um ævintýri JB liggur það því í augum uppi að ég gúddera – og raunar fagna – öllu litrófi pyntinganna sem eru til sýnis vikulega í 24.

Að sama skapi finnst mér í góðu lagi að svíkja og blekkja fólk ef ég græði fjárhagslega á því eða sigra einhverskonar keppni með athæfinu enda hef ég lúmsk gaman að hinum ávallt sígilda Survivor…

Sumarfrí

Jæja, þá er maður loksins loksins kominn í sumarfrí. Iðjuleysi er í hámarki og þannig á það að vera.

Annars er ég ekki frá því að einn af helstu kostunum við það að vera kominn í frí er að klæðaburðurinn er nokkuð valfrjáls – ég efast um að ég yrði mjög úthvíldur ef ég gengi um dagsdaglega í jakkafötum í fríinu mínu…

Grein um bók

Á fimm daga ferðalagi mínu austur á land afrekaði ég það að lesa þrjár heilar bækur! Skrifaði grein um ,,The Assault on Reason” á Vefritið í dag (sem mér þótti afar góð), en las líka skáldsöguna ,,Viltu vinna milljarð” og hagfræðiritgerðabók Þorvaldar Gylfasonar ,,Síðustu forvöð”. Báðar voru þær alveg prýðilegar. Ég var reyndar haldinn þeirri ranghugmynd að milljarðsbókin væri sannsöguleg… það fóru hins vegar að renna tvær grímur á mig þegar söguþráðurinn var orðinn fullútpældur ! Bókin hans Þorvaldar líður fyrir að vera orðin 12 ára gömul – ef einhver vill lesa efnið hans mæli ég frekar með ,,Framtíðin er annað land” frá 2001 eða ,,Tveir heimar” frá 2005.

###

Svansson skrifar einmitt skemmtilegan pistil um Gore og internet-þjóðsöguna í dag.

The Assault on Reason

The Assault on ReasonNýlega gaf fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, Al Gore, út bókina ,,The Assault on Reason”. Í grein dagsins fjallar Agnar Freyr Helgason um bókina og segir meðal annars: ,,Kjarni bókarinnar er þó viðameiri en einungis gagnrýni á Bush og félaga. Gore lýsir áhyggjum sínum af þróun lýðræðisins – hvernig hinn almenni borgari í Bandaríkjunum lætur sig varða meira um svefnleysi Paris Hilton en hverjir fara með almannavald og umfram allt, hvernig. Viðbrögð almennings, eða öllu heldur viðbragðsleysi, við pyntingum bandarískra hermanna á saklausu fólki í Abu Ghraib telur hann vera gott dæmi um andvaraleysi þjóðarinnar gagnvart umhverfi sínu og framtíð.” (meira …)

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (3):

    Eru ekki alltaf leikir allt árið? Kannski dreg ég þig á leik þegar ég kem í heimsókn :) (Skoða)
  • Aggi um Ameríski háskólaboltinn (3):

    Jújú, klappstýrur og allur pakkinn. Mæli tvímælalaust með því að skella sér á leik! (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (3):

    vá en spennandi! Voru ekki svona klappstýrur líka? Hvernig voru dansarnir? Oh mig... (Skoða)
  • Halldór Elías Guðmundsson um Mættur til C-bus! (6):

    Velkomin í bæinn, hafandi búid hér í næstum 5 ár er tér velkomid ad hafa... (Skoða)
  • Elín Sigrún um Mættur til C-bus! (6):

    Ok it’s noted air í stað express! En átti ekki Mel Gibson líka að hafa lamið konuna... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar