Færslur frá september 2007
Skilgreiningin á heimsku
- Maður, köllum hann A, stelur fartölvu.
- A tekur myndir af sér og ákveður að hlaða inn á flickr-myndareikninginn sinn í gegnum nýju fartölvuna sína.
- A gerir sér ekki grein fyrir því að tölvan skráist sjálfkrafa inn á flickr-reikning raunverulegs eiganda tölvunnar.
Útkoman: Snillingurinn setur inn mynd af sjálfum sér á myndasíðu eiganda tölvunnar og kemur gjörsamlega upp um sig!
Reglugerðarfargan Evrópusambandsins
Í umfjöllun helgarinnar tekur Agnar Freyr Helgason fyrir orðræðu fjölmiðla og stjórnmálamanna og áhrifin sem hún hefur á almenna umræður og viðhorf. Hann tekur orðræðu um meinta skrifræðisáráttu Evrópusambandsins og umfjöllun fjölmiðla um samræmt SI-kerfi í Bretlandi sem dæmi um það: „Ósjaldan var svo sagt frá Steve Thorburn, sem hrinti af stað hreyfingunni sem síðar var kennd við metra-píslarvottana, en hann var dæmdur fyrir að selja grænmeti og ávexti eftir þyngd í pundum en ekki kílógrömmum. Undirstrikar það uppstillingu miðlanna á málinu: Litli almenni borgarinn gegn hinu bjúrókratíska stórveldi.“ (meira …)
Klippt og skorið
Mikilvægi þess að vera vel klipptur verður seint ofmetið, því hef ég komist að á mínum rúma aldarfjórðungi í þessum heimi. Hárvöxtur minn er þannig með ólíkindum sveipóttur og sjálfstæður og er mér oft til trafala. Hvað þá þegar yfir 6 vikur eru liðnar frá síðustu heimsókn til rakarans.
Það var mér því til mikillar gleði þegar ég fann loksins hárgreiðslukonu sem virðist vera með doktorspróf í að hemja hárvöxtinn minn á sómasamlegan hátt. Hef ég nú farið til hennar nokkrum sinnum og sjaldan verið ánægðari með toppstykkið.
Í síðustu ferð minni til hennar virðumst við þó hafa misstigið okkur eilítið í því hversu mikið ætti að taka af hárinu. Eða öllu heldur, hversu mikið ætti að grisja það. Ég sjálfur orðinn hundleiður á svepplaga 7-vikna lúkkinu sagði dömunni að klippa vel af því og ekki síður þynna það vel.
Þegar ég skellti vaxi í hárið í gær tók ég hins vegar eftir því að nú er engu líkara en að undir þunnleitu hárinu sé ekki ríkulegur hárvöxtur heldur sportlegar skallarákir á víð og dreif! Mjög smart og passar furðu vel við Hondu Civic-bifreiðina mína.
Ég mun vonandi læra af þessu og gera hófsamari kröfur næst þegar ég fer í hársnyrtingu…
Af tveim vefritum
Það birtast ansi hreint góðar greinar á Vefritinu og Deiglunni í dag, þó ólíkar séu þær.
Á Vefritinu linkar Lára á frábæra hvatningarræðu Steve Jobs við útskrift í Stanford-háskólanum fyrir tveim árum og mæli ég tvímælalaust með því að fólk gefi sér tíma til að hlusta á ræðuna.
Á Deiglunni skrifar Pawel Bartoszek skemmtilegan pistil um fáránleika þess að fyrrverandi forsætisráðherra þjóðarinnar sé nú Seðlabankastjóri. Segir hann meðal annars:
Helmut Kohl er ekki sendiherra Þýskalands í Belgíu. Margaret Thatcher situr ekki í útvarpsráði BBC. Tony Blair er ekki heilbrigðisráðherra í ríkisstjórn Gordon Brown. Vaclav Havel stýrir ekki neytendastofnun í Tékklandi og Nelson Mandela er ekki hæstaréttardómari í Suður-Afríku. Engin þessara manna er svo seðlabankastjóri í ríki sínu.
Ó, hve ég er sammála!
Mr G
Guðjón Þórðarson var í athyglisverðu hádegisviðtali á Stöð 2 fyrr í dag. Mæli hiklaust með því fyrir áhugafólk um velferð íslenska landsliðsins í karlaknattspyrnu.
