Allt og ekkert
Er ekki kominn tími á færslu?
Ég er haldinn þeirri meinsemd að geta ekki skilgreint bloggið mitt, né hvers vegna ég blogga. Ekki hef ég eljuna og að því er virðist endalausa skoðanagleði þeirra sem tjá sig um þjóðmálaumræðuna daginn út og inn, ekki hef ég áhuga á því að birta hér einhvers konar persónulega dagbók með velgjulegri umfjöllun um ástir og óra, og ekki er ég á ferðalagi um exótískar slóðir rómönsku ameríku, þó að það sé vissulega inn á ,,hlutir sem ég ætla að gera á næstu tveim árum”-planinu mínu. Þessar vangaveltur koma reglulega upp hjá mér.
Engu að síður blogga ég samt.
#######################
Það hefur feikilega mikið gengið á undanfarna vikuna. Nýr meirihluti tekinn við í Reykjavík og bjartir tímar framundan. Ég held að það séu allar forsendur fyrir því að samstarfið muni ganga vel þó að auðvitað séu mál sem muni vera erfið. Fyrst og fremst held ég að þar geti næstu mánuðir reynst Birni Inga erfiðir enda ljóst að hann þarf að svara fyrir ýmislegt varðandi REI-málið allt saman. Að undirbúa brotthvarf flugvallarins úr Vatnsmýrinni er annað mál sem ég held að muni valda mikilli togstreitu – maður getur bara vonað að Margrét vinkona Sverris sjái að sér í þeim málum. Við í Ungum jafnaðarmönnum ályktuðum einmitt um völlinn á landsþinginu okkar og lögðum þar áherslu á að hann færi úr mýrinni, en tókum engu að síður undir áhyggjur sem lúta að því að hann verði fluttur til Keflavíkur. Hólmsheiðin hlýtur að vera fyrsti kostur, ef hún er veðurfræðilega nothæf.
#######################
Eftir að ég fór að dokjúmenta kvikmyndaáhorf mitt hérna á síðunni hef ég tekið eftir því að ég horfi á miklu færri bíómyndir en ég gerði mér grein fyrir. Einungis fjórar myndir í september og þrjár það sem af er þessum mánuði. Af þeim var 3:10 to Yuma með Russell Crowe og Christian Bale klárlega sú besta.
######################
Ég er annars á leiðinni til London um helgina. Takmarkið er að komast á Fulham – Derby á laugardeginum og sjá þar með tvö lélegustu lið úrvalsdeildarinnar á Leiknisvelli Lundúnaborgar. Það er fútt í því!

17. október 2007 @ 11:21
“ekki hef ég áhuga á því að birta hér einhvers konar persónulega dagbók með velgjulegri umfjöllun um ástir og óra, og ekki er ég á ferðalagi um exótískar slóðir rómönsku ameríku”
Þetta er einmitt skemmtileg lýsing á blogginu mínu. :-)
17. október 2007 @ 17:15
Ég huxxaði líka með mér þegar ég las þetta að hér væri fast skotið á ritstjóra http://www.eoe.is. En í framhaldinu komst ég að þeirri niðurstöðu að ritstýra http://www.f-aggi.com er bara jealous. Lifi skrif um ástir og óra hvort heldur í borg óttans eða í exótískri Ameríku!
17. október 2007 @ 19:37
Ekki hafði ég nú eoe.is í huga þegar ég reit þessi orð… enda aldrei velgjuleg umfjöllun þar, ó nei hún er með rómantískum blæ, sem fangar mann í andartakinu.
Svoleiðis er það nú.
17. október 2007 @ 21:18
Auðvitað ekki. Enda ég með súran húmor.
En átt þú ekki að vera að massa heimapróf? Fyrst þú ert byrjaður á að kommenta þá alveg endilega skelltu inn fleiri færslum. Aggabloggið er með því hressara heima að skækja þegar virknin og skrifin eru regluleg.
Stattu þig strákur! Hvort heldur í prófinu eða skrifum á þessa ágætu síðu um ástir og óra hvort sem er í hinni erótísku borg óttans já eða í exótísku Ameríku.
18. október 2007 @ 15:24
“ó nei hún er með rómantískum blæ, sem fangar mann í andartakinu.”
Ég hefði ekki getað lýst síðunni minni betur! Það liggur við að þetta komment veiti mér innblástur til að skrifa aftur um flókin og funheit ástarmál mín.
Annars bíð ég bara spenntur eftir færslu um Eyjólf Sverris. Ertu búinn að aflétta viðskiptabanninu á landsliðið?
23. október 2007 @ 13:39
Á ekkert að skrifa um frægðarförina til Lundúna og 0-0 leik Fullham og Derby?