Lundúnaferðin um helgina var vel heppnuð í flesta staði – að fara út á fimmtudegi og koma heim á sunnudegi er nefnilega helvíti fín formúla.  Það sem stóð uppúr:

  • Fyrst og fremst verður náttúrulega að nefna stórmeistarajafntefli Fulham og Derby, 0-0, á Craven Cottage á laugardeginum. Það var unun að horfa á þessi leiknu lið spila brasilískan sóknarbolta í 90 mínútur. Takktakk.
  • West Ham – Sunderland, 3-1, á sunnudeginum var öllu betri skemmtun. Sætin voru líka alveg brilljant – fyrir miðjum vellinum í hæfilegri hæð. Kenwyne Jones er annars magnaður leikmaður.
  • Verslunarferð á Oxford Street. 2 bindi, 3 pör af sokkum og 3 nærbuxur eru afrakstur 3 klst á verslunargötu heimsins. Mér finnst það frekar lélegt.
  • Asia de Cuba, fusion veitingastaður með sambland af asískri og kúbanskri matseld. Vááá, hvað það var góður matur.
  • Úrslitaleikur heimsmeistaramótsins í rugby, þar sem England og Suður-Afríka áttust við. Vorum á alvöru sportpöbb í góðum félagsskap enskra, sem þó töpuðu leiknum því miður. Annars hefði allt sennilega gengið af göflunum.
  • Burger King á Leicester Square.
  • Ryðguð tungumálakunnátta hins veraldarvana ferðalangs. Að spyrja leigubílstjóra ,,are you loose?” er ekki töff… að átta sig á því að maður er alveg úti að aka og leiðrétta sig með því að segja ,,…no, no, no, I mean, are you free?” er ekki mikið betra. Takk fyrir, takk.

Annars er hjálögð mynd frá föstudagskvöldinu.

Rósa Runólfsson

Tilraun Runólfssons til að kaupa rós handa undirrituðum gekk því miður ekki upp.