Færslur frá desember 2007
Tobias Fünke
Mér til mikillar ánægju rakst ég á myndina hérna að neðan á flakka mínu á veraldarvefnum. Ég er ekki frá því að það sé kominn tími á að dusta rykið af Arrested Development-þáttunum og skella þeim í tækið yfir hátíðarnar…

Mistök í frétt á Vísi
,,Hvert toppliðanna á erfiðustu jólatörnina?” er spurt í frétt á Visir.is. Eitthvað er blaðamaðurinn úti að aka, en í yfirferð sinni fjallar hann um leikina sem framundan eru hjá Arsenal, Manchester United, Chelsea og Liverpool. Mér er það ljúft og skylt að benda á að Liverpool er ekki á meðal toppliðanna fjögurra, heldur Manchester City, eins og sést á myndinni hérna fyrir neðan. Því væri auðvitað öðruvísi farið ef Liverpool hefði sigrað í aðalleik gærdagsins, en það var nú víst aldrei í spilunum.

I see the nuns are gay!
Ég er kominn með lagið Kalluri Vaanil með Prabhu Deva Sundaram á heilann… Fyrir utan að vera alveg fáránlega hressilegt, þá er dansinn alveg svakalegur og fatnaðurinn ekki verri. Það er enda ekki að ástæðulausu að Prabhu er kallaður hinn indversku Michael Jackson! Tengt því – ábendingar um hvar ég geti keypt úlpu svipaða þeirri og hann er í á myndinni hérna til hliðar væru afar vel þegnar.
Myndbandið, með góðum enskum texta, geta áhugasamir séð hérna fyrir neðan.
Nýtt blogg
Hinn mjög svo skemmtilegi félagsskapur Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík hefur hafið regluleg skrif á ujr.is. Vonandi að þar spinnist frjóar og áhugaverðar umræður þegar fram í sækir… Dharma, ekki hafa áhyggjur, verið er að vinna í kommentakerfinu as we speak!
Í bið
Jæja, þá hef ég innbyrt allt námsefni annarinnar á punktaformi í dag. 25 blaðsíður af þéttskrifuðum glósum, takk fyrir kærlega. Ekkert eftir nema að bíða eftir prófinu á morgun.
Vilji menn fá nasaþef af eftirfarandi atriðum þá er um að gera að ná á mér áður en prófið hefst í fyrramálið:
- Hvaða möguleika hefur Ísland til áhrifa innan EES?
- Hafa hagsmunir íslensks sjávarútvegs mótað stefnu Íslands í Evrópumálum?
- Hver eru áhrif þjóðernishyggju á Evrópustefnu Íslands?
- Hvaða þættir stuðluðu að samrunaþróun Evrópusambandsins?
- Hefur smæð íslenskrar stjórnsýslu haft áhrif á Evrópustefnu Íslands?
- Glatast fullveldið við inngöngu í Evrópusambandið?
- Hvernig hafa tengslin við Bandaríkin haft áhrif á Evrópustefnu Íslands?
- Hvernig má skilgreina alþjóðavæðingu?
- Hvað orsakar alþjóðavæðingu?
- Hversu alþjóðavætt er Ísland?
- Er alþjóðavæðing söguleg þróun?
Eins og ég segi – ef þið viljið ræða þetta við mig þá er um að gera að ná á mér fyrir kl. 8.45 í fyrramálið. Ég get ekki ábyrgst að ég verði viðræðuhæfur um þessi mál síðar… og alveg örugglega ekki um helgina.
Annars finnst mér þetta nám mitt alveg frábært!
